15.05.1957
Sameinað þing: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (2484)

25. mál, jarðgangagerðir og yfirbyggingar á fjallvegum

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Í till. þeirri, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. verði falið að láta framkvæma rannsókn á möguleikum þess að gera fjallgöng eða byggja yfir þjóðvegi, sem liggja það hátt og eru það ótryggir til vetrarferða, að þeir eru aðeins færir stuttan tíma ársins. Það er auðvitað mikilvægt atriði að reyna svo sem kostur er að ganga þannig frá vegum, að þeir séu færir sem mestan hluta ársins, og það eru ýmsir vegir hér á Íslandi milli byggðarlaga, sem þannig er ástatt með, að þeir eru ekki akfærir nema tiltölulega mjög skamman tíma. Fjvn. gerði sér alveg ljósa grein fyrir nauðsyn þess, að auðið yrði að ganga sem tryggilegast frá þessum vegamálum, og hefur haft samráð við vegamálastjóra um möguleika á þeim framkvæmdum, sem hér er gert ráð fyrir í þessari till.

Í grg. till. er bent á nokkra vegi sérstaklega, sem ekki mun nú tæmandi upptalning, heldur aðeins tekið sem dæmi, og hefur vegamálastjóri gert um það sínar aths., sem prentaðar eru með nál. sem fskj., og hirði ég ekki að fara út í þau atriði, en það kemur þó í ljós, að a.m.k. einn þeirra vega, sem sérstaklega er vikið að í grg., hefur enn ekki verið athugaður í þessu sambandi, og jafnframt eru auðvitað margir aðrir vegir, sem svipað er ástatt með og þá fjallvegi á Vesturlandi, sem vikið er að í grg. till. á þskj. 25.

Vegamálastjóri kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu eftir þá athugun, sem hann hefur framkvæmt á þessu máli, að ef eigi að framkvæma á þessu ýtarlegar rannsóknir almennt, muni það hafa í för með sér mjög mikinn kostnað, þær athuganir sé ekki hægt að gera nema með því að leggja í mjög kostnaðarsamar framkvæmdir í því sambandi og rannsóknir. N. hefur því ekki talið gerlegt að leggja til, að almenn athugun yrði gerð í þessu sambandi á fjallvegum yfirleitt, en þar sem henni er ljós sú mikla nauðsyn þess að reyna að koma hér á einhverjum umbótum í sambandi við þessa vegi, sem sérstaklega er um rætt í till., er gætu orðið til þess, að þeir gætu orðið betri og traustari samgönguleiðir en nú er, vill n. leggja til við hið háa Alþ., að till. verði engu að síður samþ. eins og hún liggur hér fyrir á þskj. 25, en með það í huga, að framkvæmd málsins verði við það miðuð, að ekki verði framkvæmd almenn athugun varðandi alla fjallvegi, heldur verði fyrst reynt að gera sér grein fyrir því af vegamálastjórninni eða ríkisstj. í samráði við hana, að hvaða leiðum væri líklegast að mundi vera gerlegt annaðhvort að gera fjallgöng eða yfirbyggingu, og athugunin yrði bundin við slíka vegi. Nokkurn veginn er ljóst, að þannig er ástatt með suma þá fjallvegi, er hér um ræðir, að það yrði svo geysilega kostnaðarsamt að gera þessar framkvæmdir, að það væri af þeim sökum ekki tiltækilegt, og telur n. ekki rétt að vera að eyða fé til rannsóknar á þeim, heldur að athuga það þar, sem fyrir fram sýndust einhverjar líkur fyrir, að framkvæmdir yrðu viðráðanlegar kostnaðar vegna, — að þá yrði þessi athugun látin fram fara í sambandi við þá vegi eða vegarstæði.