29.05.1957
Neðri deild: 117. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2418 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

Starfslok deilda

forseti (EOl):

Þá er dagskrá þessa fundar lokið, og ef ekkert sérstakt kemur fyrir, er þetta síðasti fundur í þessari hv. d. á þessu þingi.

Ég vil leyfa mér, þegar við nú skiljum, að óska öllum hv. þm., sem brott fara, góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og að við allir megum sjást hér aftur heilir, þegar þing kemur saman að nýju næsta haust.

Ég vil leyfa mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu og samstarf við mig og fyrir það umburðarlyndi, sem þeir hafa sýnt mér óvönum í þessu starfi.

Ég vil svo óska þess, að við megum allir hittast heilir aftur, þegar þing kemur saman. Starfsmönnum þingsins vil ég þakka fyrir samstarfið við þá og óska þeim alls hins bezta.