11.03.1957
Neðri deild: 65. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (3193)
115. mál, kostnaður við skóla
Flm. (Pétur Ottesen):
Ég skal fyrst gera örstutta grein fyrir því, í hverju breyt. í frv. eru fólgnar. Samkv. 1. gr. þessa frv. hækkar framlag ríkisins til stofnkostnaðar heimavistarskóla gagnfræðastigs og húsmæðraskóla úr 3/4 hlutum upp í 9/10 hluta. Samkv. 2. gr. hækkar framlag til upphitunar þeirra heimavistarskóla gagnfræðastigs, sem eru á svokölluðum köldum stað, einnig úr 3/4 upp í 9/10 hluta. Og í þriðja lagi hækkar framlag ríkisins, sem er annar kostnaður af skólahaldi gagnfræðastigsskóla og húsmæðraskóla en sá, sem sérstaklega er upp talinn í lögunum, úr helmingi upp í 9/10 hluta. Þetta er efni þessa frv.
Eins og kunnugt er, skiptist kostnaður af héraðsskólum og húsmæðraskólum ákaflega misjafnt niður á sýslufélögin í landinu. Þau sýslufélög, sem búin voru, áður en l. frá 1946 voru sett um þetta efni, að koma upp hjá sér skólum, hvort sem voru héraðsskólar eða húsmæðraskólar, eiga að greiða á móti ríkissjóði í þeim hlutföllum, sem ákveðið er í lögunum, framlag bæði til viðhalds, stofnkostnaðar og rekstrar þessara skóla. En þetta skiptist ákaflega ójafnt niður. Þannig er það, að í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu eru tveir skólar, sem þessi sýslufélög verða með þessum hætti að standa undir kostnaði af á móti ríkissjóði. Þessir skólar í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum eru Reykholtsskólinn og húsmæðraskólinn á Varmalandi. Í Vestur-Ísafjarðarsýslu er einn skóli, Núpsskólinn, í Norður-Ísafjarðarsýslu einn skóli, Reykjanesskólinn, í Stranda- og Húnavatnssýslum einn skóli, Reykjaskólinn, í Austur-Húnavatnssýslu húsmæðraskólinn á Blönduósi, í Eyjafjarðarsýslu húsmæðraskólinn á Laugalandi og í Suður-Þingeyjarsýslu tveir skólar, þ.e. héraðsskólinn og húsmæðraskólinn á Laugum. Í Norður- og Suður-Múlasýslum er einn skóli, húsmæðraskólinn á Hallormsstað. Í Vestur-Skaftafells- og Rangárvallasýslum er einn skóli, þ.e. Skógaskólinn, og í Árnessýslu tveir skólar, héraðsskólinn á Laugarvatni og húsmæðraskólinn, sem þar er einnig staðsettur, enn fremur fjórir gagnfræðaskólar.
Aftur á móti eru önnur sýslufélög, sem sleppa alveg við kostnað af slíku skólahaldi. Eru það Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla, Barðastrandarsýsla, Skagafjarðarsýsla, Norður-Þingeyjarsýsla, Austur-Skaftafellssýsla og Gullbringu- og Kjósarsýsla. Námsfólk úr þessum sýslum hefur þó sama rétt til skólasetu í skóla þeirra héraða, sem kostnað bera við skólahaldið, og þeir, sem þar eiga heima, og er þar löngum í meiri hluta. Til dæmis að taka að því er snertir héraðsskólana: Í Reykholti eru 30% úr heimahéraði, Núpi 25%, í Reykjanesi eru 17%, á Reykjum eru 27%, á Laugum 48%, í Skógaskólanum 49% og Laugarvatnsskólanum 27%. Á öllum þessum stöðum er meiri hl. nemendanna annars staðar að.
Hvað húsmæðraskólana snertir er hlutfallið þannig, að heimanemendur eru þar í miklum minni hluta. Á Varmalandsskólanum eru úr héraðinu 9.7%, Blönduósskólanum 2.5%, Laugalandsskólanum 5%, á Laugum 30%, Hallormsstaðarskólanum 50% og Laugarvatnsskólanum 12.5%.
