06.02.1957
Sameinað þing: 25. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í D-deild Alþingistíðinda. (2705)
95. mál, ferðamannagjaldeyrir
Flm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Það er aðeins örstutt athugasemd, sem ég vil gera, en annars vildi ég lýsa ánægju minni yfir því, hve hæstv. menntmrh. hefur í rauninni tekið þessari þáltill. vinsamlega.
Varðandi þær leiðir, sem kæmu til greina til þess að afla fjár til þess, sem hér er um að ræða, án þess að út í það þyrfti að fara að leggja þetta á nauðsynjavöru, þannig að af kynni að leiða verðhækkanir í landinu, vil ég fyrir það fyrsta nefna það, að ég hafði gert ráð fyrir því, að það yrði hlutverk n. að fjalla um það mál. En í minni fyrri ræðu impraði ég á þeim möguleika, að sá gjaldeyrir, sem bankarnir keyptu þannig á hærra gengi, yrði seldur íslenzkum ferðamönnum, því að vitað er, að eins og nú er fer því mjög fjarri, að hægt sé að fullnægja eftirspurn íslenzkra ferðamanna eftir erlendum gjaldeyri. Væri sú leið t.d. valin, þá ætti að vera hægt að framkvæma þetta, án þess að það hefði neina tilhneigingu til verðhækkunar í för með sér, og ef árangur þessa yrði sá, að meiri gjaldeyristekjur kæmu inn, þá hafa bankarnir einmitt meiri gjaldeyri til þess að selja á lægra genginu, þannig að áhrifin ættu þá frekar, að því leyti sem þeirra gætir, að verða til lækkunar. En hér er auðvitað ekki um þýðingarmikinn lið í gjaldeyrisverzluninni að ræða, en að því leyti sem áhrifanna gætir, þá ættu þau, ef skynsamlega er á málunum haldið, frekar að vera til verðlækkunar.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um þetta að sinni, en auðvitað er þetta aðeins ábending. Ég hugsaði mér, að það yrði hlutverk þessarar nefndar að athuga einmitt sérstaklega það mál, hvaða leiðir þarna koma til greina.