07.11.1956
Sameinað þing: 6. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í D-deild Alþingistíðinda. (2783)

28. mál, endurskoðun laga um atvinnu við siglingar á íslenskum skipum

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Samkv. þáltill. þeirri, er hv. fyrirspyrjandi ræddi um, var hinn 5. júlí þessa árs skipuð af samgmrn. þriggja manna n. til þess að endurskoða lög nr. 66 frá 17. júlí 1946, um atvinnu við siglingar á íslenzkum skipum, að því er til skipstjórnarmanna tekur, og einnig lög nr. 5 frá 14. marz 1955, um stýrimannaskólann í Reykjavík, með sérstöku tilliti til þess, hverra breytinga sé þörf á þessum lögum vegna þróunar síðari ára í siglinga- og fiskveiðamálum landsmanna. Enn fremur skyldi n. athuga, hvernig unnt sé á sem hagkvæmastan hátt að auðvelda mönnum aðgang að hæfilegu námi, sem veitir réttindi til skipstjórnar á stærri vélbátum. Þetta var allt tekið fram í skipunarbréfinu i samræmi við þáltill., sem hér er um að ræða.

Í n. voru skipaðir Friðrik Ólafsson skólastjóri stýrimannaskólans sem formaður hennar og með honum þeir Einar Thoroddsen hafnsögumaður og Magnús Torfason prófessor.

Menntmrh. hafði þann 7. maí þetta ár skipað aðra n. til þess að endurskoða lög og reglugerðir varðandi vélfræðikennslu hér á landi, og eru í þeirri n. þeir Þórður Runólfsson öryggismálastjóri, formaður hennar, og með honum Davíð Ólafsson fiskimálastjóri og Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri.

Í skipunarbréfi þeirrar n., sem samgmrn. skipaði, var tekið fram, að það væri æskilegt að báðar n. gætu að loknu starfi lagt fram sameiginlegt frv. til laga um atvinnu við siglingar.

Vegna fsp. hefur samgmrn. spurzt fyrir um það, hvað störfum þessara nefnda liði, og hefur Friðrík Ólafsson skólastjóri skýrt svo frá störfum þeirrar n., sem hann er formaður fyrir:

„Nefndin hefur haldið nokkra fundi og er nú langt komin að endurskoða lögin um atvinnu við siglingar að því er tekur til réttinda skipstjórnarmanna. Einnig hefur hún samið drög að samsvarandi breytingum á lögum um stýrimannaskólann í Reykjavík og mun væntanlega geta lokið þessum störfum innan skamms.“

Við skipun þessarar n. taldi rn. æskilegt, að hún gengi að lokum frá frv. til laga um atvinnu við siglingar í samráði við n. þá, sem menntmrh. skipaði til að endurskoða og gera breyt. við lög og reglur varðandi nám og réttindi vélstjóra við mótor- og gufuvélar. Formaður þeirrar n. hefur tjáð mér, að störfum hennar sé ekki það langt komið, að unnt sé að ganga sameiginlega frá frv. að svo komnu. Formaður hinnar nefndarinnar, þeirrar sem menntmrh. skipaði, Þórður Runólfsson öryggismálastjóri, segir svo frá um störf þeirrar nefndar:

„Út af fyrirspurn yðar, herra sjávarútvegsmálaráðherra, varðandi það,“ þessu var beint til sjútvmrh., en það hefur orðið samkomulag um, að ég svaraði þessu hvoru tveggja, — „hvað líður störfum nefndar þeirrar, sem menntamálaráðherra skipaði á s.l. vori til þess að endurskoða lög og reglugerðir um vélfræðikennslu hér á landi, vil ég gefa eftirfarandi upplýsingar:

Fram til þessa hefur starf nefndarinnar verið í því fólgið að afla laga og gagna varðandi fyrirkomulag vélfræðikennslu og hagnýtingu hennar í nágrannalöndunum, og er nú nefndin að kynna sér þessi gögn. Að þessu loknu getur nefndin fyrst byrjað á hinu eiginlega verki, þ.e. endurskoðun laganna, en það mun verða gert nú á næstunni. En fyrr en nefndin hefur að fullu gert sér ljóst, hvernig hún teldi heppilegast, að kennslu og prófkröfum verði hagað, getur hún ekki gert tillögur um breytingu á lögum varðandi atvinnu vélstjóra við siglingar.“

Í viðtali hefur formaðurinn, Þórður Runólfsson, upplýst, að enda þótt n. taki nú til starfa af fullum krafti, þá væri samt vafasamt, hvort álit hennar gæti legið fyrir á þessu ári. Í skipunarbréfi hennar mun ekki hafa verið tiltekið, hvenær álits væri óskað frá n., en í skipunarbréfi hinnar n., varðandi skipstjórnarmennina, var tekið fram, að óskað væri eftir, að störfum hennar lyki svo fljótt, að unnt væri að leggja niðurstöður hennar og tillögur til lagabreytinga fyrir næsta reglulegt Alþingi. En þess hafði einnig verið óskað i þáltill.

Ég skal að lokum geta þess, að það hefur verið rætt við báða formenn þessara nefnda og áherzla verið lögð á það við þá, að nefndarstörfum gæti lokið sem allra fyrst.