29.05.1957
Sameinað þing: 63. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (2510)
64. mál, jarðboranir í Vestmannaeyjum
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Mál þetta er upphaflega flutt í sameinuðu Alþ. af hv. þm. Vestm. og mér og er flutt að beiðni bæjarstj. Vestmannaeyja vegna þeirrar alkunnu staðreyndar, að þar á staðnum er neyzluvatnsöflun erfið og með aukinni tækni í framleiðsluháttum verður vatnsskortur stöðugt tilfinnanlegri.
Nú þykir sýnt, að ganga verði að því með oddi og egg að kanna möguleikana til að afla neyzluvatns þar með öðrum hætti en nú tíðkast, og er það,samhljóða álit allra fræðimanna, sem um málið hafa fjallað, að sjálfsagt sé að byrja á því að ganga fullkomlega úr skugga um, hvort ekki sé hægt að afla þar neyzluvatns með jarðborunum.
Fjvn. hefur haft þessa till. til athugunar og leitað um málið umsagnar bæði rannsóknaráðs ríkisins og raforkumálastjórnarinnar, sem hefur með að gera jarðboranir, og að athuguðu máli er það till. n., að till. verði samþ. með breytingu, sem frá greinir á þskj. 610. Þrír nm. hafa skrifað undir álitið með fyrirvara, og einn var ekki viðstaddur, þegar afgreiðsla málsins fór fram. En það er sem sagt till. n., að ríkisstj. verði heimilað að greiða jarðboranakostnað vegna neyzluvatnsleitar í Vestmannaeyjum að hálfu á móti Vestmannaeyjabæ, allt að 250 þús. kr., á yfirstandandi ári.