02.11.1956
Neðri deild: 10. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
12. mál, festing verðlags og kaupgjalds
Gunnar Jóhannsson:
Herra forseti. Nokkrir hv. alþm. Sjálfstfl. hafa rætt allmikið um þá ráðstöfun hæstv. ríkisstj. frá í sumar að gefa út brbl. um festingu verðlags og kaupgjalds. Í ræðum þessara hv. alþm. hefur að sjálfsögðu ekkert nýtt komið fram í málinu, enda hafa ræður þessar lítið verið annað en endurtekningar á skrifum blaða Sjálfstfl. frá því í sumar og haust.
Í skrifum Sjálfstæðisflokksblaðanna og í ræðum hv. þm. Sjálfstfl. hér á Alþ. er því mjög á lofti haldið, að ekki hafi verið haft samráð við verkalýðssamtökin um setningu brbl., lögunum hafi verið skellt á, án þess að verkalýðssamtökin hafi verið spurð ráða og án þess að fyrir lægi álit þeirra í málinu.
Þessar og þvílíkar fullyrðingar eru algerlega úr lausu lofti gripnar, eins og er margbúið að sanna, og eru hrein og bein ósannindi. Í fyrsta lagi var málið rætt í miðstjórn Alþýðusambands Íslands, sem lýsti sig sammála því, að fest yrði allt verðlag í landinu og kaupgjald um tiltekinn tíma, þ. e. a. s. ef verkalýðsfélögin almennt vildu fallast á þessa skoðun. Vísitalan átti að miðast við 168 stig að viðbættum 10 stigum, eða samtals vísitalan 178 stig. Verðlagið skyldi verða óbreytt eins og það var 15. ágúst s. l.
Þá gerði miðstjórn Alþýðusambands Íslands ráðstafanir til þess, að fjórðungsstjórnir alþýðusambanda Vestfjarða, Norðurlands og Austfjarða segðu sitt álit um málíð og leituðu eftir umsögn allra stærstu verkalýðsfélaganna í viðkomandi landsfjórðungum. Mér er persónulega kunnugt um, að þetta var gert, þar sem ég er formaður eins verkalýðsfélags á Norðurlandi, og það var látið fylgja með, að ef verkalýðshreyfingin sæi sér ekki fært að samþykkja þessar ráðstafanir í verðlags- og kaupgjaldsmálum sem bráðabirgðaúrlausn, sem átti að gilda í fjóra mánuði, þ. e. a. s. vísitölubindingin, en verðlagið átti að miðast við 15. ágúst, 4½ mánuð, yrðu engar slíkar ráðstafanir gerðar, engin brbl. gefin út um festingu verðlags og kaupgjalds nema með samþykki verkalýðssamtakanna. Það var því algerlega á þeirra valdi og með þeirra vilja gert, að þessi leið var farin. Bæði fjórðungsstjórnirnar, trúnaðarráð og félagsfundir í fjölda verkalýðsfélaga samþykktu fyrir sitt leyti þessar bráðabirgðaráðstafanir, þó með því skilyrði, að fullt samráð yrði haft við verkalýðssamtökin um endanlega lausn efnahags- og dýrtíðarvandamálsins.
Hér í Reykjavík t. d. var málið lagt fyrir fund, þar sem voru mættir flestallir stjórnendur verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Á þessum fundi var samþ. með yfirgnæfandi meiri hluta, yfir 90 atkv. gegn 17, að lýsa yfir stuðningi sínum við þessar ráðstafanir, sem þá voru að komast í gang og ríkisstj. hafði gert í sambandi víð þetta mál. Nokkur verkalýðsfélög hér í Reykjavík héldu svo félagsfund um málið og lýstu yfir með fundarsamþykkt fylgi sínu við setningu brbl.
Það er því mesta fjarstæða, þegar blöð Sjálfstfl. og hv. þm. þessa flokks eru að halda því fram dag eftir dag, viku eftir viku í opinberum skrifum og ræðum hér á Alþ., að það hafi ekki verið haft samstarf um þessi mál við verkalýðssamtökin í landinu. Hér er sannleikanum alveg gersamlega snúið við. Eftir því sem bezt verður séð, hefur hæstv. ríkisstj. haft hið bezta samstarf og samráð við verkalýðssamtökin um þetta mál, enda er hér um stórkostlegt hagsmunamál launastéttanna að ræða, og hér var sannarlega á ferðinni alveg sérstakt vandamál, sem launastéttirnar og alla þjóðfélagsheildina varðaði alveg sérstaklega.
