13.05.1957
Neðri deild: 96. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (3084)
30. mál, Söfnunarsjóður Íslands
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Samkv. gildandi lögum er söfnunarsjóðnum ekki leyfilegt að taka nema 5% vexti. Eins og vaxtamálum er nú háttað, þykir þetta óeðlilegt, og er því stungið upp á því með þessu frv. að heimila sjóðnum að taka 7% vexti. Er það meira í samræmi við önnur löggjafaratriði um þessi efni. Ég vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.