22.05.1957
Sameinað þing: 59. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í D-deild Alþingistíðinda. (2538)

180. mál, síldarverksmiðja á Seyðisfirði

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu mikla örðugleika við Íslendingar höfum þurft við að etja vegna aflabrests á síldveiðunum og vegna þess, hversu stopular síldveiðarnar hafa verið og eru, og á það bæði við um síldveiðarnar fyrir norðan og sunnan. Menn minnast þess, þegar mikil síldveiði var hér í Hvalfirði, aðallega í tvo vetur, að víðtækar ráðstafanir voru gerðar með samráði manna úr öllum flokkum og ágreiningslaust til þess að hagnýta þá síldveiði sem allra bezt. Nú, hún hvarf með öllu mjög skyndilega, og síðan hafa þeir menn, sem að því stóðu að gera þá snöggar ráðstafanir til þess, að hægt væri að hagnýta þessa veiði landsmönnum til hagsbóta, hlotið lítið lof fyrir sínar aðgerðir og jafnan verið notað til margvíslegra ásakana á þá úr herbúðum þeirra manna, sem í raun og veru voru ráðstöfununum algerlega samþykkir á sínum tíma.

Þessa sögu skal ég ekki á þessu stigi málsins rekja lengri. En það, sem um þetta verður sagt, á einnig við að sínu leyti um síldveiðarnar á Norðurlandi. Þar hafa verið byggðar verksmiðjur, sem standa algerlega óhagnýttar, og hafa þó engir angurgapar verið taldir þeir menn, sem á sínum tíma stóðu að því, að þessar verksmiðjur voru reistar. Það er kunnugt, að síldarverksmiðjur ríkisins hafa naumast hreyft tvær stórar síldarverksmiðjur, annars vegar nýjustu síldarverksmiðjuna á Siglufirði og hins vegar síldarverksmiðjuna á Skagaströnd. Þá háttar einnig þannig til, að í Ingólfsfirði er síldarverksmiðja, sem byggð var á þeim tíma, þegar síldargöngur voru miklar fyrir Norðurlandi, af mjög duglegum og kunnum athafnamanni, Geir Thorsteinssyni, reyndum bæði á þessu sviði og öðrum sviðum fiskveiða. En eftir að sú síldarverksmiðja hafði verið rekin aðeins fá sumur, — ég held það hafi naumast verið meira en þrjú sumur, — hefur brugðið svo til um síldveiðarnar fyrir norðan, að hún hefur lent í hópi þeirra síldarverksmiðja, sem algerlega hafa verið viðfangsefnalausar og þar af leiðandi athafnalausar, og þetta á einnig við fleiri verksmiðjur en ég nú hef talið, eins og t.d. Djúpavíkurverksmiðjuna, sem er á ekki fjarlægum slóðum við þessa verksmiðju.

Af þessum óviðráðanlegu orsökum hefur þjóðfélagið farið á mis við mikil verðmæti og fólk það, sem búið hefur á þessum stöðum og notið atvinnu á þeim að sumarlagi, misst verulega miklar tekjur vegna góðrar atvinnu, sem menn áður höfðu af þessum atvinnutækjum, sem jafnframt urðu þá til uppbyggingar, eins og venja er til i einu og öllu athafnalífi, efnahagslífi fólksins á þessum stöðum. Það hefur áður oft komið til tals að reyna að ráða bót á þessum vandkvæðum, sem ég nú hef vikið að, með því að færa til þessi framleiðslutæki, og á það sérstaklega við um síldarbræðsluna á Ingólfsfirði, þar sem oft hefur áður komið til tals að reyna að flytja vélar úr henni á aðra staði, m.a. til Seyðisfjarðar, eins og nú er verið að gera.

