28.03.1957
Efri deild: 78. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (3005)
141. mál, sjúkrahúsasjóður og talnahappdrætti
Flm. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram frv., sem prentað er á þskj. 375 og hér liggur fyrir. Frv. er um sjúkrahúsasjóð og heimild fyrir ríkisstj. til þess að setja á stofn talnahappdrætti.
Frv. samhljóða þessu var borið fram á síðasta þingi sem stjórnarfrv. að tilhlutan þáv. heilbrmrh., Ingólfs Jónssonar, en náði þá ekki fram að ganga.
Samkv. frv. skal stofna sjóð, sem nefnist sjúkrahúsasjóður, og er það aðaltilgangur og þungamiðja frv. En til að afla þessum sjóði tekna skal heimila ríkisstj. að setja á stofn nýtt getraunahappdrætti, sem nefnist talnahappdrætti. Það skal vera með þeim hætti, að fimm tölur eru dregnar út úr talnaröðinni 1100, mánaðarlega eða sjaldnar, en þátttakendur í happdrættinu gizka á, áður en dráttur fer fram, hverjar tölur muni dragast út eða koma upp. Síðan eru veitt verðlaun fyrir tvær réttar eða þrjár, fjórar eða fimm, mismunandi há verðlaun eftir því hve margar tölur reynast vera réttar hjá þeim sem gizka á. Ráðherra sá, sem fer með heilbrigðismál, setur happdrættinu stjórn og kveður nánar á um störf þess með því að setja reglugerð, með því að ákveða þátttökugjald og fleira, sem þessu viðkemur.
Eftir að sjóður þessi hefur tekið til starfa, skal veita úr honum styrki til þess að reisa ný sjúkrahús og á annan hátt að efla heilbrigðismál og stuðla að framgangi heilbrigðismála landsins, allt eftir ákvörðun heilbrigðis málaráðherra hverju sinni, stjórnar sjóðsins og landlæknis. Þetta er í stuttu máli efni þessa frv.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að mikil þörf er á auknu fé til sjúkrahúsabygginga og heilbrigðismála í landinu. Samkv. núgildandi lögum ber ríkissjóði að greiða 3/5 hluta byggingarkostnaðar fjórðungssjúkrahúsa, 2/5 hluta bæjarfélögum, en öðrum sveitarfélögum 2/3 byggingarkostnaður. En þar sem áhöld og búnaður sjúkrahúsa kostar mikið fé, nær framlag ríkissjóðs ekki þessum hlutföllum, sem lögin tala þarna um. Þeir, sem að byggingunum standa, þ.e. bæjarfélög og sýslufélög, verða því að leggja fram mikið fé til þessara framkvæmda til að standa undir sínum lögskipaða hluta af byggingarkostnaðinum. Við það bætast síðan yfirleitt þeir örðugleikar, sem skapast við það, að ríkissjóður er yfirleitt á eftir tímanum með sín tillög, svo að oft mun það skipta e.t.v. milljónum, sem ríkissjóður skuldar vegna þessara framkvæmda þeim aðilum, sem standa að byggingu sjúkrahúsanna.
Nú er á ýmsum stöðum hafinn undirbúningur að byggingu nýrra sjúkrahúsa. Á sumum er byrjað og undirbúningur hafinn að byggingu sumra. Allt kallar þetta á aukið fjármagn, ef fram á að ganga. Ég vil í þessu sambandi aðeins minnast á, að undirbúningur er hafinn að byggingu sjúkrahúss á Suðurlandi. Þar hefur verið ákveðið að byggja 30–40 rúma sjúkrahús. Því hefur verið valinn staður, lóð fengin og hún undirbúin. Þá hefur verið gerð teikning að byggingunum, og ýmis annar undirbúningur hefur farið fram. Fjáröflun er í fullum gangi heima fyrir í héraðinu og mikill áhugi héraðsbúa, að þetta mál nái fram að ganga. En þrátt fyrir þetta allt er sýnt, að ekki verður nema um byrjunarframkvæmdir að ræða, ef ekki fæst meira fé en heima fyrir safnast, til að byrja með. Verður þá sú sama meginregla um þessa byggingu eins og aðrar sjúkrahúsbyggingar okkar á undanförnum árum, að byggt hefur verið i áföngum vegna fjárskorts, svo að bygging stendur yfir í fleiri ár. Gangurinn hefur í mörgum tilfellum verið sá, að fyrst er byggður kjallari, síðan e.t.v. nokkrum árum seinna næsta hæð o.s.frv., og allt hefur þetta gengið seint og illa, en misjafnlega þó eftir því, hvað mikið fé hefur safnazt heima fyrir, hvað þeir, sem að byggingunum standa, hafa verið duglegir að safna fé og fá lán. En þetta hefur orðið allt saman til þess, að byggingar, sem ef til vill hefði verið hægt að ljúka við á einu til tveimur árum, hafa verið í byggingu svo að árum skiptir, allt að tíu árum, og það þarf ekki að lýsa því, hversu óhagkvæmt slíkt er og mikils virði, ef hægt væri að komast fram hjá þessum örðugleikum. Byggingarnar verða margfalt dýrari, og féð, sem til þeirra fer, er arðlaust árum saman.
Þetta ástand þarf að breytast. Það þarf að finna einhverjar leiðir til fjáröflunar og fjárframlaga til sjúkrahúsabygginga, aðrar leiðir en nú eru farnar. Það þarf að vera til fjármagn til þess að reisa byggingarnar í einum áfanga eða á sem allra stytztum tíma. En ég hef ekki trú á, að það megi verða að óbreyttri tilhögun þessara mála. Meðan það ef til vill skiptir nokkrum millj., sem ríkissjóður skuldar sjúkrahúsum, sem þegar eru byggð og eru í byggingu, er ekki hægt að hugsa sér, að hægt sé að fá fé frá ríkissjóði í nýjar byggingar, sem eru að fara á stað. Og þá verður sama sagan, að ríkissjóður greiðir ekki sinn hluta af þeim byggingum, fyrr en skuldir eru á fallnar og e.t.v. orðnar margra ára gamlar. Og alla þá stund mega þeir, sem að byggingunum standa, róa undir miklum skuldum með dýrum og óhagstæðum stuttum lánum.
Það er með þessar staðreyndir fyrir augum, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, er fram borið. Happdrætti eru vinsæl hér á landi sem víða annars staðar. Með því fé, sem hin þrjú stóru happdrætti, sem hér starfa, happdrætti
Háskóla Íslands, S.Í.B.S. og Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, hafa aflað, hafa verið unnin stórvirki. Þessir þrír aðilar hefðu aldrei fengið slíkar fjárhæðir frá ríkissjóði til sinna nauðsynlegu framkvæmda. Þær eru því eingöngu komnar fram vegna stofnunar og starfrækslu happdrætta, sem þessi félög hafa rekið.
Happdrætti það, sem frv. þetta gerir ráð fyrir að stofnað verði, hefur reynzt mjög vel, þar sem það hefur verið sett á stofn. Þátttakan hefur verið mikil, og þótt helming af brúttótekjum þess hafi verið varið til verðlauna, sem greidd hafa verið þátttakendum, hefur ágóðinn reynzt samt sem áður mikill.
Ef svo færi hér, að þetta frv. yrði samþykkt og af starfrækslu þess yrði verulegur ágóði, sem varið yrði til sjúkrahúsabygginga og annarra heilbrigðisráðstafana í okkar landi, er tilgangi þeim, er frv. stefnir að, náð.
Ég vil svo leggja til, herra forseti, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til heilbr.- og félmn.