04.03.1957
Neðri deild: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (2954)

60. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Það er aðalatriði frv., sem hér liggur fyrir, að sett verði ákvæði í skattalögin um, að veltuútsvar og eignarútsvar, sem greitt hefur verið, megi draga frá tekjum, áður en skattur er reiknaður af þeim.

Hér er hreyft við máli, sem þarf að finna lausn á, en er vandasamt viðfangs. Um það var allmikið rætt í skattamálanefndinni, sem vann að undirbúningi skattalaganna, er sett voru 1954, án þess að athuganir nefndarinnar leiddu til lausnar á málinu.

Fjhn. hefur skilað áliti um frv., og er það á þskj. 281. Eins og þar kemur fram, lítur nefndin svo á, að þörf sé breytinga á því ástandi, sem nú ríkir í þessum efnum, en nefndin telur ekki fært það eitt að gera veltuútsvörin frádráttarhæf við skattaálagningu, heldur þurfi víðtækari ákvarðanir jafnframt viðkomandi þeim gjöldum, ef bæjar- og sveitarfélögum verður á annað borð leyft að afla tekna með þeim hætti eftirleiðis.

Það er því till. nefndarinnar, að þessu vandamáli verði vísað til hæstv. ríkisstj. með tilmælum um, að hún láti fara fram athugun á því til undirbúnings löggjöf, sem þörf er að setja um málið.