04.02.1957
Sameinað þing: 24. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (3331)

94. mál, þingrof og nýjar kosningar

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Hér liggur fyrir hv. Alþingi nokkuð skrýtin till. Það er vantrauststill. á ríkisstj. og þó jafnframt ekki vantraust, heldur almenn þáltill. um þingrof og kosningar einhvern tíma seinna, sennilega í vor eða sumar. Hvers vegna gat nú hin harða stjórnarandstaða ekki mannað sig upp í það að flytja ákveðna vantrauststillögu á stjórnina? Vafalaust hefur hún gert sér það ljóst, að slík till., borin fram í sama mund og stjórninni hafði einmitt tekizt að ráða fram úr efnahagsmálaöngþveiti því, sem íhaldsstjórnin skildi eftir sig, mundi vekja kátínu, jafnvel hlátur um allt land, en kátína og hlátur er einmitt það, sem skapsmunir hv. 1. þm. Reykv. eiga einna verst með að þola. Þess vegna varð till. hvorki fugl né fiskur, einstætt fyrirbrigði í þingsögunni, eins konar háðsmerki um hina hörðu stjórnarandstöðu sjálfa.

Þó að Sjálfstfl. hefði nú mannað sig upp í að bera fram ákveðna vantrauststill. á stjórnina, sem ekki er til að dreifa, tel ég, að henni hefði verið fullsvarað og vel það með traustsyfirlýsingu, sem ríkisstj. hlaut rétt um sömu mundir á þingi Alþýðusambands Íslands. Þar voru saman komnir á fjórða hundrað fulltrúar allra flokka manna úr öllum landshlutum, frá nálega öllum verkalýðsfélögum landsins. Þar voru rædd atvinnu- og kjaramál vinnustéttanna frá öllum hliðum, og að þeim umr. loknum var samþykkt mótatkvæðalaust svo hljóðandi traustsyfirlýsing:

„25. þing Alþýðusambands Íslands lýsir fyllsta trausti á núv. ríkisstj. og stefnu hennar og telur, að með myndun hennar hafi alþýðustéttirnar skapað sér möguleika til betri lífskjara. Jafnframt því, sem þingið heitir á verkalýðssamtökin að standa traustan vörð um ríkisstj. og veita henni allan stuðning í orði og verki í uppbyggingarstarfi hennar, fordæmir þingið allar tilraunir afturhaldsafla og útsendara þeirra til að sundra samstöðu þeirra flokka, sem að stjórninni standa.“

Þetta var afstaða Alþýðusambandsþingsins í haust. Þessi samþykkt gefur skýra hugmynd um traust það, sem stjórnin nýtur hjá alþýðustéttunum, en tillöguómynd stjórnarandstöðunnar, sem hér er til umr., er hins vegar ekkert annað en vindur í vatnsglasi, en enginn fellibylur.

Út af fáu, sem stjórnin hefur gert, hefur verið hamazt öllu meira en gegn baráttu hennar fyrir stöðvun dýrtíðarinnar. Hefur ekkert verið sparað til þess að torvelda árangur í því máli og sá tortryggni gegn öllum ráðstöfunum stjórnarinnar til þess að draga úr verðhækkunum. Og nú þegar komið er fram fyrir þjóðina í útvarpsumr. á Alþingi, er stjórninni brigzlað um svík á öllum sínum loforðum. Hverju var lofað t.d. í dýrtíðarmálunum? Í stjórnarsáttmálanum segir svo um það atriði: „Ríkisstj. lítur á stöðvun verðbólgu og dýrtíðar sem eitt höfuðverkefni sitt.“ Þetta er loforðið í þessu máli, og hvað hefur þá verið gert til þess að efna það, hver er árangurinn?

Undireins og stjórnin tók við, fór hún að undirbúa þetta mál, og þegar stjórnin hafði setið aðeins rúman mánuð að völdum, var hún tilbúin með aðgerðir. Þá setti hún brbl. um festingu verðlags og kaupgjalds. Samkv. þeim lögum skyldu allar verðhækkanir bannaðar næstu fjóra mánuði eða til nýliðinna áramóta, en þess ber að minnast, að það var verkalýður landsins, sem steig fyrsta skrefið. Hann afsalaði sér 6 stiga kaupgjaldshækkun, sem hann átti rétt á að fá eftir nokkra daga. Síðan kom stjórnin í veg fyrir hækkun landbúnaðarvara, sem átti að koma til framkvæmda nokkrum dögum síðar. Aðeins með því að fara svona að, var hægt að framkvæma stöðvunaraðgerðir gagnvart öllum öðrum aðilum.

