23.11.1956
Efri deild: 17. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (3063)

30. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Forseti (BSt):

Þegar þessi fundur var settur, vissi formaður fjhn. ekkert um brtt. á þskj. 82, og þó að það mál, sem brtt. á þskj. 78 fjallar um, hafi nokkuð borið á góma í fjhn., hefur þó verið ráðgert að ræða nánar um það einnig, áður en þetta mál yrði útkljáð hér í hv. deild. Það eru því tilmæli formanns fjhn., að umr. sé frestað um sinn, til þess að n. geti athugað þær brtt., sem fram eru komnar, og eins ef fleiri brtt. kynnu fram að koma.