09.05.1957
Efri deild: 96. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (3067)

30. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég er mjög hissa yfir meðferð forseta á þessu máli. Þetta kemur fram sem stjórnarfrv. snemma á þinginu og er sett til þess að reyna að fyrirbyggja, að almannasjóður, sem í eru eilífðarsjóðir, sem ætlað er að vaxtast og notast einhvern tíma í framtíðinni, hækki vexti sína og íþyngi atvinnulífinu, en sem lán út til atvinnulífsins hefur verið veitt úr þessum sjóði. Strax við 1. umr. málsins kom það ákaflega greinilega fram. Við 2. umr. mælti öll nefndin einróma með því, að það yrði samþykkt. Síðar kljúfa tveir nm. sig frá og átta sig á, að ef þetta sé nú, þá sé ekki eins gott fyrir auðmenn að fá að koma fé þarna inn í sjóðinn og geyma það handa sinum börnum á erfðarentu, og þá hlaupa þeir frá sínu nál. og koma með brtt. Þá upplýstist í umræðunum, að í öllum lánsskjölum, sem sjóðurinn hefur gefið út, hefur hann áskilið sér rétt til þess að segja lánunum upp. Og þegar þetta er upplýst og allir vita þetta hér í deildinni, þá er málinu frestað, en tekið fyrir í dag, þegar búið er að segja upp hverju einasta láni til þess að geta rukkað vextina. Þá er það tekið fyrir aftur.

Í hvaða tilgangi á að taka það fyrir núna, það veit ég ekki. Það er búið að segja þeim öllum upp til að geta hækkað vextina. Þess vegna er það bara að leika sér með tíma þingsins að vera að taka málið fyrir núna.