06.03.1957
Sameinað þing: 44. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í D-deild Alþingistíðinda. (2875)
120. mál, álitsgerðir um efnahagsmál
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Þessar umr. eru sannast sagt orðnar mjög fróðlegar og ekki sízt um sálarástand hæstv. menntmrh., og það er mjög ánægjulegt, hversu hann er ánægður með sinn eigin fróðleik, hagfræðivizku og menntunarhroka, vegna þess að það er sjaldgæft að heyra annað eins og hér hefur komið fram í hans tali um það. En það veitir ekki af, að hann sé ánægður sjálfur, af því að ég er hræddur um, að þeir séu færri, sem eru jafnánægðir með hann, af þeim, sem hingað til hafa verið hans stuðningsmenn. En ég ætla nú ekki að ræða um það hér, heldur sérstaklega vekja athygli á því, að við höfum þó fengið eina upplýsingu, sem er ákaflega mikilsverð, eftir allar þessar umræður, og það er það aleina, sem við fáum upplýst af því, sem hagfræðingarnir sögðu, þessir stórmerku sérfræðingar, sem hingað voru kvaddir til landsins, að það gat ekki farið fram hjá þeim, að hér var verðbólga. Þetta er sú upplýsing, sem hæstv. menntmrh. leyfir sér að koma með og segja: Það gat vitanlega ekki farið fram hjá hagfræðingunum, að hér var verðbólga. Ja, það þurfti að sækja mann til útlanda til þess að upplýsa Íslendinga um slíkt.