Það er þess vegna ekkert undarlegt, þó að þau sýslufélög, sem standa undir þessum skólakostnaði, geri til þess kröfur, að jafnað sé nokkuð á milli sýslufélaganna í þessu efni frá því, sem nú er, þannig að ríkið hækki nokkuð framlag til þessara skóla, og í tilefni af því, að þetta er nú svona, mættu hér í Reykjavík á s.l. hausti fulltrúar frá þessum héruðum til þess að ræða þessi mál. Frá Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum var mættur Björn Björnsson sýslumaður. frá Árnessýslu Páll Hallgrímsson sýslumaður og Bjarni Bjarnason skólastjóri, frá Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Jón Steingrímsson sýslumaður, frá Norður-Ísafjarðarsýslu Jóhann Gunnar Ólafsson sýslumaður og bæjarfógeti, frá Vestur-Ísafjarðarsýslu þeir Jóhannes Davíðsson í Hjarðardal og Sturla Jónsson á Suðureyri og frá Vestur-Húnavatns- og Strandasýslum Sæmundur Guðjónsson skólastjóri á Reykjum. Þá munu þeir einnig hafa haft samráð við ráðamenn í öðrum sýslufélögum, sem eins stendur á um í þessu efni, og það má þess vegna ganga út frá því, að forráðamenn þessara sýslufélaga standi einnig að þeirri samþykkt, sem hér er um að ræða.
Til viðbótar við þann kostnað, sem þessi sýslufélög, sem ég nú nefndi, hafa af því að standa undir kostnaði við héraðsskóla og húsmæðraskóla, þar sem um hvort tveggja er að ræða, standa þeir einnig undir öðrum skólakostnaði og honum allþungbærum, því að í sumum þessum sýslum eru einnig unglingaskólar, sem þeir verða að borga að hálfu leyti allan kostnað við á móti ríkissjóði. Þannig er það, að í Norður-Ísafjarðarsýslu eru 2 slíkir skólar, í Strandasýslu og Húnavatnssýslum eru 3 slíkir skólar, í Rangárvallasýslu 1 slíkur skóli, í Árnessýslu 5 skólar og í Mýrasýslu er einnig 1 slíkur skóli, sem sé í Borgarnesi. Það virðist því vera ákaflega óeðlilegt, að þau sýslufélög, sem standa undir svona miklum kostnaði heima hjá sér í sambandi við fræðsluna, þurfi til viðbótar því að leggja fram fé til að standa undir kostnaði af héraðs- og húsmæðraskólum í héraðinu.
Þessir fulltrúar, sem mættu hér á fundi í Reykjavík, gerðu ályktun um þetta efni, sem prentuð er ásamt grg. sem fylgiskjal með þessu frv., og ályktun þeirra var í því fólgin, að þeir skoruðu á ríkisstj. og alþingismenn, að Alþ. það, er nú situr, gerði þá breytingu á l., að ríkissjóður greiddi allan kostnað við byggingu, viðhald og rekstur þessara skóla. En til vara báru þeir fram þá breytingu, að ríkissjóður greiddi 90% af stofnkostnaði, viðhaldskostnaði og öðrum rekstrarkostnaði skólanna, og er það sú till., sem ég hef tekið upp í þetta frv., sem ég nú flyt, eins og ég gerði grein fyrir í upphafi míns máls.
Þeir færa fram mjög gild og góð rök fyrir því, að slík breyting verði gerð á, sem ég skal ekki fara út í að rekja nánar, því að þetta plagg liggur fyrir hjá öllum hv. deildarmönnum, og mér skilst, að þær kröfur, sem þeir bera hér fram, séu ákaflega eðlilegar og sanngjarnar á allan hátt og þá fyrst og fremst sú varatill., sem ég hef tekið hér upp. Og með því að taka hana upp vil ég einnig að því stuðla, að eftir sem áður, þó að framlag ríkissjóðs sé aukið þetta, verði íhlutun um rekstur þessara skóla í höndum viðkomandi héraðsstjórna, sem ég tel að sé mjög heppilegt í sambandi við hagkvæman rekstur þessara stofnana.
