06.02.1957
Sameinað þing: 25. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í D-deild Alþingistíðinda. (2703)
95. mál, ferðamannagjaldeyrir
Flm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Það getur ekki verið álitamál, að kjör þau, sem búin eru erlendum ferðamönnum og útlendingum, sem hér dvelja, með því að skylda þá til að selja bönkunum gjaldeyri sinn á skráðu gengi, eru mjög bágborin. Það má fullyrða, að með því rýrni gjaldeyririnn í kaupmætti um allt að því helming, ef miðað er við gjaldeyri þeirra landa, sem aðilar eru að greiðslubandalagi Evrópu.
Þessu til áréttingar leyfi ég mér að bera lítils háttar saman verðlag í Danmörku og hér á landi, af því að svo vill til, að ég er nokkuð kunnugur verðlagsmálum í Danmörku. Hygg ég, að það láti nærri, að verðlag á almennum nauðsynjum sé um það bil fimmfalt hærra reiknað í íslenzkum krónum hér á landi en reiknað í dönskum krónum í Danmörku, en á mörgum öðrum vörum mun verðlag allt að því tífalt á Íslandi við það, sem er í Danmörku, en dönsk króna er nú skráð á kr. 2.36.
Sem annað dæmi um þetta mætti nefna það, að ýmsir munu hafa veitt því eftirtekt í sambandi við launadeilu þá, sem nú stendur yfir á milli flugstjóra og flugfélaganna, að flugmennirnir hafa borið sig saman við norska flugmenn, en norskir flugmenn fá í kaup 55 þús. norskar krónur. Ef þetta er umreiknað eftir skráðu gengi, þá mun það nema um 130–140 þúsund íslenzkum krónum, eða svipuðu og flugmennirnir hér fá nú. En til þess að samræma kjör sín og norskra flugmanna telja þeir sig ekki þurfa 140 þús. kr., heldur 280 þús. kr. eða jafnvel meira.
Nú skal ég ekkert segja um það, hvort slíkur samanburður við Noreg er fullkomlega réttur. Þess má geta, að Noregur er með dýrustu löndum í greiðslubandalagi Evrópu, þannig að gagnvart norskri krónu ætti íslenzka krónan ekki að vera svo ofmetin sem gagnvart öðrum Evrópugjaldeyri. En á þetta má þó benda sem nokkra frekari sönnun þess, hversu mjög er fjarri lagi, að hið skráða gengi á íslenzku krónunni sé í samræmi við kaupmátt hennar innanlands, enda kom það m.a. fram í ræðum ýmissa hæstv. ráðherra í umræðunum um efnahagsmál fyrir jólin, að þeir drógu enga fjöður yfir það, að íslenzka krónan væri ofmetin miðað við gengisskráningu, og ætti það í rauninni ekki að vera umdeilt atriði. Í því efni hafa þeir fullkomlega farið með rétt mál.
Samkvæmt þessu ætti það að láta nærri, að ferðamönnum sé raunverulega gert að greiða í skatt um helming þeirra fjármuna, er þeir skipta í íslenzkan gjaldeyri. Ég hef hér miðað við Danmörku, en það má taka fram, að Danmörk er engan veginn talin til hinna ódýrustu meðal Evrópulanda, þannig að slíkur skattur yrði enn meiri, ef miðað væri t.d. við brezkan eða þýzkan gjaldeyri.
