10.04.1957
Sameinað þing: 50. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í D-deild Alþingistíðinda. (2729)

151. mál, lífeyrissjóður fyrir sjómenn

Flm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Við hv. 10. landsk. (PP) og hv. 5. landsk. (BG) höfum leyft okkur að flytja hér á þskj. 404 þáltill., sem er svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa milliþinganefnd til þess að athuga möguleika á stofnun lífeyrissjóðs fyrir sjómenn. Nefndin ljúki störfum fyrir næsta reglulegt Alþingi.“

Það er kunnara en frá þurfi að greina fyrir hv. alþm. í sambandi víð þær umr., sem fram hafa farið um skattfríðindi sjómanna, um þá erfiðleika, sem sjávarútvegurinn á í dag við að etja að fá unga menn til þeirra starfa, og ég efast ekki um, að meðal alþm. er ríkur skilningur á, að nauðsyn sé á að koma fram þeim umbótum, sem duga til þess, að ungir menn fái á ný þann áhuga fyrir sjómennsku og sjávarstörfum, sem nauðsynlegur er þjóðinni allri.

Með þáltill. þessari birtum við flm. grein, er Jón Sigurðsson, ritari Sjómannafélags Reykjavíkur, ritaði í Alþýðublaðið 3. apríl s.l., sem er mjög greinagóð og vel fram sett, um nauðsyn þessa máls sem og annarra þeirra lagfæringa, sem hann telur nauðsynlegt frá sjónarmiði sjómanna að fram verði komið, til þess að þessum málum verði komið örugglega í höfn. Ég álít, að það sé því óþarfi á þessu stigi málsins að halda um það lengri eða ýtarlegri ræðu. Svo vel er í þessu fskj. greint frá þeim ástæðum, sem til þessarar till. liggja, og nauðsyn þess, að hún nál fram að ganga. Það er og óþarft að telja öll þau rök upp, sem fram hafa verið færð í sambandi við umr. um skattfríðindi sjómanna, en þau rök gilda að mestu einnig fyrir þessari till., og má þar benda á veigamesta atriðið, sem er sú beiska staðreynd, að á annað þúsund erlendir sjómenn eru nú á íslenzka fiskiskipaflotanum. Það hefur jafnvel verið haft á orði um sum fiskiskipin, sem skráð eru annars frá Íslandi, að það gæti orkað tvímælis, hvort þau mættu veiða í íslenzkri landhelgi, miðað við þá hlutfallaskiptingu, sem er milli innlendra og erlendra sjómanna á mörgum þeirra nú.

Ég tel, að það þurfi ekki frekari skilgreiningu á því, að þennan vanda verðum við að leysa. Það er álit sjómannanna sjálfra og forustumanna þeirra, að stofnun lífeyrissjóðs sé einn þáttur í lausn þessara mála. Ég tel nauðsynlegt, að haft sé náið og gott samráð við samtök sjómanna i samningu slíks frv., og efast ekki um, að ríkisstj. muni sjá svo um, að það verði gert.

Ég óska svo að lokum eftir því, að till. verði vísað til hv. allshn., og vænti þess, að hún sjái svo um, að málið fái endanlega afgreiðslu á þessu þingi.