Um líkt leyti eða nokkrum vikum eftir að lögin voru sett, stóðu yfir kosningar til Alþýðusambands Íslands. Í þessum kosningum tóku þátt hvorki meira né minna en milli 150 og 160 félög, sem eru meðlimir í Alþýðusambandi Íslands. Hver var afstaða þessara voldugu samtaka í landinu til þessara mála, verkalýðsfélaganna sjálfra, þegar þau voru að kjósa fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands? Ekkert var eðlilegra en að þessi mál væru rædd í sambandi við kosningarnar, og þau voru sannarlega rædd. Ég efast um, að það hafi verið haldinn sá fundur í verkalýðsfélagi, sem kaus fulltrúa á Alþýðusambandsþing Íslands, að þessi mál hafi ekki verið rædd. Fjölmörg þeirra sendu þegar frá sér mjög ákveðnar till. í málinu og lýstu sig algerlega sammála því, sem gert hefur verið. Ég veit ekki nema um þrjú félög, sem hafa lýst sig að einhverju leyti ósammála þessum ráðagerðum. Eitt þessara félaga reyndar telur nú ekki nema 13 meðlimi, en það skiptir ekki máli.
En þá langar mig að spyrja: Hvar var þessi mikli styrkur Sjálfstfl. innan verkalýðsfélaganna, sem hv. 1. þm. Reykv. var að tala um í þingræðu hér um daginn? Hann sagði, að fylgi Sjálfstfl. í verkalýðshreyfingunni á Íslandi stæði traustum fótum. Hvar var þessi mikli styrkur og þetta mikla fylgi Sjálfstfl. t. d. á 500 manna fundi í Dagsbrún, þar sem kosnir voru 33 fulltrúar á þing Alþýðusambands Íslands? Ég var ekki á þessum fundi, en eftir því sem ég veit bezt, hreyfði enginn einasti maður þar mótmælum, ekki einn einasti. Það kom engin till. fram um neitt í sambandi við þetta mál, sem mælti á móti því. Eru þessir fylgjendur Sjálfstfl. innan verkalýðssamtakanna einhverjir huldumenn, sem enginn sér og enginn verður var við? Sannleikurinn er sá, að fylgjendur Sjálfstfl. innan verkalýðshreyfingarinnar eru sammála öðrum meðlimum verkalýðshreyfingarinnar í þessari afstöðu, sem tekin var, — það er staðreynd í málinu, — mikill meiri hluti þeirra, hvað sem svo hv. þingmenn Sjálfstfl. vilja hér segja í ræðu og í ritgerðum sínum í blöðum flokksins.
Sjálfstæðisverkamennirnir skilja það mætavel eins og við, sem ekki fylgjum þeim flokki, að dýrtíðarflóðið er böl, sem verður að stöðva með öllum þeim ráðum, sem tiltækileg eru, þó án þess, að lífskjörin séu skert frá því, sem nú er, enda að okkar dómi algerlega ástæðulaust að fara inn á slíka braut.
En fyrst nú hv. þm. Sjálfstfl. gera svona mikið úr því, að ekki hafi verið haft svo og svo mikið samráð og samstarf við verkalýðshreyfinguna um þessi mál, sem er margyfirlýst og sannað að er alger fjarstæða, þá er ekkert úr vegi að spyrja þessa ágætu alþingismenn að því og aðra forsvarsmenn Sjálfstfl.: Hvernig var það, þegar gengisfellingarlögin voru samþykkt hér á Alþingi veturinn 1950? Var haft mikið samráð og samstarf við verkalýðshreyfinguna, þegar þau lög voru knúin í gegn á móti svo að segja vilja hvers einasta manns í verkalýðshreyfingunni, a. m. k. stórum meiri hluta? Ég minnist ekki þess, að það væri haft neitt samráð eða neitt samstarf eða eftir neinu samstarfi óskað þá af þeirri ríkisstjórn um neitt við verkalýðshreyfinguna. Hvernig var það, þegar bátagjaldeyrisfyrirkomulaginu var skellt á? Það var alveg nákvæmlega sömu sögu að segja. Það var ekki verið að spyrja verkalýðshreyfinguna neitt um það. Þeir fóru sínar leiðir, án þess að hafa nokkra samvinnu við heildarsamtökin í þessu landi. Þannig mætti halda áfram að benda á fjölmargar ráðstafanir, sem fyrrv. ríkisstjórnir gerðu, og er skammt að minnast á t. d. hinar gífurlegu tolla- og skattaálögur frá því í fyrravetur. Allar slíkar ráðstafanir hafa verið gerðar án þess að hafa nokkurt samstarf við verkalýðshreyfinguna, þó að það væri á allra vitorði, að flestar þeirra — eða allar réttara sagt rýrðu kjör launastéttanna að meira eða minna leyti og hafa ófrávíkjanlega allar orðið til þess að auka dýrtíðarflóðið í landinu að stórum mun.
