15.11.1956
Neðri deild: 16. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í C-deild Alþingistíðinda. (3124)
34. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Flm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég gat um það. þegar ég gerði grein fyrir öðru frv., sem hér liggur fyrir hv. deild, um iðnlánasjóð, að það frv. og sú fjáröflun, sem þar var gert ráð fyrir, megnaði ekki að gera iðnlánasjóði kleift að verða almennur byggingarlánasjóður fyrir iðnaðinn. Þetta frv., sem hér liggur fyrir og er um breytingu á gildandi lögum um gjald af innlendum tollvörutegundum, miðar að því að gera iðnlánasjóði kleift að leysa þetta hlutverk af hendi.
Eins og getið er um í grg. frv., hefur þetta mál verið rætt allmikið að undanförnu og nú síðast á nýafstöðnu iðnþingi, og var þar samþykkt ályktun, þar sem lögð var áherzla á, að komið yrði á fót sérstökum byggingarlánasjóði fyrir iðnaðinn, þar sem nú væri enginn sjóður, sem gæti veitt iðnaðinum að þessu leyti hliðstæða aðstoð og fiskveiðasjóður veitir sjávarútvegi og stofnlánadeildir Búnaðarbankans landbúnaði. Okkur, sem flytjum þetta frv., þykir eðlilegast, að iðnlánasjóður hafi þetta hlutverk með höndum, fremur en settur verði á laggirnar nýr stofnlánasjóður fyrir iðnaðinn.
Eins og öllum hv. þm. er kunnugt, er fiskveiðasjóður fyrst og fremst byggður upp af sjávarútveginum sjálfum, þ.e.a.s., að það er gjald, sem greitt er af sjávarafurðum, sem er aðaltekjustofn þess sjóðs.
Samkv. lögum frá 1939, nr. 60, er lagt allhátt gjald á innlendar tollvörur, og rennur það gjald að öllu leyti í ríkissjóð. Það sýnist ekki óeðlilegt, þegar um það er að ræða að koma á fót byggingarlánastofnun fyrir iðnaðinn, að farin sé þá svipuð leið og gert hefur verið með sjávarútveginn, þannig að þau gjöld, sem nú þegar eru lögð á iðnaðinn og renna beint í ríkissjóð, verði að einhverju leyti látin renna til iðnlánasjóðs til þess að leysa úr þörfum iðnaðarins um stofnlán. Þar sem hér er um allveigamikinn tekjustofn að ræða fyrir ríkissjóð, hefur okkur flm. þó ekki sýnzt tiltækilegt að láta gjald þetta að öllu leyti renna til iðnlánasjóðs, heldur leggjum við til, að gjaldið skiptist að jöfnu milli ríkissjóðs og iðnlánasjóðs. Gjald þetta varð á árinu 1955 um 11.7 millj. kr., og í gildandi fjárlögum er gert ráð fyrir, að gjaldið nemi 11 millj. kr.
Það skal fram tekið, að vitanlega er ætlazt til, að þetta ákvæði nái einnig til hinna sérstöku gjaldaviðauka, sem lagðir eru á tollvörugjaldið, en þar sem það eru lög, sem gilda frá ári til árs og hljóta að koma til endurnýjunar nú við næstu áramót, er að sjálfsögðu ekki gert ráð fyrir, að um sé að ræða breytingu á þeim sérstöku lagaákvæðum, því að ekki er gert ráð fyrir, að þessi lög, sem hér er um að ræða, taki gildi fyrr en 1. jan. 1957, en þá vitanlega ætlazt til, verði um framlengingu á gjaldaviðaukanum að ræða eða álaginu á innlendar tollvörutegundir, að þá verði hliðstætt ákvæði tekið inn í þau lög, þegar þar að kemur.
Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar. Það var rætt um hina miklu þörf iðnaðarins fyrir stofnlánasjóð við 1. umr. um frv. um iðnlánasjóð og þarflaust að endurtaka það hér. Ég vænti þess aðeins, að hv. þingdeild geti fallizt á að leysa úr þessari brýnu þörf iðnaðarins, enda kom mikill velvilji fram í því efni við umr. þess máls, sem ég gat um, og að þetta frv., sem hér er um að ræða, geti því hlotið samþykki á yfirstandandi Alþingi. Ég leyfi mér svo að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.