15.05.1957
Sameinað þing: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í D-deild Alþingistíðinda. (2884)

166. mál, sérleyfi til fólksflutninga með bifreiðum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég held satt að segja, að það hefði orðið þessum hv. þm. (IngJ) minnst til skammar, ef hann hefði haft vit á því að láta þm. V-Sk. einan um þetta. Ég held hann eigi alveg nóg með sín mál, þótt hann sé ekki að skipta sér af vandræðamálum hv. þm. V-Sk. Ég býst við, að hv. þm. Rang. hafi alveg nóg á sinni samvizku og nóg við að fást, þótt hann sé ekki að grípa fram í þetta, enda er frammistaðan öll eftir því.

Hann sagði, að það væru sérstök þægindi fyrir fólkið, að kaupfélögin hefðu sérleyfi. Ef það eru sérstök þægindi fyrir fólkið, að Verzlunarfélagið hafi sérleyfi, hvers vegna rækti þá ekki Verzlunarfélagið sérleyfið, þegar það hafði það. Hvers vegna var það þá aðeins leppur, og hvers vegna sveikst það um það, sem það átti að gera? Hvar var fólkið þá? Hvar voru hagsmunir Skaftfellinga? Hvers vegna afhenti það þá fyrst þessar ferðir að nafninu til yfir til annarra, og hvers vegna voru þær síðar alveg felldar niður, gersamlega felldar niður? Það þýðir ekkert að bjóða mönnum upp á svona röksemdafærslu, ef hægt er að kalla þetta því nafni, þetta klór þessara hv. þm.

Ég sagði hér áðan, að það, sem skeð hefði, væri, að Verzlunarfélagið hefði afsalað sér sérleyfinu yfir til Brands Stefánssonar, en hv. 1. þm. Rang. sagði, að þetta væri ekki rétt lýsing á málinu, og ég fellst á það. Hún er ekki rétt, vegna þess að það, sem raunverulega gerðist, var ekki það, að það afsalaði sér sérleyfinu, heldur hitt, að það var svikizt um, þessar ferðir voru aldrei farnar. Sérleyfisleiðin var aldrei rækt. Það var það, sem gerðist. Fyrst voru ferðirnar að nafninu til færðar yfir á Brand Stefánsson, og þannig gekk örlítill hluti þeirra um skeið, síðan voru ferðirnar algerlega felldar niður og sérleyfið varð ekkert nema nafnið. Þjónustan var engin. Það vottaði ekki fyrir því, að þetta félag reyndi að halda uppi nokkurri þjónustu fyrir fólkið. Það átti ekki einu sinni bíl, sem hugsanlegt var að fara á slíkar ferðir.

Svo leyfa þessir hv. þm. sér að koma hér, ausa hér fúkyrðum og tala um pólitíska misnotkun og annað eftir því, þó að það sé ekki hlaupið upp til handa og fóta til þess að veita þessu félagi nýtt sérleyfi, eftir að það hafði kastað niður því sérleyfi, sem það hafði fengið, ekkert hugsað um skyldur sínar á nokkurn hátt, en kastað málinu algerlega frá sér.

Ég segi: Það hefði verið undarleg afgreiðsla, miðað við þá reynslu, sem á þessari leið var orðin um möguleikana á því að halda uppi nægilega mörgum ferðum, ef það hefði nú átt að fara að veita Verzlunarfélaginu nýtt sérleyfi. Sannleikurinn er sá, eins og mun hafa komið mjög greinilega fram hjá þeim mikla dugnaðarmanni, Brandi Stefánssyni, að það er mjög erfitt og var erfitt að fá þessa leið til að bera sig, einmitt vegna þess, að flutningamagnið var tæplega nógu mikið. Þess vegna varð að fækka ferðunum. Núverandi sérleyfishafi ætlar að halda uppi fleiri ferðum en áður voru farnar, og þess vegna verður meiri þjónusta við þá, sem hér eiga hlut að máli, en áður hefur átt sér stað, því að það er víst engin ástæða til þess að halda, að sá sérleyfishafi, sem nú hefur þessi mál með höndum, svikist um á sama hátt og það félag gerði, sem þessir hv. þm. virðast bera svo mjög fyrir brjósti, sjálfsagt ekki af pólitískum ástæðum. Það er svo sem auðvitað. Ekki dettur þeim i hug, þessum þm., að hafa áhuga fyrir þessu af pólitískum ástæðum? Það er víst eitthvað allt annað, sem þar kemur til greina, en pólitískt. Það er bara Eysteinn og svoleiðis menn, sem hugsa um pólitík eða gera eitthvað eftir pólitískum hugsanagangi. Þessum mönnum dettur auðvitað ekki pólitík í hug? Nei, nei, það er af og frá.