30.01.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í D-deild Alþingistíðinda. (2685)

63. mál, íslensk ópera

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. flutti sitt mál af mikilli háttprýði og ágætum rökum að mínum dómi, og orðaskipti okkar gáfu að engu leyti tilefni til þess, að hv. þm. N-Ísf. innleiddi þann tón í þessari umr., sem hann gerði í sinni stuttu ræðu.

Ég hefði sannarlega haft ástæðu til margs konar ádeilu í sambandi við flutning þessa máls til þess að undirstrika það, hvað hér er á ferðinni af flokki flutningsmanna þessarar till. Í Sþ. flytja fimm sjálfstæðisþingmenn tillögu um stofnun óperu, þó að í lögum þjóðleikhússins standi skýrum stöfum, að þjóðleikhúsið skuli annast flutning söngleika, og það hafi gert það, eins og tillögumaður gat greinilega um í sinni ágætu framsöguræðu. Það þarf því enga till. til þess að kveða á um, að þjóðleikhúsið skuli flytja óperu. Það hefur gert það og mun gera það áfram. Till. er hins vegar um það að ráða 5–10 fasta söngvara að þjóðleikhúsinu, sem mundi kosta a.m.k. 350–700 þús. kr., líklega upp undir milljón á ári í aukin útgjöld fyrir þjóðleikhúsið. Þetta gerist nokkurn veginn samtímis því, sem annar þm. Sjálfstfl. flytur till. um það í hv. Ed. að skerða tekjur þjóðleikhússins um allt að 1/5. Það er líklega leiðin til þess að gera kleift að ráða 5–10 nýja söngvara að þjóðleikhúsinu. Ja, hverjir tala fyrir hönd Sjálfstfl.? Hvar er menningaráhugi hans? Hvorum megin stendur þessi hv. þm., þm. N-Ísf.? Er hann með Reykjavíkurþingmanninum, eða er hann með þm. V-Sk., eða er hann á beggja skoðun?

Um þetta hefði verið ástæða til þess að fjölyrða og má fjölyrða miklu meira, þann tvískinnungshátt, þann skringilega menningaráhuga, sem birtist hjá flokknum í því að vilja í Sþ. auka útgjöld þjóðleikhússins um allt að því milljón og vilja í hv. Ed. rýra tekjurnar um mörg hundruð þúsundir króna. Það er menningaráhugi, sem íslenzk menning kemur ekki til með að lifa á til lengdar.

Hv. þm. var mjög óheppinn, þegar hann nefndi skattamálin sem dæmi um sérstaka afturhaldssemi núv. ríkisstj. Það hefur líklega farið fram hjá honum, að það var verið að útbýta tveimur frv. um skattamál á þessum sama fundi, frv. um sérstök skattfríðindi til handa sjómönnum og frv. um skattalækkun allra lágtekjumanna. Það er sérstök óheppni fyrir hv. þm. að taka skattamálin sem alveg sérstök dæmi um, að það sé stefna ríkisstj. að hækka skatta á öllum almenningi, — óheppni fyrir hann, að það skyldi fara fram hjá honum, að rétt áður var búið að leggja á borðið fyrir framan hann tvö frv., sem miða að mjög verulegri lækkun skatta hjá öllum almenningi í landinu.

