11.04.1957
Efri deild: 87. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (3094)

117. mál, umferðarlög

Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Allshn. hv. deildar flytur á þskj. 429 brtt. við tvær greinar í frv. til umferðarlaga, sem hér er á dagskrá.

Hin fyrri er við 47. gr., að á tveim stöðum í þeirri gr. verði gerðar orðabreytingar, í stað „fram hjá“ komi: fram úr. Þetta er nánast leiðrétting, því að þar sem stendur „fram hjá“ í greininni, á það að þýða: fram úr. Hins vegar gæti það valdið misskilningi, ef þessu yrði ekki breytt.

Síðari brtt. á þskj. 429 er öllu veigameiri. Þar er lagt til, að fellt verði niður úr frv. ákvæði í 73. gr., 2. mgr., sem er á þessa leið: „Ef skráningarskylt vélknúið ökutæki er húftryggt, skulu fyrstu 1000 kr. af hverju tjóni vera í eigin áhættu vátryggingartaka. Húftryggt þýðir þarna það, sem kallað hefur verið „kaskó“-tryggt.

Nefndinni er að vísu ljóst, að talsverð rök má færa fyrir því að taka upp ákvæði þetta í löggjöf, svo sem það, að ákvæðið muni að líkindum verka í þá átt að hvetja ökumenn til að gæta meiri varúðar en ella, þegar þeir vita, að ef þeir verða fyrir tjóni, sem þeim verður gefin sök á sjálfum, þá sé lagt á þeirra eigin herðar að bera fyrstu 1000 krónurnar af því og þeir fái það ekki bætt. Á sama hátt má telja nokkurn veginn víst, að vátryggingariðgjöld húftrygginga eða „kaskó“-trygginga muni lækka verulega, ef þetta ákvæði verður lögfest, eða allt að helmingi, að því er talið er.

Rökin gegn þessu eru aftur á móti þau, að mjög oft ber svo við, að menn verða fyrir tjóni á bifreið eða öðru ökutæki, sem þeir valda ekki sjálfir og þeir hafa enga hugmynd um hver valdið hefur. Það ber oft við því miður, að ekið er á bifreiðar, sem standa mannlausar á bifreiðastæðum eða götum, og tjónvaldur er horfinn, þegar eigandi eða umráðamaður bifreiðarinnar kemur á vettvang og verður tjónsins var.

Á hitt er og að líta, sem er þó höfuðatriði í þessu máli, að hverjum sem er er frjálst að kaupa húftryggingu með þeim hætti, að hann beri sjálfur fyrstu 1000 kr. hvers tjóns, en spari sér jafnframt allt að helmingi iðgjalds fyrir venjulega húftryggingu.

Þegar þetta frv. var til 2. umr. hér í hv. d., telur allshn. útkomuna þá, að fella beri þetta ákvæði niður úr frv.

Þegar þetta frv. var til 2. umr. hér í hv. d., tók hv. allshn. aftur til 3. umr. brtt. á þskj. 410, nr. 10, við 24. gr., og nr. 11, við 25. gr. Nefndin sem heild tekur nú till. þessar alveg aftur. En meiri hl. n. flytur hins vegar á þskj. 428 brtt. samhljóða þeirri, sem merkt er 10 á þskj. 410. Einn nefndarmanna, hv. þm. V-Sk., taldi sig við nánari athugun ekki geta fylgt till. gerði grein fyrir þessari till. í framsögu, er málið var til 2. umr. í hv. d., og þarf þar engu við að bæta.

Allshn. hefur haldið fundi um þetta frv., eftir að 2. umr. fór fram. Hún hefur átt viðræður við Benedikt Sigurjónsson hæstaréttarlögmann, einn af höfundum frv., og að þeim loknum hefur hún fallið frá að flytja till., sem merktar eru 11. a og b, við 25. gr., á þskj. 410. Hins vegar hafa tveir nm., þeir hv. 1. landsk. og hv. 1. þm. N-M., tekið tillögurnar upp og flytja þær á þskj. 430. Þessar till. fjalla um ölvun eða notkun áfengra drykkja í sambandi við akstur og rannsóknir í því sambandi.

