01.02.1957
Efri deild: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)
32. mál, orlof
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á lögum nr. 16 frá 26. febr. 1943, um orlof, sem hér er til umr., hefur heilbr.- og félmn. haft til meðferðar. Gáfu nm. út sameiginlegt álit á þskj. 203, sem hv. 2. þm. Árn. og ég höfum þó undirskrifað með fyrirvara. Fyrirvari okkar byggðist á því, að við óskuðum að afla okkur, sérstaklega um eitt atriði frv., nánari upplýsinga en fyrir lágu á þeim eina fundi n., er fjallaði um þetta mál.
Eftir að við höfum nú kynnt okkur betur nefnt atriði frv., getum við fallið frá fyrirvara okkar og mælt með samþykkt frv. eins og það er.