11.04.1957
Neðri deild: 85. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (3002)

85. mál, heimili fyrir öryrkja vegna geð- og taugasjúkdóma

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka frsm. meiri hl. heilbr.- og félmn. þau vinsamlegu ummæli, sem hann viðhafði um þetta frv., sem hér er til 2. umr. Eins og fram gekk af hans máli, hefur nefndin ekki getað orðið á eitt sátt um afgreiðslu frv. En um efni þess var hins vegar lítill eða enginn ágreiningur í nefndinni. Það hefur nú legið fyrir til athugunar í nefndinni síðan fyrir jól og verið rætt á mörgum fundum nefndarinnar og ekki annars orðið vart en fyllsta stuðnings við það og allir samdóma um, að nauðsyn þess sé mjög aðkallandi, enda leysir þetta frv., ef að lögum verður, tvenns konar vanda í senn, annars vegar stuðlar það að því, að fyrrv. geð- og taugasjúklingar gætu notið starfsorku sinnar betur en nú er, og hins vegar mundi það á hagkvæman og fljótlegan hátt losa sjúkrarými fyrir geð- og taugaveiklað fólk, sem eins og kunnugt er er tilfinnanlegur skortur á í landinu, og með kaupum á húseign, sem rúmaði ekki stærra heimili en fyrir 5–6 menn auk húsmóður eða húsbænda, væri af stað hrundið þessu starfi.

Hér er um að ræða einstaklinga, sem vegna nokkurrar örorku og fjárskorts eiga ekki annarra úrkosta völ en dveljast á sjúkrahúsi langtímum saman. Það væri því ómetanlegt, ef unnt væri að aðstoða þetta fólk til að geta lifað eðlilegu heimilislífi á ný. Í rúm þessa fólks gætu þegar á einu ári komið um það bil 20 manns, þar eð meðaldvalartími sjúklinga á geðveikrahælinu að Kleppi er 3–4 mánuðir. Enn er þess að geta í sambandi við þetta, að bygging húss til þessarar starfsemi frá grunni yrði tæplega ódýrari en sú að kaupa húseign, auk þess sem bygging húss mundi taka langan tíma og þar af leiðandi ekki losa sjúkrarúm nægilega fljótt. Hins vegar er nægilega mikið framboð á húseignum um þessar mundir, til þess að unnt væri að fá viðunandi húsnæði, ef hægt væri að bjóða fram allmikla útborgun.

Á öll þessi rök virtist nefndin geta fallizt. Þess vegna telur minni hl. n. það gersamlega óþarft og aðeins málinu til tafar að vísa því til ríkisstj. Aðalröksemd meiri hl. n. er, að nánari athugun á fjárhags- og rekstrargrundvelli slíkra heimila þurfi að fara fram. En þess konar athugun hefur einmitt og það fyrir alllöngu farið fram, verið gerð af sérfróðum mönnum, nefnd sem Geðverndarfélagið kaus til þessara hluta, og sú nefnd skilaði áliti sínu til félmrn. Þess vegna þótti mér líklegt, að hæstv. heilbrmrh. væri þessu máli kunnugur og þyrfti því ekki að bera því við, eins og hv. frsm. sagði, að um þetta hefðu ekki verið höfð samráð við hann.

Minni hl. n. vill líka benda á, að þeir aðilar, sem þetta mál fengu til umsagnar, en það voru landlæknir og yfirlæknir geðveikraspítalans, voru því mjög hlynntir og lögðu eindregið til, að frv. yrði samþykkt. En þegar sýnt var, að hverju dró í nefndinni með afgreiðslu þessa máls, stungum við í minni hl. upp á því að lækka fjárhæð frv. um allt að því helming, ofan í 500 þús., og jafnvel væri unnt að komast af með ríkisábyrgð á láni til þessara hluta, til þess að hægt væri að hrinda málinu af stað. En þrátt fyrir þetta virtust það vera samantekin ráð fulltrúa stjórnarflokkanna í n. að tefja þetta nauðsynjamál að sinni, og þess vegna leggjum við í minni hl. n. til, að frv. verði samþykkt nú þegar, og munum skila um það sérstöku nál. [sjá þskj. 438].