29.05.1957
Sameinað þing: 64. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í D-deild Alþingistíðinda. (2576)

185. mál, Alþjóðakjarnorkumálastofnunin

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í till. þessari er lagt til, að Alþingi álykti að veita ríkisstj. heimild til þess að fullgilda stofnskrá alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, sem samþykkt var í október s.l. á alþjóðafundi í bækistöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Aðdragandi málsins er sá, að kvatt var til fundar i New York i október s.l. til þess að ræða hugmynd, sem forseti Bandaríkjanna hafði kunngjört, að komið yrði á fót alþjóðastofnun til þess að efla friðsamlega hagnýtingu kjarnorkunnar öllu mannkyni til aukins velfarnaðar. Á þessum fundi mættu fulltrúar frá 81 ríki. Fyrir Íslands hönd mætti þar ambassador Íslands i Washington, Thor Thors. Þar voru samþykkt drög að stofnskrá með samhljóða atkv. 81 ríkis.

Starfsemi stofnunarinnar á að vera fólgin í því að veita aðstoð við rannsóknir og hagnýtingu á kjarnorku til friðsamlegra nota og að sjá fyrir efnum, þjónustu og tækjum, sem nauðsynleg eru í því skyni. Er jafnframt gert ráð fyrir því, að tekið sé sérstakt tillit til þarfa þeirra ríkja, sem skammt eru á veg komin. Þær reglur gilda, að öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna geti orðið stofnendur þessara alþjóðasamtaka, ef endanlega verður af stofnun þeirra.

Gert er ráð fyrir, að fyrsti aðalfundur stofnunarinnar verði haldinn í ágústmánuði n.k. í Vín, en þar hefur verið ákveðið að stofnunin hafi aðsetur, ef endanlega verður frá stofnun hennar gengið, og þar verður endanlegur grundvöllur lagður að starfsemi stofnunarinnar í framtíðinni.

Ríkisstj. telur rétt, að Ísland verði eins og önnur aðildarríki að Sameinuðu þjóðunum einnig aðili að þessari stofnun, og er í till. lagt til, eins og ég gat um í upphafi, að Alþingi heimili ríkisstj. að fullgilda þessa stofnskrá á fundinum í ágúst n.k. í Vínarborg.

Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að till. verði vísað til síðari umr. og hv. allshn.