18.03.1957
Neðri deild: 69. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (3220)
121. mál, ríkisborgararéttur
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð.
Það hefur verið mikið rætt um þetta mál nú, og hefur reyndar verið rædd á nokkrum undanförnum þingum allrækilega sú hugsun, sem liggur á bak við þá skipan, sem tekin hefur verið upp, að fyrirskipa erlendum mönnum, sem ríkisborgararétt fá, að taka upp alíslenzk nöfn, um leið og þeir fá ríkisborgararéttinn.
Það er vissulega allrar virðingar verð sú hugsun, sem liggur á bak við þessi fyrirmæli, sem gefin hafa verið af Alþingi í þessu efni, og það vitanlega getur engum blandazt hugur um það eða það valdið ágreiningi, að æskilegast væri, að öll útlend nöfn hyrfu úr málinu. En hins vegar verð ég að segja, að það hefur, frá því að fyrst fóru að hefjast deilur um þetta hér, verið mín tilfinning, að hér væri of langt gengið, og mér finnst, að í þessu efni verði að líta meir á persónulegar tilfinningar manna en hér hefur verið gert. Það má vitanlega segja sem svo, að maður, sem sækir um ríkisborgararétt í einu landi, hugsi sér með því að hverfa frá fyrra lífi sínu, eins og það hefur verið orðað hér, hefja nýtt líf, og þar af leiðandi sé eðlilegt, að hann sé skírður að nýju. En látum þetta nú vera. En mér finnst það nánast sagt næsta fáránlegt, þegar mönnum er gert það að skyldu að skíra sig að nýju á þann hátt, að þeir eru kenndir við föður, sem alls ekki er þeirra faðir. Það finnst mér vera grundvallaratriði málsins, og það hefur a.m.k. verið í ósamræmi við þá hugsun, sem ríkt hefur um íslenzkar nafnareglur, einmitt þetta, að menn kenndu sig við föður sinn og þannig væri hægt að rekja, hverrar ættar menn séu, og með þessu móti væru víss ættartengsl sköpuð. Þarna kemur alger eyða í, og þessi hugsun getur alls ekki staðizt varðandi þessa nýju ríkisborgara, sem oft og tíðum verða að taka sér föðurnafn, sem er ekki í nokkrum tengslum við nafn hins raunverulega föður mannsins, heldur gersamlega út í loftið. Þetta brýtur auðvitað í bága við alla skynsamlega hugsun, auk þess sem það hlýtur auðvitað að líta næsta kynlega út, að maður, sem maður hefur umgengizt kannske tíu ár eða lengur undir einhverju ákveðnu nafni, kemur svo allt í einu einn góðan veðurdag og heitir gersamlega öðru nafni, sem enginn maður veit, hvernig er til komið, nema þeir sem þekkja það, að hann hefur verið skyldaður til þess til að fá íslenzkan ríkisborgararétt að skipta þannig algerlega um ham.
Þessi staðreynd hefur alltaf valdið því, að mér hefur verið næsta ógeðþekk sú stefna, sem hér hefur verið mörkuð á Alþingi í þessu efni. Hins vegar tel ég, að það hefði ekki verið fært að samþ. þá till., sem hér kom upphaflega fram nú, um að gerbreyta þessu á þann veg að falla frá öllum slíkum skilyrðum, vegna þess að úr því að þetta hefur verið framkvæmt um nokkurra ára skeið, þá er það ranglátt gagnvart því fólki, sem við það hefur búið þessi ár, að fara þá allt í einu að hverfa yfir í gersamlegt stjórnleysi á þessum málum að nýju. Það finnst mér vegna fordæmisins, að sé ekki auðið að gera. Hins vegar tel ég, að sú till., sem hér hefur komið fram frá hæstv. menntmrh. og nokkrum fleiri þm., sé mjög aðgengileg og uppfylli í raun og veru bæði þessi sjónarmið, sem hér koma fram, annars vegar að hreinsa tunguna af hinum erlendu ættarnöfnum og hins vegar að slita ekki gersamlega öll eðlileg tengsl fólks við fortíð sína, eins og gert væri, ef mönnum er ekki lengur heimilt að kenna sig til ættar sinnar.
Með þessu móti væri fyllsta réttlæti þjónað, og þetta gæti ekki valdið neinum manni á nokkurn hátt sárindum, vegna þess að það er auðvitað rétt, að ef menn vilja á annað borð verða íslenzkir ríkisborgarar, þá verða menn að beygja sig undir þær reglur, sem hér gilda, og því ekkert undarlegt og getur ekki litið illa út fyrir nokkurn mann að taka á sig þá skyldu að kenna börn sín til föður síns á venjulegan hátt, eins og hér er gert.
