27.02.1957
Sameinað þing: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (2724)

122. mál, fiskileitarskip

Flm. (Ásgeir Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ísaf. (KJJ) fyrir þær undirtektir, sem komu fram frá honum við þessa till., og ég vil geta þess, að það er að sjálfsögðu athugunarefni fyrir n., hvort hún vill að einhverju leyti breyta því formi, sem er á till., og taka aðra í staðinn fyrir L.Í.Ú., sem þarna er um talað. En mér skilst, að þegar talað er um fiskileitarskip, þá sé verið að leita einnig fyrir línuveiðarana, því að það er vitað um t.d. Norðmenn, að þeir senda sín línuveiðiskip til Grænlands, og það er því full þörf að leita jafnvel einnig fyrir línuveiðiskipin, svo að Landssambandið gæti vel komið þarna inn sem aðili. En ef það er álit n. eða hins háa Alþ., að það væri heppilegra, að það væru botnvörpuskipaeigendur, sem væru þarna taldir sem útgerðarmenn, með og í samráði við vísindastofnanir háskólans, þá er það að sjálfsögðu vel séð af mér.