Nú má nefna það, að því fer auðvitað fjarri, að þeir, sem heimsækja Ísland, séu allir auðkýfingar. Mér dettur í hug í þessu sambandi að nefna örlítið dæmi, sem kannske gæti brugðið nokkru frekara ljósi yfir það ástand, sem í þessum efnum er. Á s.l. sumri hitti ég, þegar ég var á ferðalagi í Danmörku, danskan stúdent, sem svo stóð á um, að hann hafði fengið danska styrki til þess að stunda nám í norrænum fræðum við Háskóla Íslands, en þau fræði stundaði hann við Kaupmannahafnarháskóla, og hafði fengið 2000 kr. danskan styrk í þessu skyni. Með því verðlagi, sem er í Danmörku, þá má ætla, að með því að lifa spart geti stúdent lifað af 2000 dönskum krónum í heilan vetur. En hvernig mundi þetta vera hér, eftir að búið er að breyta þessum 2000 dönsku krónum í íslenzkan gjaldeyri? Fyrir skömmu las ég í Alþýðublaðinu viðtal við stúdent, sem dvelur hér við háskólann, þar sem hann gerði nokkra áætlun um útgjöld stúdenta, sem hér dvelja við háskólann, til brýnustu nauðsynja. Hann áætlaði, — og ég tel enga ástæðu til þess að rengja þá áætlun sérstaklega, — að uppihald stúdenta mundi kosta 2000 ísl. krónur á mánuði. Það, sem mundi þannig svara til vetraruppihalds í Danmörku, miðað við danskt verðlag, mundi svara til um það bil tveggja mánaða uppihalds hér á landi, þegar búið væri að breyta danska gjaldeyrinum í íslenzkan gjaldeyri.
Í sjálfu sér virðist það fráleitt að framkvæma svo gífurlega skattaálagningu á erlenda ferðamenn, er hingað kunna að koma, og útlendinga, er hér kynnu að dvelja í námserindum eða öðrum erindum, sem þeir þurfa að kosta sig sjálfir til, enda kemur slík skattlagning auðvitað mjög í bága við þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið undanfarin ár til þess að auglýsa landið sem ferðamannaland. Og sama má í rauninni segja um ráðstafanir, sem miða að því að vinna að því, að Háskóli Íslands verði miðstöð norrænna fræða í Evrópu, og fjárframlög til þess að lokka erlenda stúdenta til náms i þeim fræðum við Háskóla Íslands. En hvað sem því líður, jafnvel þó að einhver kynni nú að líta þannig á, — og hygg ég þó, að þeir séu fáir, — að slík skattlagning á ferðamenn, sem hingað koma, væri réttmæt, þá er sá galli á, að ljóst er, að þessa skattlagningu er ekki hægt að framkvæma. Ferðamönnum, sem hingað koma, er opin leið til þess að selja gjaldeyri sinn á svörtum markaði, og það er opinbert leyndarmál, að að því eru stórkostleg brögð, enda ókleift með öllu að hafa eftirlit með því, að slíkt eigi sér ekki stað. Það má auðvitað fordæma slíkt, en það skyldu menn þó gera varlega, þar sem með tilliti til þess þegnskapar, sem ríkjandi er, bæði hér og annars staðar gagnvart skattayfirvöldum eigin lands, er ekki hægt að krefjast allt of mikils þegnskapar gagnvart skattayfirvöldum annarra landa. Slík verzlun með ferðamannagjaldeyri á svörtum markaði er landinu til mikils vansa og álitshnekkis, en auk þess má nefna, að ástandið, eins og það er í þessum málum, skapar líka jarðveg fyrir ólöglega gjaldeyrisverzlun með íslenzka peninga á erlendum vettvangi, sem einnig getur orðið til þess að baka landinu mikið tjón og álitshnekki.
Ég vil leyfa mér að benda á það, því að þær raddir kunna að koma fram frá einhverjum, sem ef til vill hafa ekki hugsað þessi mál til hlítar, að hér yrði um að ræða spor í áttina til gengislækkunar. En slík skoðun er á algerum misskilningi byggð. Í fyrsta lagi má á það benda, að tiltölulega lítið af gjaldeyrisverzluninni er á skráðu gengi. Á nær allan þann gjaldeyri, sem keyptur er og notaður hér innanlands, kemur annaðhvort yfirfærslugjald eða hærra eða lægra innflutningsgjald, þannig að auðvelt væri að framkvæma þetta, án þess að það þýddi, að verið væri að taka upp neitt nýtt gengi, og koma þar margar leiðir til greina.
