06.03.1957
Sameinað þing: 44. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (2711)
113. mál, verndun fiskimiða umhverfis Ísland
Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Ég vildi, í sambandi við þá þáltill., sem hér liggur fyrir til umr. frá hv. þm. Borgf., geta þess, að mál þetta er nú í undirbúningi hjá ríkisstj., og er nú unnið að því að koma því þannig áleiðis, að hægt verði síðan, áður en langt líður, að taka afstöðu til þess, sem rétt þykir að gera í málinu.
Eins og hér hefur verið minnzt á og öllum hv. alþm. er kunnugt, er stutt síðan haldin var hér í Reykjavík ráðstefna með fulltrúum utan af landi um landhelgismálið. Á þessari ráðstefnu komu fram ýmsar mjög gagnlegar upplýsingar um skoðanir manna víða um landið á því, hvernig æskilegast væri að standa að nýjum breytingum í þessum efnum. Till. þeirra hafa nú verið fullmótaðar og lagðar fram og eru til athugunar hjá þeim, sem bezt þekkja til í þessum málum, og verður nú reynt að samræma þar sjónarmið manna. Ég tel því, að nú sé unnið að málinu á eðlilegan hátt, en hins vegar sé því ekki komið svo langt áleiðis, að það sé tími til þess að ræða hér á Alþingi nákvæmlega um það, hvernig rétt sé að ganga frá tillögunum.
Ég get tekið undir þau ummæli, sem hér komu fram hjá hv. þm. Borgf., varðandi nauðsyn þessa máls. Ég er honum þar algerlega sammála og tel, að þessi till. hans sé flutt af eðlilegum ástæðum og málinu til gagns. Till. verður að sjálfsögðu tekin til athugunar í nefnd, og fær þá sú nefnd aðstöðu til þess að kynna sér nánar þann undirbúning, sem nú er í gangi hjá ríkisstj. í sambandi við framvindu þessa máls.