15.05.1957
Sameinað þing: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í D-deild Alþingistíðinda. (2738)

163. mál, sumarstörf ungmenna á fiskiskipum

Flm. (Gunnlaugur Þórðarson):

Herra forseti. Á þskj. 484 flytjum við 10. landsk. (BrS) till. til þál. um sumarstörf ungmenna á fiskiskipum. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því við stjórnendur útgerðarfyrirtækja, sem fengið hafa ríkisábyrgð fyrir lánum eða lán til togarakaupa, að skráðir verði á skipin sem hásetar a.m.k. 2–3 unglingar á aldrinum 14–16 ára þrjá til fjóra sumarmánuði ár hvert. Einhver þar til hæfur skipverji skal síðan bera ábyrgð á því, að ungmennin fái tilsögn í algengri sjóvinnu, hreinlæti og snyrtilegri umgengni um borð. Skulu útgerðarstjórnir senda atvinnumálaráðuneytinu á hverju hausti skýrslu um ungmenni þau, sem verið hafa hásetar á vegum útgerðarinnar.“

Till. fylgir allýtarleg grg., þar sem leitazt er við að færa rök fyrir nauðsyn þessa máls, og leyfi ég mér að vísa til hennar, en vil þó ítreka sum atriði og útlista nánar.

Það mun vera ástæðulaust að eyða mörgum orðum að því, hve Íslendingum er brýn nauðsyn á því að hafa jafnan á að skipa dugmikilli sjómannastétt, sem er vel verki farin og hefur menntazt til sinna starfa svo vel sem unnt er. Hér á ég ekki við það, að sjómennirnir hljóti einungis bókfræðslu í því, er lýtur að starfi þeirra, heldur á ég öllu fremur við þá verkmenningu, sem er í því fólgin að ná fullkomnum tökum á starfi sínu og finna til vegsauka af því að gegna því.

Þannig var viðhorf gömlu sjómannanna til starfs síns, og þeim fannst vegsemd í því að vera sjómenn. Sú tilfinning og sú afstaða hefur lengi lifað með íslenzkri sjómannastétt, og þess vegna er lagt til í till., að unglingum verði gefinn kostur á því að ráðast í skiprúm og fá þar tilsögn hjá þeim mönnum, sem eru tengiliður milli gömlu sjómannastéttarinnar og nýju kynslóðarinnar, sem er að vaxa upp.

Undanfarin ár hefur það verið þjóðinni sívaxandi áhyggjuefni, að hinar löngu skólasetur og einhliða bóklega kennsla hefur fremur beint hugum ungu kynslóðarinnar frá útvegi og landbúnaði og að of margir hneigist að verzlunarstörfum, skrifstofustörfum og öðrum slíkum, sem ekki útheimta líkamlega áreynslu. Og vist er um það, að þeir menn, sem telja, að í fræðslukerfi okkar sé um of lögð áherzla á bókvísi. hafa nokkuð til síns máls.

Augljóst er, að þeir, sem hafa komið inn ákvæðum um verklegt nám í fræðslukerfið, hafa haft þessi sannindi í huga. Þau ákvæði eru þó enn lítt komin til framkvæmda, og raunar er framkvæmd þeirra ýmsum erfiðleikum bundin. Hins vegar er möguleiki á því að láta ungmenni njóta verklegrar fræðslu á þann hátt, sem lagt er til í till., um leið og þau afla verðmæta í þjóðarbúið.

Allt fram á síðustu tíma var það altítt, að æskumenn, sem ólust upp við sjávarsíðuna og hugðust gera sjómennsku að ævistarfi sínu, byrjuðu þegar á unga aldri að taka þátt í störfum hinna fullorðnu og læra af þeim. Og jafnvel þeir, sem ekki hugðust gera sjómennsku að ævistarfi, en höfðu samt einnig fullan hug á því að komast í beina snertingu við þau störf, vildu gjarnan komast í skiprúm, en gátu það ekki, vegna þess að útvegsmenn hafa fremur kosið að hafa vana skipverja.

