09.11.1956
Neðri deild: 13. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (3112)
17. mál, bifreiðalög
Flm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Á síðasta þingi bar ég fram frv. um breyt. á bifreiðalögunum, samhljóða því frv., sem hér liggur fyrir. Það frv. var afgreitt með nokkrum breytingum frá Nd. skömmu fyrir þingslit, en dagaði uppí í Ed. Ég hef því leyft mér að flytja frv. aftur á þessu þingi, og er það á þskj. 17.
Í 1. gr. frv. er lagt til, að tvær breytingar verði gerðar á 36. gr. bifreiðalaganna. Í fyrsta lagi, að tryggingarfélögum, sem annast bifreiðatryggingar, skuli ekki heimilt að borga tjónbætur skv. ákvæðum tryggingasamninga nema lögreglurannsókn hafi farið fram á því slysi eða tjóni, sem krafan er gerð út af.
Það mun oft koma fyrir, að löggæzlumenn séu ekki til kvaddir að athuga málavexti, þó að bifreið valdi tjóni, heldur er látið nægja að senda tilkynningu til tryggingafélagsins, sem á að bæta tjónið, og krefja það um skaðabætur. Miklar líkur eru fyrir því, að það yrði ökumönnum hvöt til aukinnar varkárni, ef tekið yrði í lög. að í hvert sinn, sem þeir valda tjóni, skyldi mál þeirra rannsakað af lögreglunni. Það getur einnig verið gagnlegt fyrir þá, sem eiga að hafa eftirlit með umferðinni, að hafa fullkomnar skýrslur um þau efni, t.d. hvaða ökumenn það eru, sem oftast valda tjóni, á hvaða stöðum árekstrar eru tíðastir og af hverju þeir stafa. Slíkar upplýsingar geta verið mikils virði til leiðbeiningar um það, hvað gera þurfi til þess. að fækka slysunum.
Þingnefndin, sem hafði þetta mál til athugunar á síðasta þingi, lagði til, að ákvæðið um þetta yrði nokkuð á annan veg. N. bar fram brtt., sem samþ. var í d., og var þar svo fyrir mælt, að tryggingafélag yrði því aðeins krafið um 5000 kr. bætur eða hærri, að lögreglurannsókn hefði farið fram á því slysi eða tjóni, sem krafan er byggð á.
Ég hef átt tal um þetta við menn, sem hafa fengizt við bifreiðatryggingar, og hafa þeir bent á þann annmarka á framkvæmdinni, ef till. n. frá í fyrra verður lögfest, að þegar bifreiðaárekstrar verða, sé oft ekki hægt að vita fyrir fram með nokkurri vissu, hvaða fjárupphæð muni þurfa til að bæta tjónið. Ég hef því tekið þann kostinn að hafa þetta atriði frv. eins og það var upphaflega í frv. mínu á síðasta þingi, þannig að krafizt verði lögreglurannsóknar í öllum tilfellum.
Þá er önnur brtt. við 36. gr. laganna. Í núgildandi lögum er ákveðið, að þegar bifreiðarstjórar valda tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, hafi tryggingafélög rétt til þess að endurkrefja þá um tjónbætur, sem þau hafa þurft að borgá vegna slíkra slysa, en tryggingafélögin munu ekki hafa notað þennan endurkröfurétt. Í frv. er lagt til, að félögunum sé gert skylt að endurkrefja tryggingartaka um eigi minna en 30% af skaðabótum, sem þau þurfa að borga vegna slysa, sem valdið er af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi ökumanna. Eftir sem áður hafa þau rétt til að krefja um alla upphæðina.
Ætla má, að ökumenn gæti sín betur og valdi síður tjóni með óafsakanlegu og vitaverðu framferði, ef það kostar þá sjálfa fjárútlát, heldur en ef tryggingafélögin borga allan skaðann.
Í 2. gr. frv. eru tillögur um breytingar á 39. gr. laganna, en þar eru ákvæði um sviptingu ökumannsréttinda. Lagt er til, að bifreiðarstjóri, sem ekur bifreið undir áhrifum áfengís eða neytir áfengis við bifreiðaakstur, skuli sviptur ökuleyfi sínu að fullu.
Það kom fram á síðasta þingi, að sumir hv. þm. vildu ekki taka svo hart á ölvun ökumanna. En öllum er kunnugt um mörg og alvarleg slys, sem hlotizt hafa af bifreiðarakstri ölvaðra manna. Slysunum mundi vafalaust fækka, ef ákvæði frv. um ökuleyfissviptingu yrðu lögfest, og þess vegna á lögfesting þeirra rétt á sér. Hér er um svo alvarlegt afbrot að ræða, að fyllsta ástæða virðist til þess að svipta þá menn ökuleyfi fyrir fullt og allt, sem gera sig seka um slíkt.
Í frvgr. er einnig till. um að herða mjög á ákvæðum laganna um ökuleyfissviptingu fyrir mjög vítaverðan akstur, þó að ölvun ökumanns sé ekki um að kenna.
Í sambandi við ákvæði þessarar frvgr. vil ég benda á, að samkvæmt 39. gr. l. hefur dómsmrh. heimild til að veita manni, sem hefur verið sviptur ökuréttindum lengur en 3 ár, ökumannsréttindi á ný, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um bindindissemi. Þó er ekki heimilt að veita neinum slíka uppreisn nema einu sinni. Að þessu er vikið í grg. frv., og þetta lagaákvæði stendur óhaggað, þó að frv. mitt verði samþykkt. Ef einhverjir hv. þdm. líta svo á, að ákvæði 2. gr. frv. um sviptingu ökumannsréttinda séu óeðlilega ströng, þá vil ég sérstaklega benda þeim á þetta heimildarákvæði í lögunum.
Flestum mun vera ljóst, að brýn þörf er fyrir umbætur í umferðarmálunum, sem svo eru nefnd. Sennilega getur fleira komið til greina til úrbóta í þeim efnum en þær ráðstafanir, sem lagt er til í þessu frv. að gerðar verði. En ég tel alveg vafalaust, að með lögfestingu þeirra ákvæða, sem frv. þetta felur í sér, og framkvæmd þeirra muni umferðarslysunum fækka verulega. Vil ég því vænta þess, að málinu verði vel tekið að þessu sinni á hv. Alþingi.
Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.