Þessar aðgerðir stjórnarinnar vöktu strax mikla athygli erlendis og þóttu spá góðu, en íhaldið hér trylltist. Það hóf upp brigzl um gróf verkalýðssvik og kauprán, og Morgunblaðið varð að algerum umskiptingi. Í stað áratuga baráttu sinnar gegn öllum kauphækkunum og hvers konar kjarabótum verkalýðsins felldi það nú höfug tár yfir því, að það vantaði við hverja útborgun svo og svo margar krónur í umslag hvers verkamanns. En þessi pólitísku buxnaskipti íhaldsins villtu verkamönnum ekki sýn. Þessi ráðstöfun hafði nefnilega verið gerð í nánu samráði við og að eindreginni ósk helztu verkalýðssamtakanna og bændasamtakanna í landinu. Menn vildu fúslega vinna það til að fá færri krónur upp úr umslagi sínu, ef jafnframt væri um það séð, að þeir kæmust .hjá því að greiða nauðsynjar sínar síhækkandi verði. Og þetta var ekki afstaða, sem verkalýðssamtökin höfðu tekið nú fyrst eftir bænarstað hinnar nýju ríkisstj. Nei, allt tal um stefnubreytingu hjá verkalýðssamtökunum í dýrtíðarmálum í sambandi við þessi mál er alveg út í hött og á algerum misskilningi byggt.

Verkalýðssamtökin höfðu árum saman skorað á stjórnarvöldin að gera ráðstafanir til stöðvunar á dýrtíðinni, en alltaf höfðu þær kröfur mætt daufum eyrum.

Þessu til sönnunar vil ég nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér ályktun Alþýðusambands Íslands um kaupgjalds- og dýrtíðarmál, gerða á 21. þingi þess haustið 1949, og síðan hefur stefnan verið óbreytt og allar kröfur samtakanna beinzt að stöðvun dýrtíðar, en fáist það ekki fram, hefur jafnan verið samþykkt, að þá skyldi mætt vaxandi dýrtíð með kröfu um hækkun kaups. Ályktunin er svona:

„21. þing Alþýðusambands Íslands, haldið í nóv. 1949, krefst þess af ríkisvaldinu, að það geri þegar öflugar ráðstafanir til stöðvunar vaxandi dýrtíðar og — ef unnt er — til beinnar niðurfærslu dýrtíðarinnar. Þingið gerir sér ljóst, að dýrtíðin er þegar komin á það stig í landinu, að af henni getur þá og þegar leitt víðtæka stöðvun atvinnutækja, sem verkafólk á þúsundum saman afkomu sína undir. Þess vegna er fyrsta krafa þessa þings alþýðusamtakanna alger stöðvun eða lækkun dýrtíðarinnar. Haldi dýrtíðin hins vegar áfram að vaxa, felur þingið væntanlegri sambandsstjórn að vernda hagsmuni verkalýðsins með því að beita sér fyrir grunnkaupshækkunum, þannig að raunverulegur kaupmáttur vinnulaunanna rýrni ekki frá því, sem nú er. Þingið telur þó síðarnefndu leiðina algera nauðvörn verkalýðssamtakanna, þar sem allt bendir til þess, að afleiðingar almennra kauphækkana gætu orðið þær, að grundvöllurinn, útgerð og fiskiðnaður, bilaði, svo að hækkað tímakaup leiddi síður en svo til hækkaðra árstekna eða aukinnar kaupgetu verkalýðsstéttarinnar.“

Þannig hefur stefna Alþýðusambandsins í kaupgjalds- og dýrtíðarmálum verið þau 8 ár, sem síðan eru ]iðin, að þessi samþykkt var gerð. Og dýrtíð og verðbólga hafa geisað sem eyðandi eldur í þjóðfélaginu. Það hefur rýrt kaupmátt launanna, valdið stöðvun atvinnulífsins um hver áramót og raunar miklu oftar. Landinu hefur verið stjórnað að vilja braskaranna. Aldrei hafði þó dýrtíðin vaxið hraðar en einmitt s.l. ár.

