12.11.1956
Neðri deild: 14. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (3115)

19. mál, holræsagerðir

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég flyt hér á þskj. 19 frv. til laga um aðstoð til holræsagerðar ásamt hv. 1. þm. Rang. Þar sem hann er ekki viðstaddur vildi ég fylgja frv. úr hlaði með örfáum orðum.

Meginefni frv. er það, að veitt verði af ríkisins hálfu hliðstæð aðstoð við holræsagerð og nú er veitt vatnsveitum, þ.e.a.s., að sveitarfélög, sem leggi holræsi, sem uppfylli tiltekin skilyrði, geti notið sérstakrar aðstoðar úr ríkissjóði, þannig að þau geti átt rétt til að fá sem styrk úr ríkissjóði allt að helmingi stofnkostnaðar og auk þess fengið ríkisábyrgð fyrir láni vegna framkvæmdanna, en þó þannig, að samtals nemi þetta aldrei meira en 85% af kostnaði við þessar framkvæmdir. Þessar tölur, sem hér er um að ræða, eru hliðstæðar þeim ákvæðum, sem nú gilda um vatnsveitur, og þar sem hér er um mjög hliðstæðar framkvæmdir sveitarfélaga að ræða, framkvæmdir, sem er brýnasta nauðsyn að séu alls staðar í góðu lagi, sýndist okkur rétt og eðlilegt og sanngjarnt, að sveitarfélögunum yrði veittur stuðningur til þessara framkvæmda, á sama hátt og gert er varðandi vatnsveiturnar. Það er vitanlega gert ráð fyrir því, að eftirlit sé með því haft, hvernig þessar framkvæmdir eru af hendi leystar, og að það verði að vera fyrir hendi samþykki ráðh„ til þess að framkvæmdirnar geti orðið styrk- og ábyrgðarhæfar. Með þessu móti er ætlunin að tryggja það, að ekki sé fengið lán eða ábyrgð út á annars konar holræsagerð en þá, sem að dómi sérfróðra manna er fyrsta flokks framkvæmd.

Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta mál, það er einfalt og skýrir sig sjálft. En vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og fjhn.