Það skal fúslega viðurkennt, að ýmis rök er hægt að færa fyrir tillögum þeirra tvímenninganna. Hins vegar eru og ærin rök gegn þeim, og að öllu samanlögðu sýnist geta verið varhugavert að taka þau ákvæði í lögin, sem þar ræðir um. Ég mun gera nánari grein fyrir skoðunum mínum um þetta, þegar flm. hafa mælt fyrir tillögunum. Aftur á móti vil ég nú þegar mæla gegn brtt. hv. 1. landsk. á þskj 416 um breytingu á 3. og 4. mgr. 25. gr. frv. Í brtt. er lagt til, að „prómille“-reglunum verði breytt, vínandamarkið verði lækkað í 0.50% og 1.20%. Nefndin, sem samdi frv., hefur kynnt sér sérstaklega reglur margra þjóða um þessi efni og alveg sérstaklega Norðurlandaþjóða. Hún segir í grg. frv., að ekki sé kunnugt um neina þjóð, sem ákæri fyrir ölvun við akstur, ef alkóhólmagnið í blóðinu er undir 0.60%. Væri frv. samþykkt, yrði þar með lögfest „prómille“-regla, sem væri jafnströng og hið strangasta, sem við þekkjum. Í Noregi er að vísu ákvæði um 0.50%, en það ákvæði er túlkað þannig af ákæruvaldinu og dómstólunum, að rétt sé, að ekki skuli ákært fyrir ölvun við akstur, nema vínandamagnið sé 0.60% eða meira, vegna þess að alltaf má gera ráð fyrir nokkurri skekkju í alkóhólrannsókninni, þannig að þó að hún sýni 0.60%, þykir ekki alls kostar öruggt, að hún nái því marki að réttu lagi. Það er sem sagt gert ráð fyrir því, að það kunni að verða nokkur skekkja — getur verið náttúrlega á báða bóga — í rannsókninni.

Hér á landi hefur hingað til aldrei verið ákært, svo að ég viti til, ef vínandamagn í blóðinu hefur verið undir 0.80%, og sama regla gildir í Svíþjóð. Og ástæðan til þess er einfaldlega sú, að hafi vínandamagn verið mínna, þá hefur þótt leika vafi á því, hvort hægt væri að halda því fram, að viðkomandi persóna væri það, sem kallað er undir áhrifum áfengis.

Það er rétt að hafa það í huga í þessu sambandi, að í 25. gr. frv. er bannað að viðlagðri strangri refsingu að neyta áfengis við akstur. Það út af fyrir sig er refsivert, enda þótt aðeins sé um örlítið magn að ræða, sem hvergi nærri nær því marki, sem „promille“-reglan í 25. gr. setur. „Promille“-reglan miðast fyrst og fremst við neyzlu, áður en ekið er. En í því sambandi er þó rétt að hafa það í huga, að neyzla áfengis rétt áður en maður byrjar akstur eða skömmum tíma áður kannske hálftíma eða skemmri tíma, telst samkv. skýringu hæstaréttar jafngilda neyzlu við akstur og varðar sömu refsingu. Samkv. sænskum heimildum, sem ég hef undir höndum, frá 1953, er talið, að fimm sentilítrar af 40% sterkum drykk valdi frá 0.24 til 0.48% vínanda í blóði, miðað við 70 kg þungan mann. Fimm sentilítrar eru 1/20 úr lítra og mun vera talinn venjulegur snafs, að ég ætla, á okkar mælikvarða. En neyti maður tveggja slíkra einni eða hálfri annarri klukkustund fyrir akstur, eru allar líkur til, að þá sé maður orðinn brotlegur við ákvæði 25. gr. um vínandamagn í blóði, eins og greinin er í frv., og þetta mun nokkurn veginn jafngilda tveim flöskum af venjulegu sterku öli. Af þessu má vera ljóst, að ákvæði 25. gr. frv. eru æði ströng og það ströng, að naumast ætti að vera ástæða til að hafa þau strangari. Þau eru sett á þeim mörkum, að vafi leikur á, hvort maður er undir áhrifum áfengis eða ekki, undir venjulegum kringumstæðum.

Í þessu sambandi má vel hafa það í huga, að ýmsir menn eru e.t.v. háskalegri í umferðinni, þótt þeir hafi ekki neytt áfengis og hafi ekki vínanda í blóði, heldur en aðrir, sem hafa eitthvað örlítið vínandamagn í blóðinu. Það er að sönnu rétt, að gerðar hafa verið tilraunir með menn með um 50% alkóhól í blóði, og í ljós hefur þótt koma í sumum tilfellum, að sjón þeirra og viðbragðsflýtir væri byrjað að sljóvgast. En hversu mismunandi eru ekki ökumenn yfirleitt, burtséð frá öllum vínanda? Menn fá að aka bifreið, þó að þeir séu alveg blindir á öðru auga og með ýmsa líkamsgalla, sem hljóta að draga úr hæfni þeirra við aksturinn. Vissulega er þó sjálfsagður hlutur að hafa ströng ákvæði um áfengi og bifreiðaakstur, og ég tel rétt, að þau verði enn strangari en verið hefur. En fyrir því er líka gert ráð í frv. eins og það er, því að það er gert ráð fyrir, að þessi ákvæði verði eins ströng og þau þekkjast nokkurs staðar annars staðar. En að svo komnu tel ég ekki ástæðu til, að þau gangi lengra, eins og lagt er til á þskj. 416, og mun ég því greiða atkv. gegn þeirri tillögu.