27.02.1957
Sameinað þing: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í D-deild Alþingistíðinda. (2854)

110. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum

Fyrirspyrjandi (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Þann 22. marz 1956 var samþ. hér á Alþ. svo hljóðandi ályktun, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa fimm manna nefnd eftir tillögum Háskóla Íslands, Alþýðusambands Íslands, Stéttarsambands bænda, Landssambands íslenzkra útvegsmanna og Iðnaðarmálastofnunar Íslands, er tilnefna sinn manninn hver, til þess að kanna, hversu bezt verði komið við aukinni fræðslu fyrir almenning í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum, svo sem um ýmsa þætti þjóðskipulags-, efnahags-, félags- og verkalýðsmála. Nefndin athugi, hvort námskeiðum um þessi efni verði komið við á vegum Háskóla Íslands. Nefndin kýs sér formann. Kostnaður við nefndina greiðist úr ríkissjóði.“

Ég hef leyft mér að bera fram fsp. um það, hvað líði störfum þessarar n., og leyfi ég mér að vænta þess, að sá hæstv. ráðh., sem þetta heyrir undir, sem mér skilst að sé menntmrh., geti upplýst Alþingi um það, hvar er komið þeirri athugun, sem ákveðið var að hér skyldi fara fram, og hvað yfirleitt líður störfum þeirrar nefndar, sem gert var ráð fyrir að setja á stofn samkvæmt þessari ályktun.