Ég tel, að það sé mjög ánægjulegt, að það má segja, að það sé nokkurn veginn víst, að nú sé hægt að koma því til leiðar, að hálf vélasamstæða úr Ingólfsfjarðarverksmiðjunni verði flutt og með svo snöggum hætti, að það geti orðið starfhæf a.m.k. 2500 mála síldarbræðsla á Seyðisfirði í sumar. Útvegsbanki Íslands hefur átt verulegan hlut að máli í sambandi við það mál, sem hér um ræðir, þar sem síldarverksmiðjan á Ingólfsfirði var viðskiptafyrirtæki Útvegsbankans, reyndar fleiri banka, Búnaðarbankans einnig á sinum tíma, þegar verksmiðjan var stofnuð. En atvikin hafa hagað því svo, að það hefur lent á Útvegsbankanum að taka við þeim skuldum og skuldbindingum, sem verksmiðjan átti við aðra skuldheimtumenn, svo að þar er nú eða hefur verið við einn aðila að eiga, sem er Útvegsbankinn. Mér er kunnugt um, að það hefur verið mikill áhugi fyrir því í stjórn þessa banka að reyna að koma því til leiðar að gera þessi framleiðslutæki í einu eða öðru skyni verðmæt að nýju og þá ekki aðelns með því móti að flytja núna hluta úr verksmiðjunni til Seyðisfjarðar til þess að koma þar upp 2500 mála síldarbræðslu í góðu lagi og með góðum tækjum, heldur er það einnig svo, að innan bankastjórnar þess banka hefur á margan hátt verið rætt, með hverjum öðrum ráðum væri hægt að stuðla að því, að þessi síldarbræðsla eða síldarverksmiðja á Ingólfsfirði gæti á annan hátt komið í gagnið í atvinnulífinu, og þá náttúrlega fyrst og fremst er hugsað til síldveiðanna á Norðurlandi. Þó að þær hafi verið lélegar og aflabrestur á undanförnum árum, getur breytzt verulega til batnaðar, og einnig þó að ekki breyttist nema að nokkru leyti, þá verðum við að hafa það í huga, að við erum með á prjónunum núna áætlanir um að kaupa fimmtán nýja togara til landsins og tólf 200 tonna fiskiskip, og jafnframt er tæknin í fiskveiðunum stöðugt að breytast, svo að þegar allt samanlagt er haft í huga, kunna að skapast verkefni fyrir þessa og aðrar hliðstæðar síldarverksmiðjur á Norðurlandi með öðrum hætti en áður hefur verið, bæði með hliðsjón af breyttri tækni, veiðiaðferðum og nýjum skipastól.

Ég tel, að það sé sjálfsagt að veita þá heimild, sem hér er um beðið, ábyrgðarheimild, sem er liður í því, að þær ráðstafanir, sem hér hafa verið gerðar að umræðuefni, geti komizt í framkvæmd. Það er nú þegar byrjað á því að undirbúa, að þessar vélasamstæður verði fluttar til Seyðisfjarðar, og það væri sannarlega mjög æskilegt og ánægjulegt, ef það gæti orðið til þess, að þar væri hægt að hagnýta þessi tæki með góðum árangri á komandi sumarvertíð og í framtíðinni.

Mér þótti ástæða til að víkja að þessum athugasemdum í sambandi við þetta mál, ekki sízt vegna þess, að ég hef frá upphafi litið svo á, að það væri ekki aðeins viðfangsefni bankanna, heldur einnig opinberra aðila, Alþingis og ríkisstj., að grípa inn í þróun atvinnulífsins á hliðstæðum sviðum og þessum, þegar algerlega óviðráðanleg atvik hafa hagað því svo, að undan ráðstöfunum, sem lagt er í á sínum tíma af mikilli forsjálni og hyggindum, er algerlega kippt fótunum. Ég hef minnzt á fleiri tilvik þessu lík, og við skulum vona, að okkur takist að bæta úr með þeim ráðum, sem ég hef vikið að, og skal ég ekki á þessu stigi hafa um það fleiri orð, en er algerlega meðmæltur því, að þessi till. nái fram að ganga sem liður í þeim ráðstöfunum, sem hér hefur verið rætt um.