12.11.1956
Neðri deild: 14. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (3120)

20. mál, iðnlánasjóður

Flm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Hæstv. iðnmrh. ræddi hér áðan um málefni iðnaðarins og tók mjög undir það, sem ég hafði sagt í minni frumræðu um nauðsyn þess að bæta kjör iðnaðarins varðandi stofnlán. Hef ég vitanlega ekkert nema gott um að segja þær upplýsingar, sem hæstv. ráðh. gaf um aðstöðu atvinnuveganna nú til þess að afla sér lánsfjár, bæði hvað snerti styrkleika þeirra sjóða, sem lán veita til stofnframkvæmda, og einnig um þær fjárveitingar, sem nú eru veittar í fjárlögum til þessara sömu þarfa. Hann vitnaði hér til þess í upphafi síns máls, að ég hefði sagt, að iðnaðurinn væri þriðji aðalatvinnuvegur þjóðarinnar, og taldi ástæðu til þess að leiðrétta það, vegna þess að iðnaðurinn væri fyrsti aðalatvinnuvegur þjóðarinnar. Ég skal nú taka það fram, að með því að segja, að iðnaðurinn væri þriðji aðalatvinnuvegur þjóðarinnar, var ég ekkert sérstaklega að flokka hann í röð, heldur aðeins að taka fram, að það væru þessir þrír atvinnuvegir, sem væru okkar aðalbjargræðisvegir. Og eins og hann einnig gat um í sinni ræðu, þá er ekki svo þægilegt að fullyrða um það, ef á að fara að flokka þessa þrjá atvinnuvegi eða raða þeim nánar niður, hver eigi að teljast númer eitt, tvö og þrjú, vegna þess að þar kemur margt til greina. Það er auðvitað ekki aðeins fólksfjöldinn, sem við þá starfar, heldur einnig, hvað þeir færa mikinn afrakstur í þjóðarbúið, og ýmis önnur atriði, sem ég hygg að geti orðið jafnvel nokkuð erfitt að meta. En það er alveg rétt, sem ráðh. sagði, að þessi atvinnuvegur mun nú veita atvinnu flestum mönnum í landinu og má að því leyti teljast fyrsti aðalatvinnuvegurinn.

Ég tel vitanlega enga þörf á að gera aths. við upplýsingar hæstv. ráðh. um þau lánamál, sem hann ræddi í sinni ræðu og allar þær upplýsingar studdu mjög að því að sýna fram á hina brýnu nauðsyn þess, að hlutur iðnaðarins verði réttur og að hann fái viðunandi stofnlánasjóð. Það atriði, sem kom svo fram í lok ræðu hæstv. ráðh., að það muni eiginlega nánast vera ég, sem beri ábyrgð á því, að iðnaðurinn hafi ekki stærri hlut, hvorki í fjárlögum né hans stofnlánasjóðir, — ég held nú sannast sagt, að það sé nokkuð ofmælt um mín áhrif í því sambandi, þó að ég þakki hæstv. ráðh. fyrir það mikla álit, sem hann hefur á mínum völdum í fjvn. og annars staðar, að það séu nú kannske einhverjir aðrir, sem eigi þar hlut að máli, og ég er ekki viss um, nema hann eigi kannske eftir að rekast á þá menn suma innan síns samstarfshóps og komast að raun um það, hvar helzt sé að leita orsakanna til þess, að ekki hefur gengið betur en raun ber vitni um varðandi málefni iðnaðarins.

Hann vék einnig að hæstv. fyrrverandi iðnmrh. um það, hvað hann hefði gengið slælega fram í þessu máli. Ég skal ekki fara að rekja málefni iðnaðarins á undanförnum árum. Það vita allir, að mikið hefur þokazt áleiðis í þá átt og margt verið gert iðnaðinum til hagsbóta, bæði með stofnun Iðnaðarbankans og með því að setja á laggirnar Iðnaðarmálastofnun Íslands og ýmis önnur atriði, sem ég hirði ekki að rekja hér. En það má einnig minnast á það, að flokksbróðir hæstv. ráðh. hefur um margra ára skeið farið með embætti iðnmrh„ og það virðist einhvern veginn sem honum hafi þá einnig sézt yfir að efla iðnlánasjóðinn sem skyldi, þannig að ég held, að það geri málinu ekkert gagn að vera með neinar ásakanir eða aðdróttanir í því sambandi. Höfuðatriði málsins er það, að nú verði hafizt handa um að fá á þessu viðunandi lagfæringu, og það ber vissulega að fagna þeim orðum hæstv. ráðh., að þessu þingi muni ekki ljúka, án þess að hlutur iðnaðarins að þessu leyti verði réttur, og þá væntanlega hvort tveggja, að hlutur hans verði færður eitthvað til jafnvægis við aðra atvinnuvegi í fjárlögum, og enn fremur, að það verði aflað myndarlegs fjármagns til hans stofnsjóðs, iðnlánasjóðs.

Þessar yfirlýsingar ber vissulega að þakka, og þess er mjög að vænta, að hæstv. ráðh. takist að koma því fram innan ríkisstjórnarinnar. Það skal fúslega játað, að mín áhrif og minna flokksbræðra í fjvn. að undanförnu hafa ekki síðustu árin eða frá því að við hreyfðum þessu frv. náð lengra en það að fá því til leiðar komið, að þar væri tekinn inn helmingurinn af þeirri upphæð, sem farið er hér fram á, og kostaði allmikla erfiðismuni samt að fá því framgengt. En það er vissulega gleðiefni, ef hér verður nú stefnubreyting varðandi þá aðila, sem hingað til hafa ekki sýnt iðnaðinum neinn sérstakan velvilja, þannig að það verði hægt að sameina kraftana um að leysa þessi vandamál iðnaðarins. Það er vitanlega ekkert meginatriði fyrir okkur flm. þessa máls, hvort það verður sem formleg afgreiðsla á þessu frv. okkar eða einhverju frv., sem hæstv. ríkisstj. leggur fram, ef það frv. veitir viðunandi lausn á þessu mikla vandamáli. Það er óhætt að fullyrða, að af hálfu Sjálfstfl. skal ekki standa á stuðningi um að fá fram sanngjarna leiðréttingu á málefnum iðnaðarins, þannig að hlutur hans verði stærri og að hann fái viðunandi stofnlánasjóð eins og aðrir atvinnuvegir. Vildi ég því mega mjög taka undir þau ummæli hæstv. ráðh., að það sé nauðsynlegt, að þessu þingi ljúki ekki, án þess að stofnlánasjóður iðnaðarins, iðnlánasjóður, verði efldur svo, að viðunandi megi teljast.