Þann 1. sept. 1955 var vísitalan orðin 164 stig. Í ágústmánuði í sumar var hún orðin 184 stig, hækkun 20 stig. Síðan ríkisstj. Ólafs Thors hafði gert sínar seinustu svokölluðu dýrtíðarráðstafanir, hafði dýrtíðin vaxið um 13 stig á tæpu hálfu ári. Skriðurinn var sem sé alltaf að þyngjast. Það var fyrirsjáanlegt við stjórnarskiptin, að ef ekkert yrði að gert, mundi vísitalan í ársbyrjun 1957 verða komin yfir 200 stig, og gat engum heilskyggnum manni dulizt, að það þýddi algera stöðvun framleiðsluatvinnuveganna, enda lá þeim við stöðvun í ýmsum greinum strax á miðju sumri.

Þannig var ástandið, þegar núv. stjórn tók við völdum, og hvernig hafa verðstöðvunarráðstafanir stjórnarinnar tekizt? Hafa þær borið nokkurn árangur? Ef til vill lætur einhver sér detta í hug, að stjórnin hafi látið hætta að reikna út vísitölu, meðan verðstöðvunarlögin giltu. En svo er ekki. Vísitalan hefur verið reiknuð út á sama hátt og áður, og það gleðilega hefur gerzt, að hún hefur ekki hækkað um eitt einasta stig síðustu fimm mánuði. Verðhækkunaraldan hefur þannig verið brotin. Stöðvunin hefur algerlega tekizt. Svikabrigzl íhaldsins í þessu stórmáli eru þannig tilefnislaus með öllu og fleipur eitt, enda hefur svo farið, að tortryggingarherferð íhaldsins gegn stjórninni í dýrtíðarmálum hefur orðið því hin mesta hrakför, eins konar Súez-herferð.

Enn kunna menn að segja: Hvað nú, eftir ráðstafanir ríkisstj. í efnahagsmálum? Fer nú ekki dýrtíðarflóðaldan á stað? — Um það vil ég segja þetta: Nýju álögurnar eru bein afleiðing af taumlausri verðbólgustefnu íhaldsins á undanförnum árum. Ef verðstöðvunin hefði ekki verið framkvæmd í sumar, þá hefðum við nú nauðugir viljugir orðið að skella á stórfelldri gengislækkun, og það er einmitt það, sem skuldakóngarnir og verðbólgubraskararnir vonuðu að yrði gert og vildu umfram allt fá. En þeir fengu enga gengislækkun, og það urðu þeim vonbrigði. Svo mikið er víst, að hefði gengislækkun verið framkvæmd, þá væri nú riðin yfir ný stórkostleg verðhækkunaralda, sem farið hefði um allt eins og logi yfir akur og engu þyrmt, hefði lagzt jafnt á allar almennar og brýnar nauðsynjar almennings sem á óhófsvarning auðmanna.

Nú var sú leið valin að sleppa brýnustu nauðsynjavörum. almennings við öllum nýjum álögum og taka féð, sem tryggja varð til að skapa framleiðsluatvinnuvegunum rekstrargrundvöll og fyrirbyggja stöðvun þeirra, með stighækkandi gjöldum, eftir því sem vörurnar voru minna nauðsynlegar, og þessi leið var valin í nánu samstarfi og samráði við fulltrúa allra stærstu almannasamtakanna í landinu til sjávar og sveita.

Að því er alþýðusamtökin snerti kaus seinasta Alþýðusambandsþing 19 manna efnahagsmálanefnd, skipaða fulltrúum frá flestum stærstu verkalýðsfélögum landsins. Þessi fjölmenna nefnd skyldi ásamt miðstjórn Alþýðusambands Íslands vinna að því ásamt ríkisstj. og fulltrúum annarra almannasamtaka að finna þær leiðir, sem vinnustéttirnar gætu bezt sætt sig við, út úr efnahagsmálaöngþveiti því, sem skapazt hafði undir stjórn Ólafs Thors, hv. þm. G-K. Allir vissu, að nú yrði að leggja þungar byrðar á flestra herðar, og það vitum við, sem í verkalýðssamtökunum höfum starfað, að alþýða landsins er ekki sérhlífin. Hún býðst ekki undan að bera sínar byrðar. Hún krefst aðeins réttlætis. Alþýðusambandsþingið hafði eindregið mótmælt gengislækkunarleiðinni, en lagði síðan aðaláherzlu á, að þær ráðstafanir, sem gerðar yrðu, skyldu fyrst og fremst miða að því að leggja grundvöll aukinnar og jafnari atvinnu, leggja grundvöll að auknum þjóðartekjum. Í þessum anda starfaði svo efnahagsmálaráð Alþýðusambandsins að lausn vandamálanna, og í ályktun þeirri, sem það gerði, var tekið fram, að efnahagsmálaráðið mælti með því við verkalýðsfélögin, að stjórninni yrði veittur vinnufriður til þess að framkvæma þessar aðgerðir.

