31.05.1957
Sameinað þing: 65. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í D-deild Alþingistíðinda. (2579)

185. mál, Alþjóðakjarnorkumálastofnunin

Ólafur Thors:

Herra forseti. Við sjálfstæðismenn höfum ekki haft aðstöðu til að kynna okkur þetta mál, og við skiljum raunar ekki, hvers vegna hin mikla töf hefur orðið á því að sýna hæstv. Alþingi framan í málið. Ég viðurkenni fyllilega, að það er jafnvel til of mikils mælzt, að alþm. yfirleitt treysti sér að taka afstöðu til málsins, þegar sjálf n., sem á að fjalla um málið, segir: Málið er fært okkur á síðasta degi, og það er til of mikils mælzt af okkur að afgr. það, og n. vísaði málinu frá sér á þeim grundvelli.

Ég endurtek, að Sjálfstfl. hefur ekki getað rætt málið innan sinna vébanda. Sjálfur hef ég hins vegar dálítið getað kynnt mér það, en þó hvergi nægjanlega. Ég lít þó þannig á, að hér sé um mjög merkilegt mál að ræða. Ég lít þannig á, að ef ekki felst eitthvað sérstakt í þessu, sem okkur hefur skotizt yfir, og hafa raunar fæstir lesið nema lítið brot af því, þá muni endirinn verða sá, að Ísland muni vilja verða þátttakandi í þessu merka samstarfi. Við höfum lagt á það áherzlu, sjálfstæðismenn, að við viljum eiga slíkt samstarf einmitt við vinveittar þjóðir.

Mér hefur verið tjáð, að ef Alþingi afgr. nú ekki þetta mál og geri það ekki fyrr en á haustþinginu, þá valdi það að vísu ekki neinni stórri ógæfu fyrir einn eða annan, en valdi þó því, að Ísland getur ekki orðið stofnandi að þessum samtökum.

Ég mæli því nú fyrir mína hönd, en get ekki sagt neitt fyrir flokksins hönd af framangreindum ástæðum, að ég mun greiða atkvæði með þessu. En mér finnst ekki, að ég komist hjá að láta í ljós óánægju mína og rökstuddar aðfinnslur yfir því, hversu seint málið ber að höndum og hvernig það er lagt fyrir okkur.

Með þessum formála greiði ég atkvæði með þessari till., en get ekkert um það sagt fyrir hönd flokksins.