21.12.1956
Neðri deild: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2415 í B-deild Alþingistíðinda. (276)

Þinghlé

forseti (EOl):

Það hefur verið gert ráð fyrir því, að þinghlé muni nú hefjast, og mun hæstv. forseti Sþ. á morgun tilkynna nánar um það. En svo fremi að eigi verði gerðar breytingar á því frv. um útflutningssjóð, sem nú liggur fyrir hv. Ed., verður þetta síðasti fundur þessarar hv. deildar fyrir jólaleyfi þm. Verði hins vegar gerð breyting á því frv., munum við verða að kalla saman fund að nýju í þessari deild, og vil ég hafa þann fyrirvara á.

En verði þetta okkar síðasti fundur fyrir jólaleyfið, vil ég leyfa mér að óska öllum hv. þdm. og hæstv. ríkisstj. gleðilegra jóla, góðs nýárs og þakka þeim fyrir samstarfið við mig á þessu liðna ári og það umburðarlyndi, sem þeir hafa sýnt mér.

Ég vil um leið óska starfsfólki þingsins gleðilegra jóla.

Ég vil sérstaklega óska þeim hv. þdm., sem fara nú langa vegu heim til sín, góðrar heimkomu og að við megum allir sjást hér aftur heilir á hinu nýja ári.