En verða nú samt ekki hækkanir á ýmsum vörum vegna aðgerða stjórnarinnar í efnahagsmálum? Jú, vissulega verður ekki hjá því komizt. Enginn getur tekið á þriðja hundrað milljóna, án þess að það segi til sín einhvers staðar í verðlaginu. En þær hækkanir, sem hér á eftir koma, munu falla inn í vísitöluna, því að vísitölufestingin gilti aðeins til seinustu áramóta. Það er líka staðfest áform ríkisstj. að gera allt, sem í hennar valdi stendur, til að draga úr verðhækkunum. Það getur t.d. ekki farið fram hjá mönnum, að strax daginn eftir að lögin um útflutningssjóð voru sett auglýsti innflutningsskrifstofan lækkun á heildsöluálagningu á fjölda vara, sem nam 30–70%. Heildsöluálagning á rúgmjöli, hveiti, haframjöli, sigtimjöli, fóðurmjöli, fóðurkorni, molasykri, kartöflumjöli, hrísmjöli, hrísgrjónum, baunum, sagógrjónum og sagómjöli lækkaði t.d. samkv. þessari tilkynningu um 30%. Á þurrkuðum ávöxtum lækkaði heildsöluálagningin um 70%, á haframjöli, hrísgrjónum og baunum í pökkum um 60%, á öllum öðrum nýlenduvörum um ca. 67%. Heildsöluálagning á lérefti, sirsi, flóneli og tvisttaui lækkaði um 50%, á karlmannafataefnum, frakkaefnum, dragtaefnum, húsgagnaáklæði, gólfdreglum, gólfteppum, prjónagarni o.fl. um 50–60%, frakkar, kápur, blússur og unglingafatnaður um 60%, gúmmístígvél og skófatnaður um 60%, leir- og glervörur um 50%, önnur búsáhöld, borðbúnaður, handverkfæri, burstavörur o.fl. um 50%. Og heildsöluálagning af rafmagnsvörum lækkaði um 65%.

Þetta voru fyrstu aðgerðirnar til viðnáms hækkandi verðlagi. Nú er unnið af kappi að því að koma á almennum verðlagsákvæðum, og smásöluálagningin verður endurskoðuð á sama hátt og heildsöluálagningin. Landinu verður skipt í allmörg takmörkuð verðlagssvæði. Verðgæzlumaður verður skipaður fyrir hvert svæði, og öll verkalýðsfélög landsins eru beðin að kjósa fulltrúa, sem vaki yfir verðlagsmálunum á sínu félagssvæði og hafi síðan náið samstarf við verðgæzlumann svæðisins og við verðlagsstjóra, ef ástæða þykir til. Þannig höfum við hugsað okkur að búast til varnar í þessum málum.

Tröllasögur þær, sem íhaldsblöðin ástunda nú daglega að breiða út um yfirvofandi verðhækkanir, eru sem betur fer staðlausir stafir. Sumpart eru þær blátt áfram hugsaðar sem sölubrellur til þess að skapa kaupæði og reyna að koma út gömlum birgðum lélegra vara. Á þeim sögum er því hæfilegt mark takandi. En því getur íhaldið ekki beðið eftir raunveruleikanum? Óttast það kannske, að stjórninni kunni að takast að halda dýrtíðinni að mestu í skefjum þrátt fyrir syndagjöldin, sem greiða varð vegna íhaldsstjórnarfarsins. Alþýða landsins mun a.m.k. ekki tryllast af grýlusögum íhaldsins í verðlagsmálum. Hún mun biða raunveruleikans og verða framvegis sem hingað til traustur bandamaður ríkisstj. í baráttunni gegn

dýrtíð og verðbólgu. Það vita alþýðustéttirnar vel, að góður árangur í þessum málum er þeirra mesta hagsmunamál og jafnframt hin bezta þjónusta við atvinnulífið, eins og nú er háttað málum.