Það er auðvitað rétt, sem bent hefur verið á, að það er viss erfiðleiki í framkvæmd þessa máls, að hafa eftirlit með þessum nafnbreytingum, en sá erfiðleiki er ekkert meiri hvað þetta varðar en með íslenzku nafnalöggjöfina yfirleitt. Því má auðvitað til svara, að henni hafi ekki verið framfylgt, en það er einmitt atriði í þessu máli, sem verður að taka til miklu rækilegri athugunar, hvernig á að framfylgja íslenzku nafnalöggjöfinni, þannig að hún verði viðunandi og að það fáist framgengt þeirri stefnu, sem hún upphaflega túlkaði, að reyna að festa í málinu aðeins íslenzk heiti og útrýma skrípanöfnum og erlendum nöfnum. Þetta er viðfangsefni, sem væri mjög mikilvægt að tekið væri til athugunar. Það hefur raunar verið rætt hér áður á Alþ. og ekki náðst um það samkomulag í sambandi við afstöðu til ættarnafnanna.
Ég verð að segja fyrir mitt leyti, að ég er persónulega á móti ættarnöfnum og tel, að þau eigi að hverfa úr málinu og fylgja eigi hinum gamla íslenzka sið. En ég kann hins vegar illa við, að það sé tekin upp þessi regla aðeins um fáa menn, að banna þeim hluti, sem öðrum er leyft, og það jafnvel leyft eða látið óátalið, þó að þeir hafi algerlega heimildarlaust tekið sér upp nöfn, eins og hér er til í mörgum tilfellum með íslenzk ættarnöfn, auk þess sem ég get ekki komið því inn í mitt höfuð, að það sé með nokkru móti hægt að telja þetta eðlilegan hátt, sem hér er á hafður og hefur verið á hafður undanfarin ár, ef maður hugsar það alveg niður í kjölinn. Auk þess verð ég að taka undir það, sem hv. 2. þm. Rang, sagði hér, að það hljómar næsta kynlega, ef maður heitir kannske alíslenzku nafni, en kann svo alls ekki íslenzka tungu. Það verður næsta broslegt, þegar þannig kemur fyrir, sem því miður æði oft vill verða, að menn, sem verða hér íslenzkir ríkisborgarar, kunna alls ekki íslenzka tungu. Það mætti vel hugsa sér að setja það skilyrði, að maður, sem yrði ríkisborgari, kynni a.m.k. íslenzku sæmilega vel.
Það eru svo ýmis önnur atriði, sem koma inn í þetta mál eða koma upp í hugann við athugun á þessu máli, sem óneitanlega væri e.t.v. ástæða til þess að sinna meir en gert hefur verið, þó að vafasamt sé, að hve miklu leyti hægt er að setja reglur um þau atriði. Það eru t.d. alls konar nöfn hér á ýmsum fyrirtækjum og stofnunum, sem valin eru útlend nöfn og festast í málinu, ekki aðeins um stundarsakir, heldur um lengri tíma, ef þessum fyrirtækjum verður langra lífdaga auðið. Og á veitingahúsum og í ótalmörgum tilfellum, jafnvel á mörgum íslenzkum vörum, sem hér eru á boðstólum innanlands, — það er skiljanlegt með vörur, sem fara á erlendan markað, — eru útlend heiti. Allt þetta ásamt nöfnunum, sem hér hefur verið rætt um, er viss hætta fyrir okkar mál, og það væri mikils um vert, ef hægt væri að sameina alla góða krafta um að reyna að hefja herferð gegn þeim siðvenjum að taka upp þessi útlendu heiti.
En varðandi þetta mál, sem hér er um að ræða, þá held ég á þessu stigi málsins, meðan við höfum ekki treyst okkur til að framfylgja þessum lögum betur en gert hefur verið gagnvart okkar eigin borgurum, sem við höfum alltaf haft lögsögu yfir, að ekki sé hægt að ganga með þeirri hörku í þetta mál, sem hér er lagt til. Ég vil lýsa því yfir fyrir mitt leyti, að þótt ég hefði ekki treyst mér til að greiða till. atkv., eins og hún upphaflega lá fyrir, um að falla algerlega frá öllu eftirliti með þessu, því að ég er fullkomlega með þeirri stefnu, sem túlkuð hefur verið í lögunum, eins og þau hafa verið afgreidd á undanförnum þingum, þá felli ég mig samt betur við og finnst á allan hátt viðurkvæmilegri sú aðferð, sem lagt er til að taka upp í till. hæstv. menntmrh. og meðflutningsmanna hans.