10.05.1957
Efri deild: 97. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í C-deild Alþingistíðinda. (3072)
30. mál, Söfnunarsjóður Íslands
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er æði langt síðan þetta mál kom hér fyrir þangað til í gær, og það hefur sumpart verið fyrir áhrif frá mér. Ég hef verið að hugsa um það, hvort ástæða mundi vera til þess að halda frv. áfram, sumpart vegna þess, að það kom fram dálítill ágreiningur um einstök atriði þess. En eftir nýja athugun á málinu er ég þeirrar skoðunar, að það sé nauðsynlegt fyrir söfnunarsjóðinn að fá þessa löggjöf. Eins og menn vita, er hún um það, að söfnunarsjóðurinn hafi heimild til að taka 7% vexti, en það hefur hann ekki eftir gildandi lögum, en jafnframt er það mín niðurstaða, að það sé þá nauðsynlegt að samþykkja brtt. frá hv. 1. þm. N-M., sem liggur hér fyrir og mönnum er þaulkunnug að efni, og fer ég ekki að ræða hana. Það er sem sé mín uppástunga, að málið verði afgr. frá hv. d. með þeirri breytingu, sem greinir í þessari till. hv. 1. þm. N-M.