En hvernig er það? Langar ekki hv. hlustendur til að fá að heyra um úrræði íhaldsins í dýrtíðar- og efnahagsmálum? Og hvernig stendur á því, að hvorugur málsvari íhaldsins í þessum umræðum hefur gert nokkra minnstu grein fyrir þeim bjargráðum? Það er vægast sagt aum frammistaða, sem áreiðanlega verður tekið eftir í þessum umræðum.

Formælendur Sjálfstfl. hafa í kvöld verið að fárast yfir tekjuöflun ríkisstj. til þess að fyrirbyggja stöðvun atvinnulífsins. En ég spyr: Væri þeim ekki sjálfum hollt að líta í eigin barm og minnast þess, að í fyrra hækkuðu íhaldsstjórnendur Reykjavíkurbæjar útsvörin um 47 millj. kr., upp í 165 millj. Og núna rétt fyrir jólin tilkynntu þeir og ákváðu, að útsvörin skyldu nú í ár verða 200 millj. Það var þeirra jólagjöf. Veit þó enginn, að það sé vegna nokkurs annars en aukinna rekstrarútgjalda við bæjarbáknið. Frýjuorð sjálfstæðismanna út af frestun uppsagnar á herverndarsamningnum læt ég mér í léttu rúmi liggja. Alþýðubandalagið taldi aðstæður ekki heppilegar, eins og á stóð í nóvembermánuði, til þess að taka upp samninga um brottför hersins. Við kusum því heldur að fresta samningum fyrst um sinn. Hitt er skiljanlegt, að hernámsflokkur eins og Sjálfstfl. vilji helzt velja til slíkra samninga sem óhagstæðastan tíma fyrir Íslendinga. Varanlegt hernám er þeirra áhugamál, og er engu líkara en að þeir sjálfir líti á sig sem umboðsmenn fyrir kaupmenn dauðans og hervaldasinnana í heiminum. Endurskoðun verður áreiðanlega tekin upp, þegar aðstæður batna, og ekki er annað vitað en að stjórnin sé öll sammála um að ganga fast eftir því loforði, að hér skuli ekki vera her á friðartímum.

Ríkisstj. Ólafs Thors vann það afrek að kaupa engan togara til landsins á s.l. átta árum, en kaupa inn a.m.k. 5 þúsund bíla á sama tíma. Slík stj. fékk auðvitað hvergi lán erlendis. Nú hafa verið ákveðin kaup 6 allstórra vélskipa og 15 togara, en dregið verður aftur úr innflutningi bíla. Verið er að afla lánsfjár til framhaldsvirkjunar Sogsins, og lokið verður byggingu orkuveranna á Austfjörðum og Vestfjörðum um næstu áramót. Byggingu sementsverksmiðjunnar verður að sjálfsögðu hraðað.

Þessar og ótalmargar framkvæmdir kalla á meira vinnuafl en við höfum yfir að ráða. Á togurum okkar er enn sem fyrr mikið af færeyskum sjómönnum. Landbúnaðurinn ræður nú til sín erlent vinnuafl í vaxandi mæli, og nú er í fyrsta sinn flutt inn erlent kvenfólk til vinnu í hraðfrystihúsum. Af þessu er bert, að við höfum ekkert vinnuafl aflögu til hernaðarframkvæmda.

Atvinnuleysi þarf því enginn að kvíða, og stóraukin þjóðarframleiðsla mun tryggja vinnustéttunum bætt lífskjör, ef okkur aðeins tekst að hamla gegn vaxandi dýrtíð.

Í samræmi við upphafsorð stjórnarsáttmálans voru efnahagsmálin nú leyst í fyrsta sinn í íslenzkri stjórnmálasögu í nánu samstarfi við samtök verkalýðs, launþega, bænda, útgerðarmanna, eigenda fiskiðjuvera og annarra framleiðenda, og þetta tókst með þeim ágætum, að það má nú telja víst, að svipuðum vinnubrögðum verði fylgt í næstu framtíð. En þá skeður einmitt það furðulega. Þegar sýnt var, að engin stöðvun yrði á atvinnuvegunum og rekstrargrundvöllur útgerðarinnar tryggður, missti íhaldsliðið alla stjórn á sér hér á Alþingi, bar fram dulbúna vantrauststillögu á ríkisstj. Slíkt er ómerk stjórnarandstaða og misvitur, eins og ljóslega hefur nú orðið bert í þessum umr. Sjálfstfl. langar sannarlega ekki í kosningar í vor. Hann er hræddur og hefur uppi mannalæti.