27.02.1957
Sameinað þing: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í D-deild Alþingistíðinda. (2856)

110. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vona, að ég hafi ekki smitast svo af þessum síðasta hv. ræðumanni (IngJ) eða öðrum, sem ég hef haft samband við á undanförnum árum, að það sé ekki eftir í mér eitthvað af framsóknarmanninum og það verði lengst af.

Ég skal ekki þreyta þessa kappræðu miklu lengur, en ég vil bara út af því, sem hv. þm. sagði núna síðast, að Verzlunarfélagið hafi rækt sérleyfið með því að fela Brandi Stefánssyni ferðirnar, að það, sem gerðist, var það, að Verzlunarfélagið fól Brandi Stefánssyni að vísu ferðirnar, en síðan voru þær felldar niður. Þetta getur maður kallað frammistöðu. Það er ekki að furða, þótt menn sakni þess, þegar svona þjónusta fellur niður. Það hlýtur að vera héraðsbrestur og ofsaleg reiði á hendur þeirra manna, sem standa fyrir því, að svona þjónusta falli niður, sem var fólgin í því, að Verzlunarfélagið fól öðrum manni að fara ferðirnar, sem síðan felldi þær hreinlega niður. Það var ekki einkennilegt, og það má náttúrlega við ýmsu búast. Ég mun eiga von á góðu samkvæmt því, sem hér er upplýst. En þannig var þetta, að ferðirnar voru aldrei ræktar, og það rétta í þessu er, að það verða fleiri ferðir nú framvegis en verið hafa og meiri þjónusta. Hér þarf því enginn neins í að missa. Þeir hafa verið að tala um það hér, þessir hv. þm., að ég hafi misnotað vald mitt. Ég segi hiklaust, að ég hefði níðzt á því valdi, sem mér hefur verið veitt, ef ég hefði eftir þessa frammistöðu pínt þetta félag inn á leiðina. Þá hefði ég að mínum dómi hiklaust misnotað það vald, sem mér var falið í þessum málum, því að félagið átti engan rétt á því að vera þar með eins og það hafði komið fram.