30.01.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í D-deild Alþingistíðinda. (2689)
63. mál, íslensk ópera
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka það fram, að ég er í meginatriðum sammála því, sem fram kom hjá 1. þm. Reykv., fyrrverandi hæstv. menntmrh. Hann er auðsjáanlega gerkunnugur þeim vanda, sem hér er um að ræða, úr menntamálaráðuneytinu. Það er einmitt þetta, sem ég vildi áðan vekja athygli á með orðum mínum um það, að skoða þyrfti þetta mál frá heildarsjónarmiði og verið væri núna að því í menntmrn. Skemmtanaskattsmálin öll þurfa endurskoðunar við. Ég gat þess áðan og skal ekki endurtaka það, hver ég tel að eigi að vera meginstefnan í því máli. Sú hugmynd, sem hann gat um og virðist hafa verið á döfinni í menntmrn. í hans ráðherratíð, hefur einnig verið þar til athugunar núna, en hún er sú að afnema algerlega þau fríðindi, sem nú gilda, en tryggja þeim stofnunum, sem nú njóta þeirra, ef þær verða taldar þess verðugar, hliðstæðar tekjur í framtíðinni og þær nú hafa.
Ég skal ekki ræða á þessu stigi kosti og galla þessarar hugmyndar. Ég geri ráð fyrir því, að hún komi til umræðu í sambandi við skemmtanaskattsmálið í heild, þegar það kemur til kasta Alþ., sem ég vona að verði áður en þinginu lýkur, — því að eins og ég sagði áðan: þessi mál eru öll í því, ja, ég vil ekki segja ófremdarástandi, það mundi misskiljast, en ástand þessara mála er þannig, að ég tel þinginu ekki mega ljúka án þess, að á þeim verði fundin önnur og betri lausn en nú á sér stað. Hitt er sannarlega líka alveg rétt, að það má ekki skoða vandamál þjóðleikhússins og annarra menningarfyrirtækja hliðstæðra eingöngu út frá sjónarhóli skemmtanaskattsins. Þess vegna vildi ég ekki láta þessum umræðum ljúka án þess að minnast þess, að önnur stofnun, að ýmsu leyti hliðstæð þjóðleikhúsinu, á við mikla fjárhagserfiðleika að etja, eða réttara sagt: henni hefur ekki verið tryggður fastur grundvöllur, og það er sinfóníuhljómsveitin. Þó að ég hafi ekki viljað blanda hennar málum inn í þessar umræður fyrr og vona, að það, sem ég segi, verði ekki til þess að efna til sérstakrar umræðu um hennar mál, þá vildi ég þó að gefnum þessum alveg réttmætu athugasemdum hv. 1. þm. Reykv. láta þess getið, að ég tel hennar mál verða að koma til athugunar jafnhliða því, sem rætt er um mjög auknar fjárveitingar til þess að bæta skilyrði til óperuflutnings í þjóðleikhúsinu; að einmitt, eins og hv. síðasti ræðumaður tók fram, þegar verið er að ræða þessi mál öll í heild, gera sér grein fyrir því, hvað þjóðfélagið í heild treystir sér til þess að leggja af mörkum til tónlistarmála, að ég nú ekki taki til menningarmála yfirleitt, og gera verði slíkan almennan samanburð. þá hygg ég einmitt, að mjög nærri liggi, að menn geri samanburð á milli þess að tryggja líf sinfóníuhljómsveitarinnar í framtíðinni og hins að koma upp fastri óperusveit við þjóðleikhúsið. Það kunna auðvitað að vera eitthvað skiptar skoðanir um það, hvort sporið ætti heldur að stíga, ef t.d. hægt væri að stíga annaðhvort með einnar millj. kr. kostnaði. Þó hygg ég, að mikill meiri hluti þeirra manna, sem um þessi mál fjalla og hafa áhuga á þeim, mundi kjósa, að fyrst yrði stigið það spor að tryggja líf sinfóníuhljómsveitarinnar í framtíðinni, þó að það yrði á kostnað þess, að það dragist um einhvern tíma, að ráðinn yrði fastur óperusöngvaraflokkur við þjóðleikhúsið.