27.02.1957
Sameinað þing: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í D-deild Alþingistíðinda. (2855)

110. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Með bréfi, dags. 4. apríl 1956, sendi Alþ. menntmrn. þá þingsályktun, sem hv. 2. þm. Eyf. las í ræðu sinni áðan. Ráðuneytið skrifaði síðan hinn 15. júní s.l. þeim aðilum, sem tilnefna eiga menn í nefndina, sem ályktunin gerir ráð fyrir, og bað um tilnefningu þessara aðila.

Á s.l. sumri og hausti komu tilnefningar frá Iðnaðarmálastofnun Íslands, sem tilnefndi Pál S. Pálsson, frá Alþýðusambandi Íslands, sem tilnefndi Hannibal Valdimarsson, frá Háskóla Íslands, sem tilnefndi Theódór B. Líndal, og frá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, sem tilnefndi Finnboga Guðmundsson. Tilnefning frá Stéttarsambandi bænda hefur ekki borizt enn, en eftirgrennslan hefur leitt í ljós, að von muni vera á tilnefningu frá Stéttarsambandinu nú eftir næstu helgi á fundi, sem stjórnin mun halda þá.

Þegar allir aðilar hafa tilnefnt í nefndina, mun ég sjá svo um, að hún taki þegar til starfa og ljúki störfum sínum svo fljótt sem verða má.