15.05.1957
Sameinað þing: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í D-deild Alþingistíðinda. (2882)

166. mál, sérleyfi til fólksflutninga með bifreiðum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er sannast, að þessi rakalausa þvæla hv. þm. V-Sk. er ekki svaraverð. Ég vil þó segja örfá orð út af fúkyrðum þeim, sem hann lét frá sér fara.

Hann segir, að svar mitt við síðari spurningunni sýni, að þetta hafi verið pólitísk ofsókn, Af því að ég sagði, að þetta hafi verið í eina skiptið, sem ég hefði gengið á móti till. sérleyfisnefndarinnar, þá segir hann, að hlutdrægni sé auðsæ.

Ég fullyrði, að það er ekki til nein hliðstæð frammistaða hjá nokkrum sérleyfishafa við frammistöðu Verzlunarfélags Vestur-Skaftfellinga. Ég fullyrði, að það sé einsdæmi, að þannig hafi verið farið að sem félagið leyfði sér, og þess vegna vísa ég þessum fullyrðingum algerlega heim til föðurhúsanna.

Þá sagði hv. þm. V-Sk., að það væri búið að eyðileggja löggjöfina í framkvæmd, þar sem ráðh. færi ekki eftir því, sem n. leggur til. Ráðh. er ekki bundinn við að fara eftir því, sem n. leggur til. N. hefur tillögurétt, og hefur því hér að öllu leyti verið farið eftir lögunum.

Þá var hv. þm. hér af miklum æsingi að tala um þjónustu, sem hefði verið innt af hendi, misbeiting valds og pólitíska ofsókn og ósanngirni, sem hefði verið sýnd Verzlunarfélaginu. Ég ætla, að allir hv. þm. hafi áttað sig á því, að það, sem hér gerðist, var í raun og veru það, að Verzlunarfélagið afsalaði sér hreint og klárt sérleyfinu yfir til Brands Stefánssonar. Það var það, sem það gerði. Það afsalaði sér hreinlega sérleyfinu yfir til Brands Stefánssonar, en síðan féll þessi þjónusta, sem hann er að tala um að hafi verið innt af hendi í þágu Skaftfellinga, algerlega niður. Ferðirnar voru ekki farnar. Félagið afsalaði sér sérleyfinu til Brands Stefánssonar, en síðan féllu allar ferðir niður, og sérleyfið var þess vegna í raun og veru aldrei rækt, enda sjáum við það bezt á því, að félagið átti ekki einu sinni bifreið til þess að annast þessar ferðir, sem því hafði verið trúað fyrir. Svo þegar annar sérleyfishafi kemur, þá rýkur félagið upp til handa og fóta og telur sig vilja fara að rækja ferðir. En þá hafði það bara engan rétt eins og komið var. Það hafði engan rétt, vegna þess að það hafði í raun og veru aldrei verið sérleyfishafi nema að forminu til, eins og hér hefur verið fullkomlega upplýst. Ég vísa þess vegna gersamlega á bug öllum fúkyrðum og ádeilum hv. þm. V-Sk. í þessu og fullyrði, að farið hefur verið eftir algerlega réttri og eðlilegri leið í þessu máli.