Þá sagði hv. þm. með allmiklum þjósti, að hann skildi ekki. hvernig á því gæti staðið, að ég flytti hér aðrar upplýsingar um rekstrarniðurstöðu af söngleikum í þjóðleikhúsinu heldur en hv. 8. þm. Reykv. hefði flutt. Ég gerði það af mestu hógværð í fyrri ræðu minni að leiðrétta það, sem frsm. fór ekki rétt með, þar sem hann, hv. 8. þm. Reykv., staðhæfði, að ekki hefði orðið halli á neinni óperusýningu í þjóðleikhúsinu. Ég veit ekki, hvaðan hv. þm. hefur fengið þessar upplýsingar. (RH: Frá þjóðleikhússtjóra.) Frá þjóðleikhússtjóra? Já, þá verð ég því miður að segja það, að þjóðleikhússtjóri hefur ekki skoðað bækur þjóðleikhússins, áður en hann gaf upplýsingarnar. (Gripið fram í: En ráðherrann?) Ég hef útskrift hér frá skrifstofustjóra þjóðleikhússins, sem ég leyfi mér hér með að lána hv. þm. N-Ísf., vegna þess að hann er ritstjóri stærsta blaðs landsins, og gef honum heimild til að birta það úr þessu, sem hann kærir sig um, en þessar upplýsingar eru frá skrifstofustjóra og aðalbókara þjóðleikhússins, beint upp úr bókunum, taldar í þúsundum króna, hundruðum króna og aurum.

Það fer því ekkert á milli mála um það, hver hefur haft réttara fyrir sér um þetta, hv. frsm. eða ég. Tölurnar úr bókhaldi þjóðleikhússins tala algerlega skýru máli um þetta efni. (Gripið fram í.) Ég geri ráð fyrir því, að samtal flm. og þjóðleikhússtjórans hafi verið mjög lauslegt, t.d. í síma, og það, sem þjóðleikhússtjóri hafi sagt, hafi verið og hann þá vafalaust tekið fram, að það væri sagt ekki að fullkomlega athuguðu máli. Þarna er athugunin, sem fram fór, nákvæmlega eftir bókum þjóðleikhússins.

Þá sagði hv. þm. N-Ísf., að mjög lítill vandi væri að auka tekjur skemmtanaskattsins með því að afnema þær undanþágur, sem nú giltu fyrir kvikmyndahús og aðra aðila við greiðslu skemmtanaskatts. Þetta mál er gamalkunnugt hér á Alþingi. Hann sagði, að það væri eins og að koma við hjartað í brjóstinu á ýmsum þingmönnum, ef á það væri minnzt að afnema einhverja undanþágu á greiðslu skemmtanaskattsins. — Ég veit, hvaða hjarta hefur verið allra viðkvæmast í þessum efnum, og það er hjarta þess ágæta þingmanns, þm. Borgf., flokksbróður hv. þm. N-Ísf. Hjarta hans hefur verið viðkvæmast af öllum hjörtum þm. í þeim efnum, að ekki yrði breytt núv. reglum um undanþágu frá greiðslu skemmtanaskatts. Hann hefur barizt allra þm. skeleggast gegn því, að nokkuð yrði hreyft við núgildandi kerfi í þessum efnum. Hér er því allt á sömu bókina lært. Það, sem hv. þm. N-Ísf. er hér að gera, er að ráðast fyrst og fremst á skoðanir flokksbróður síns, hv. þm. Borgf. Í þessu menningarmáli er því Sjálfstfl. ekki einklofinn, hann er margklofinn. Það er sama, hvaða flötur upp kemur á þeim, þá stendur sjálfstæðismaður gegn sjálfstæðismanni. Þannig er ástandið á því heimilinu.

