31.10.1956
Sameinað þing: 4. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (2642)
15. mál, eftirgjöf lána vegna óþurrkanna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er orðin reynsla fyrir því allmikil, að þegar lán eru veitt til stuðnings vegna áfalla, skapast mikil vandamál, þegar að skuldadögunum kemur. Þetta er fullreynt orðið. Ég hef því stundum undanfarið, t.d. í fyrra á öðrum vettvangi, vakið máls á því að breyta um stefnu í slíkum málum frá því, sem verið hefur, og láta aldrei neina aðstoð vegna stóráfalla frá ríkinu sjálfu öðruvísi en sem beina aðstoð eða styrk, sem ekki væri þá ætlazt til að endurgreiða, og að það lægi hreinlega fyrir, þegar úthlutun slíks fjár færi fram, að þar væri um styrk að ræða, en ekki lánveitingar. Ef menn treystu sér ekki til þess að ganga nógu langt í fjárútlátum eftir slíkri leið, væri veitt lán í gegnum bankana, sem allir vissu hreinlega fyrir fram að væru veitt á venjulegum viðskiptagrundvelli og yrðu innheimt, hvað sem tautaði. Ég held satt að segja, að sú reynsla, sem við höfum af þessum málum, sé orðin þannig, að það eigi að hafa það sem leiðarljós framvegis, að ríkið eigi aldrei sjálft að veita nein lán, heldur aðeins styrk, þegar áföll koma fyrir, sem Alþ. þykir ástæða til að veita stuðning út af. En séu lán veitt til viðbótar, séu þau veitt í gegnum lánsstofnanir eða banka, en ekki látin koma ríkissjóði, ríkisbúskapnum neitt við. Þessa skoðun byggi ég á reynslu um það, hvaða vandi kemur upp, þegar verið er að veita lán, en hins vegar ekki talið fært að innheimta þau á venjulegan hátt, en það vitum við, að ef á að vera jafnrétti í innheimtunni, má ekki innheimta lánin þannig, að það borgi aðeins þeir, sem af sjálfsdáðum koma og láta fram peningana, heldur verður að innheimta á venjulegan hátt, að hinir, sem ekki borga, sæti þá aðför. Það er ekki hægt að haga innheimtu lána öðruvísi en þannig, ef hún á að vera réttlát.
Það var lánað í fyrra til íbúa á Suðurlandi og Suðvesturlandi vegna óþurrkanna. En það er ekki í fyrsta skipti, sem hefur verið lánað í sambandi við óhöpp eða áföll. T.d. 1950, þá var lánað til Austurlandsins, og var þá hreppum lánað. Það var að vísu smáfjárhæð, samanborið við það, sem lánað var í fyrra á Suður og Vesturlandi, enda þar um minni héruð að ræða. Svo hélt óærið áfram á Austurlandi og magnaðist um allan helming og varð satt að segja þvílíkt, að til annars eins eru engin dæmi hér á landi um langan tíma. Þá var lánað aftur 1952 og þá nokkru meira fé en í fyrra skiptið. Þá var lánað beint einstaklingum og þeir látnir veðsetja fyrir þessu láni eigur sínar, Þetta eru dæmi, sem ég man eftir.
Nú hefur sáralítið greiðzt af þessum lánum. Nokkrir hreppar hafa þó borgað nokkuð inn af lánum, sem þeim voru veitt, og það er kannske hægt að finna einstaklinga. sem hafa borgað inn á lánin. sem veitt voru til þeirra, en það hefur sáralítið komið til enn þá, enda voru þau lán afborgunarlaus fyrstu árin. En það hefur ekki verið gengið í innheimtuna á þessum lánum eins og gert er um venjulega bankalánainnheimtu, og þessi mál hafa legið til athugunar.
Þá vil ég minna á eitt, sem líka er fróðlegt að rifja upp í þessu sambandi. Fyrir nokkru kom upp þurrafúi í skipum og bátum. Þetta voru þung áföll fyrir marga, og ég held, að það séu dæmi til þess, að það hafi kostað 800 þús. kr. að gera við eitt skip vegna þurrafúa. Þessi þurrafúi á ekkert skylt við aldur skipanna né meðferð þeirra á nokkurn hátt. Þetta er galli í efninu. Þegar þetta mál lá fyrir Alþ., var farið inn á þá braut að heimila ríkisstj. að ábyrgjast lán, sem eigendur skipanna tækju til þess að gera við þau vegna þurrafúans. Ég held, að það hafi verið 2 millj. kr. heimilaðar í fyrstu og svo aftur 2 millj. a.m.k. á síðustu fjárl. í þessu sama skyni, því að þessi þurrafúi hefur komið fram í fleiri og fleiri bátum og fleiri og fleiri skipum. Svo þegar farið var til bankanna, sögðust þeir alls ekki vilja lána þessum mönnum nema til 2 ára allra lengst. Þá stóð ríkisstj. frammi fyrir því, að annaðhvort yrðu þessi þurrafúaskip lögð til hliðar jafnóðum og ekkert hægt að gera við þau eða þá að eigendurnir tækju lán til tveggja ára með ríkisábyrgð. Og það var gert, heimildin að fullu notuð fyrsta árið, sem hún var í gildi, og ég held. að þessi þurrafúalán séu nú komin upp undir 4 milljónir, og eru þau öll til tveggja ára.
Nú sjá allir, að eigendur skipanna langflestir geta alls ekki endurgreitt þessi lán á tveimur árum; þarna er í raun og veru óbeint verið að lána fé úr ríkissjóði til þess að hlaupa undir baggann í þurrafúamálinu. Og hvað verður um innheimtu, þegar eitt skip kemur, sem skuldar 800 þús. kr. tveggja ára lán vegna þurrafúa? Ef útgerðin, sem þar á hlut að máli, og raunar ýmsar aðrar ættu að standa við þetta, þá eru þær algerlega gjaldþrota. Þarna eru m.ö.o. komin styrktarlán í raun og veru, þó að framkvæmdin sé í gegnum ábyrgð, vegna þurrafúans.
Nú vil ég upplýsa í sambandi við þetta mál, að ríkisstj. er að láta athuga öll þessi mál, sem ég hef hér talið, þ. á m. mál það, sem þessi þáltill. fjallar um, og raunar geri ég ráð fyrir, að þá verði um leið athugað t.d. um skuldaskilasjóð útgerðarmanna, sem settur var upp hér um árið, og reynt að kynna sér, hvaða stefnu á að taka um hann og innheimtu hans. Ríkisstj. er að athuga þessi mál og hún mun leggja sínar till. um meðferð þeirra fyrir þetta þing.