Ég minnist þess er ég sjálfur var ungur í skóla, að þá dreymdi mig um að komast í skiprúm, en þá voru erfiðir tímar og slegizt um hvert hásetapláss. Þá voru það einungis þeir, sem áttu vildarvini meðal útgerðarmanna, sem gátu verið svo heppnir að fá pláss á togara. Og ég reikna mér það til skorts á lífsreynslu og þekkingu, að ég skuli aldrei hafa verið háseti á togara, þótt ég hafi kynnzt ýmsum störfum, sem hér eru leyst af hendi.

En enda þótt útvegsmenn hafi sumir eða margir hverjir hliðrað sér hjá því að ráða unga menn í skiprúm, þá hafa þó einstaka útgerðarfyrirtæki sýnt skilning á þessu máli og greitt fyrir því, að ungir menn kæmust á togara. En það er ekki nóg, að einstaka útgerðarfyrirtæki leyfi ungum mönnum að skrá sig í skiprúm. Það verður að búa þannig um hnútana, að æskumenn geti átt vísan aðgang að því að komast á togara, og ekki aðeins, að þeir geti fengið skiprúm á togurum, heldur einnig. að þeim sé séð fyrir nokkurri tilsögn, t.d. í því að ganga snyrtilega um á skipum, því að ef menn læra snyrtimennsku í starfi, þá meta þeir starf sitt því meir.

En ekki er minna um það vert, að þeim sé séð fyrir tilsögn í algengri sjóvinnu. Með því að láta eldri sjómenn kenna þeim ungu sjóvinnu og hreinlæti um borð er málum bezt borgið. og á þann hátt væri e.t.v. hægt að girða fyrir það, að við þurfum í framtíðinni að sækja til annarra landa áhafnir á skip okkar.

Í lok grg. er vikið að því, að ein mesta siglingaþjóð heims hafi þann hátt á að láta unga menn læra til sjómennsku á skipunum, en það eru einmitt Bretar. sem hafa áratugum saman beitt þessari aðferð, enda má hverjum manni, sem íhugar þessi mál, vera ljóst. að reynslan er bezti skólinn, og ef ungum mönnum er gefinn kostur á því að kynnast sjómennskunni, þá vex áreiðanlega áhugi þeirra á henni og fleiri og fleiri ráðast til sjómennsku. Hins vegar má það einnig vera hverjum manni augljóst, að það er vægast sagt ósennilegt, að íslenzka þjóðin hafi efni á því að reka skólaskip.

Þó vil ég ekki fullyrða neitt um gagnsemi skólaskips að svo stöddu, en þess skal aðeins getið, að sama dag og till. þessi var borin fram á Alþ. birtist í blaði hér í bænum, Morgunblaðinu, grein eftir Finnboga Guðmundsson útgerðarmann, sem bar heitið „Hugleiðing um nokkur vandamál sjávarútvegsins“. Þar var drepið á skort á fiskimönnum og þau vandamál, sem af því stöfuðu, en samkv. því, sem Finnbogi Guðmundsson hefur sagt mér sjálfur frá, þá var felld niður úr greininni eftirfarandi setning: „Hugmyndin um skólaskip fyrir fiskimenn, sem komin er fram á Alþingi, er ekki líkleg til að gera mikið gagn.“ Samkvæmt því, sem fyrr segir, féll þetta niður úr grein blaðsins, hvernig sem á því stóð. Í greininni heldur hann síðan áfram, og sú setning fékk þó að standa í blaðinu óátalið: „Verknámið til fiskveiða verður að fara fram við fiskveiðarnar sjálfar á fiskiskipunum“. Síðar segir í sömu grein, að hann telji heppilegt, að 2–3 æskumenn verði ráðnir sem hásetar á hvert skip og fái tilsögn í sjómennsku.

Ég vil ekki hafa þessi orð fleiri, en vil að endingu leggja til, að þessu máli verði vísað til allshn. og umr. frestað.