Annars er það nú svo, að skemmtanaskattsmálin eru mjög vandasöm, og ég er alveg sammála hv. þm. N-Ísf. um það, að þau mál þarf að endurskoða frá rótum. og þessu þingi mun væntanlega ekki ljúka, án þess að þau mál verði endurskoðuð frá rótum. Það er rétt, að skoðanir manna í þeim efnum hafa ekki farið eftir flokkum, og er yfirleitt ekki eðlilegt, að þær fari eftir flokkum. Ég vona, að okkur hv. þm. N-Ísf., slíkur áhugamaður sem hann er um menningarmál, megi auðnast að verða í einni fylkingu, þegar þau mál koma til endurskoðunar. Ég tel, að það mundi auka líkurnar á því, að skynsamleg lausn fengist á málinu, eins og ég þekki skoðanir hans á því úr einkaviðtölum um málið, því að þau höfum við átt. En til þess að þm. geri sér ljóst, um hvað hér er að ræða, af því að málin hafa verið dregin inn i umr., þá er það svo, að nokkur kvikmyndahús njóta nú algerrar undanþágu frá greiðslu skemmtanaskatts, en það eru kvikmyndahús háskólans og Bæjarbíó í Hafnarfirði, sem ver ágóðanum til rekstrar elliheimilis í Hafnarfirði, Bæjarbíó á Akranesi, sem ver ágóðanum til rekstrar sjúkrahúss á Akranesi, Laugarásbíó, bíó dvalarheimilis aldraðra sjómanna, Skjaldborgarbíó á Akureyri, sem rekið er af templurum til þess að standa undir rekstri æskulýðsheimilis á Akureyri, og Trípólíbíó í Reykjavík, sem ver ágóða sínum til stuðnings tónlistarskólanum hér í Reykjavík. Þær tekjur, sem þessir aðilar hafa af undanþágu skemmtanaskattsins, fara allar saman til þess að styrkja málefni, sem eiga sér mjög marga og öfluga forsvarsmenn hér á hinu háa Alþingi, og það er ástæðan til þess, að aldrei hefur náðst samkomulag um að hreyfa við þessum undanþágum. Ég tel, að það, sem gera þurfi í þessu máli, sé fyrst og fremst að tryggja, að í framtíðinni verði ekki skemmtanaskatturinn skertur svo mjög, að hann verði allt að því gagnslaus fyrir þær meginstofnanir, sem hans eiga að njóta, þ.e.a.s. þjóðleikhúsið og félagsheimilin. Það er mergurinn málsins. Það þarf að stöðva veitingu nýrra undanþága, — það er kjarni málsins, — en ekki að svipta þá aðila, sem nú njóta undanþáganna, a.m.k. hina helztu þeirra, þeim tekjustofnum, sem þeir nú hafa og hafa haft undanfarin ár og hafa byggt að ýmsu leyti mjög merkilega starfsemi á.

Sú stefna, sem ég tel að eigi að taka upp í þessum málum, er að ganga þannig frá lögum um skemmtanaskatt til frambúðar, að þjóðleikhúsinu og félagsheimilasjóðnum verði fyrst og fremst tryggðar af honum fastar tekjur í framtíðinni, þannig að þessir aðilar eigi það ekki á hættu. að skemmtanaskatturinn verði rýrður fyrir þeim sem tekjustofn framvegis. Það er mergurinn málsins. Hitt tel ég mjög torvelt og áreiðanlega pólitískt séð mjög illa framkvæmanlegt, að rýra undanþáguheimild a.m.k. flestra þeirra aðila, sem nú njóta hennar. Það er þessi stefna, sem ég kem til með að gerast forsvarsmaður fyrir hér á hinu háa Alþingi og heiti á stuðning allra velviljaðra þingmanna, heiti á stuðning allra þm., sem eru þjóðleikhúsinu og félagsheimilasjóði og félagsheimilunum velviljaðir, að hún nái fram að ganga. Ef þetta verður ekki gert, getum við búizt við því, að upp rísi kvikmyndahús og alls konar aðrir skemmtistaðir, sem segist ætla að nota sinn hagnað til þessa og hins menningarmálefnisins, með þeirri afleiðingu, að þær tekjur, sem þessar stofnanir fá, séu beint teknar frá þjóðleikhúsi og félagsheimilasjóði.

Það er þetta, sem þarf að breytast og ég mun beita mér fyrir, áður en þessu þingi lýkur, að gert verði í skemmtanaskattsmálinu, auk þess sem sjálfsagt er að gera ráðstafanir til þess, að skatturinn skili sér að fullu og öllu, en á því mun því miður vera nokkur misbrestur nú og hafa verið undanfarin ár.