Ég vil nefna það, en annars er það atriði, sem auðvitað þarf sérstaklega að athuga, eins og gert er ráð fyrir í till., að sá möguleiki er fyrir hendi, að bankarnir kaupi ferðamannagjaldeyri á svipuðu gengi og slíkur gjaldeyrir er nú seldur íslenzkum ferðamönnum, og með tilliti til þeirrar miklu eftirspurnar, sem er eftir erlendum gjaldeyri af hálfu íslenzkra ferðamanna og gera má ráð fyrir að haldist að verulegu leyti þrátt fyrir þá hækkun, sem orðið hefur á skattinum á slíkum gjaldeyri, þá ætti að vera auðvelt að selja þeim þennan gjaldeyri. En þó að hækkunin á ferðamannagjaldeyrinum til erlendra ferðamanna yrði ekki meiri en þessi, þá yrði það þó veruleg bót frá því, sem nú er.
Einnig má á það benda, að i rauninni væri sú skoðun líka alveg fráleit, ef því væri haldið fram, að það væri spor í áttina til þess að lækka gengið, ef ráðstafanir væru gerðar til þess, að gjaldeyrisverzlunin, sem vitað er að nú fer að mestu fram á svörtum markaði, væri fengin í hendur bönkunum og gæti orðið með löglegu móti.
Þó að ég álíti að vísu, að ráðstafanir í þessu efni mundu verða frekar til aukins jafnvægis en hitt í gjaldeyrisverzluninni, þar sem gera má ráð fyrir því, að með því að búa erlendum ferðamönnum betri kjör mundu slíkar gjaldeyristekjur af ferðamönnum nokkuð vaxa, þá má á það benda, að hið fjárhagslega atriði í þessu sambandi er lítilvægt, því að samkv. skýrslum hagstofunnar frá árinu 1955, — það munu vera nýjustu skýrslur í þessu efni, — námu áætlaðar gjaldeyristekjur af ferðamönnum eitthvað um 2 millj. kr., eða um 0.2% af allri gjaldeyrisverzluninni, svo að hvað þá hlið málsins snertir, þá er hér um mjög lítilvægt atriði að ræða. Hitt skiptir miklu meira máli, að það ófremdarástand, sem ríkjandi er í þessum efnum, er til þess fallið að baka landinu mikinn álitshnekki og tjón.
Ég vil að lokum taka það fram, að það, sem er. aðalatriðið fyrir mér í þessu efni, er, að einhverjar ráðstafanir verði gerðar og það sem fyrst, sem væru til þess fallnar að ráða bót á því ófremdarástandi, sem er í þessum málum. Hitt er aukaatriði í sjálfu sér, hvort sú leið yrði farin, sem á er bent í þáltill. Ég lít enn fremur svo á, að þetta mál sé ekki flokksmál og ætti að vera hafið upp yfir alla togstreitu á milli stjórnmálaflokka.
Við getum deilt um það innbyrðis okkar á milli, hverjir beri sökina á því, sem aflaga fer í okkar efnahagsmálum. Hitt ættum við að geta sameinazt um, að gera þær lagfæringar á þessum málum, sem í sjálfu sér eru lítilvægar, en getur þó varðað sæmd landsins út á við að gerðar séu. Ég tel skylt að geta þess, að í einu stjórnarblaðanna, Tímanum, birtist fyrir skömmu mjög skynsamleg grein um ástandið í þessum efnum og nauðsyn þess að gera eitthvað til úrbóta, og var sú grein m. a: mér aukin hvatning til þess að bera þessa þáltill. fram, sem ég hafði í rauninni haft í huga allt frá því á s.l. hausti, þó að ég teldi ekki tímabært að leggja hana fram fyrr en séð væri, hvaða ráðstafanir yrðu gerðar í efnahagsmálum af hálfu hæstv. ríkisstjórnar.
Ég vil svo að lokum leyfa mér að leggja til, að umr. um þetta mál verði frestað og till. vísað til hv. allshn.