Þessir héraðsskólar gagnfræðastigs, sem hér um ræðir, eru eingöngu skólar í sveitum. Hins vegar hef ég einnig tekið með þá húsmæðraskóla, sem eru í kaupstöðum, tekið þá í flokk með húsmæðraskólunum í sveitum, því að það er nákvæmlega sama aðstaðan þar, að þeir nemendur, sem þessa skóla sækja, eru að mjög miklum meiri hluta annars staðar að en úr þeim stað, þar sem skólarnir eru reknir, og er þess vegna ekki sanngjarnt að gera upp á milli um þetta eftir því, hvort húsmæðraskólarnir eru staðsettir í sveit eða kaupstað.
Á öndverðu þessu þingi var skólastjórinn í Reykholti, Þórir Steinþórsson, sem er mjög mætur og merkur skólamaður og hefur haft um langt skeið á hendi skólastjórn í Reykholti og farizt það á allan veg mjög vel úr hendi og giftusamlega, hér á ferð og vakti alveg sérstaklega athygli mína á þeirri ályktun, sem þessir sýslufulltrúar gerðu á s.l. sumri, og hann sendi mér svo eftir samtali okkar í milli um það þá ályktun, sem gerð var, ásamt grg., sem henni fylgdi. Þegar svo nokkuð leið frá og ég sá, að hæstv. ríkisstj. eða aðrir ætluðu ekki, að því er virtist, að sinna málinu, þá hvatti skólastjórinn mjög til þess að flytja þetta mál inn á Alþ., og hann skrifaði mér í sambandi við þetta bréf, sem ég aðeins drep á í grg, með þessu frv., og þetta bréf er þess eðlis, að mér þykir rétt, með leyfi hæstv. forseta, að það verði bókfært í Alþingistíðindunum. Hann segir þar, að hann sendi mér erindið og grg., sem hann hafi minnzt á við mig, er við áttum tal um þetta hér í Reykjavík. Enn fremur segir hann:
„Ég get fallizt á rök þeirra, sem þetta sömdu, það sem þau ná, en vildi bæta þessu við: Í lögum um gagnfræðanám (lög nr. 48 frá 7. maí 1946), II. kafla, er gert ráð fyrir því, að landinu verði skipt niður í skólahverfi og að tvö eða fleiri standi saman um stofnun og rekstur skóla. En allt er þetta miðað við það, að þessir skólar séu stofnaðir til þess að inna af höndum kröfuna um skyldunám unglinga. Nú held ég, að flestir, ef ekki allir, séu hættir að gera ráð fyrir, að skyldunám unglinga verði framkvæmt í sveitum, og sé ég ekki eftir því. En þá held ég líka, að útilokað sé að skylda nokkurt sýslufélag, sem ekki hefur staðið að stofnun skóla, til þess að taka á sig nokkurn kostnað af rekstri skóla, sem engin skylda er að halda uppi.
Þetta tek ég fram af því, að sumum hefur dottið í hug að fara fram á það, að landinu verði skipt í skólahverfi og þannig yrði létt á hjá þeim, sem nú standa undir kostnaði vegna héraðs- og húsmæðraskólanna, og nokkru komið yfir á þá, sem enga slíka skóla hafa. En eins og ég hef tekið fram, held ég, að þessi aðferð eigi enga stoð í lögum. Hitt getur enginn talið réttlátt, að helmingur sýslufélaganna beri engan kostnað vegna framhaldsskóla, en hafi þó engu síður aðgang að þeim en hinar sýslurnar, sem sumar hverjar að minnsta kosti stynja undir þessum kostnaði.
Verið getur, að einhverjum finnist, að uppástungan um það, að hlutaðeigandi sýslufélag greiði aðeins 10%, sé fjarstæða. En þá er þessu til að svara um það: Löggjafinn virðist hafa haft það í hug, að sanngjarnt væri, að ríkið greiddi meiri hluta af kostnaði við alla fræðsluna, kennaralaun og helming af rekstrarhalla, en nokkurn hluta greiddi hlutaðeigandi sýslu- eða sveitarfélag, en aðeins vegna nemenda úr því sýslufélagi. Má meðal annars benda á 57. gr. því til stuðnings.
Nú er það víst, að ef sýslufélagið greiðir tíunda partinn af kostnaði, viðhaldskostnaði og rekstrarhalla, hefur það gert hreint fyrir sínum dyrum vegna sinna nemenda, eftir því sem hlutfallið hefur verið undanfarið milli nemenda úr heimahéraði skólanna og annars staðar að.“ Þessu gerði ég grein fyrir áðan.
„Hér í Reykholtsskóla hefur aðeins rúmlega 1/4 hluti nemendanna verið úr Mýra- og Borgarfjarðarsýslum undanfarin 10 ár, og sums staðar mun hlutfallið hafa verið enn þá óhagstæðara. Fleira væri hægt að telja upp því til stuðnings, að ríkið taki meiri þátt í rekstri héraðsskólanna en verið hefur. Til dæmis er hin mikla ásókn um að koma nemendum úr kaupstöðum, sem hafa sína gagnfræðaskóla, ljós vottur þess, að einnig þeir, sem hafa greiðan aðgang að því að láta kenna börnum sinum, vilja nota héraðsskólana, ef þeir geta fengið það. Og það eru ekki eintóm vandræðabörn, sem verið er að koma til okkar, heldur einnig beztu unglingar, sem ánægja er að hafa hjá sér. En kaupstaðabúarnir geta hins vegar ekki búizt við því, að fátækar sveitir beri kostnaðinn af uppeldi og fræðslu barna þeirra, þó að börnunum sé sízt of gott að vera hjá okkur, ef haldið er, að það geti orðið þeim til gagns.
Að síðustu vil ég segja þetta: Úr því að ríkið léttir alveg kostnaði af einum landshluta um slíkt skólahald sem þetta, getur ekki orðið stætt á því að hlaupa ekki betur undir bagga með öðrum landshlutum, sem standa undir sams konar skólum. Eiðaskóli hefur enga sérstöðu í þessu efni, og það er ranglæti, sem ekki verður þolað til lengdar, að láta Austfirði hafa sérréttindi umfram aðra landshluta hvað skólamál snertir. Annaðhvort er að láta Austfirðinga bera kostnað af sínum skóla eins og aðra eða styðja betur hin héruðin með sitt skólahald.
Læt ég svo útrætt um þetta; og ef það gæti orðið þér að einhverju gagni, er tilganginum náð.“
Þarna í lok bréfsins víkur skólastjórinn að því, að einn af þessum héraðsskólum, sem er Eiðaskólinn, er algerlega kostaður af ríkinu, svo að Austfirðingafjórðungur þarf ekkert af mörkum að leggja til þess að halda uppi þessum héraðsskóla. Sama er að segja um húsmæðraskólann í Dalasýslu, á Staðarfelli, hann er einnig kostaður algerlega af ríkinu. Þessi skóli er í næsta nágrenni við skólann á Varmalandi, sem Mýra- og Borgarfjarðarsýslur verða að standa straum af á móti ríkinu. Það virðist því ekkert samræmi vera í þessu, og eðlilegasta lausnin til þess að jafna hér á milli er sú að styrkja nokkuð aðstöðu þeirra héraða, sem taka nú þátt í kostnaði við þetta skólahald, með því að auka nokkuð framlag ríkisins til þessara skóla.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta. En ég vildi mega vænta þess, að þeir málavextir væru hér fyrir hendi, að Alþ. teldi rétt að gera hér á breytingu til jöfnunar í þessu efni, hvort sem verður fylgt þeim tillögum, sem ég hef tekið upp úr tillögum fulltrúanna, eða önnur leið jafngóð fundin til þess að jafna þennan aðstöðumun, — það mundi koma að sama gagni, — en ég vænti sem sagt, að Alþ. geri hér á breytingu.
Ég vil svo að lokinni þessari umr. leyfa mér að leggja til, að þessu máli verði vísað til hv. menntmn. Þetta er að vísu fjárhagsmál að langsamlega mestu leyti, en það er nú orðin venja, að menntmn. fjalli einnig um þá hlið skólamálanna, og er það því mín tillaga, að málinu verði að umr. lokinni vísað til menntmn.