Svo koma þessir hv. alþm. Sjálfstfl. hér upp í ræðustólinn og vita núverandi hæstv. ríkisstj. og forustumenn verkalýðssamtakanna m. a. fyrir það, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki haft samráð við verkalýðssamtökin, og svo vita þeir forustumenn verkalýðsfélaganna fyrir það að hafa viljað ganga inn á þær brautir, sem lagt var til í frv., sem verkalýðsfélögunum var sent eða þau látin vita af.
Öðrum ferst, en ekki þér, má segja um forustumenn Sjálfstfl. Engir hafa gengið lengra í því að sniðganga óskir og kröfur launastéttanna en einmitt þeir, og engir hafa barizt hatramlegar og verið hatramari andstæðingar verkafólks en forustumenn Sjálfstfl., þegar verkalýðssamtökin hafa farið fram á kjarabætur eða átt í kaupdeilum við atvinnurekendur.
Hv. þingmenn Sjálfstfl. halda því fram, að verkfallið 1955 hafi verið knúið fram af kommúnistum í verkalýðsfélögunum og núverandi stjórn Alþýðusambands Íslands. Sérstaklega verður þeim tíðrætt um þátt hæstv. félmrh. og forseta Alþýðusambandsins í deilunni.
Ég dreg það ekki í neinn vafa, að forseti Alþýðusambands Íslands og stjórn Alþýðusambandsins hafi með ráði og dáð stutt verkafólkið, sem átti í deilunni, enda til þess kjörin af heildarsamtökunum að styðja verkalýðshreyfinguna í hagsmunabaráttunni, hvenær sem þess gerist þörf. Hitt er svo aftur á móti hin mesta fjarstæða, að halda því fram, að það hafi verið forseti Alþýðusambandsins, núverandi hæstv. félmrh., ásamt kommúnistunum, sem knúið hafi verkfallið í gegn. Sannleikurinn er sá í því máli, að öll verkalýðshreyfingin, hér í Reykjavík og annars staðar, stóð saman sem einn maður, og að sjálfstæðismenn í verkalýðsfélögunum gerðu engan ágreining, þegar þessi mál voru til umræðu í verkalýðsfélögunum, og greiddu atkv. með uppsögn samninganna og verkfallsboðunum.
Hvernig stóð á því, að verkalýðsfélögin töldu sig knúin til uppsagnar á kaupgjaldssamningum við atvinnurekendur? Því er fljótsvarað. Það var vegna þess, að freklega hafði verið gengið á rétt verkafólksins í landinu, kjör þess höfðu verið rýrð langt fram yfir það, sem hægt var að una við, verðlag hafði stórlega hækkað á öllum vörum og þjónustu, án þess að það kæmi fram í hækkaðri vísitölu nema að litlu leyti. Ríkisstj., sem Sjálfstfl. bar ábyrgð á, gerði litlar tilraunir eða engar til þess að halda verðlaginu í landinu í skefjum. Þegar svo var komið, að kaupmáttur launanna hafði ár frá ári rýrnað, þrátt fyrir það að verkalýðshreyfingin hafði í mörgum tilfellum staðið á móti, eftir því sem hægt var, varð ekki hjá því komizt að grípa til róttækari ráðstafana, og verkalýðshreyfingin sem heild varð algerlega sammála um þær ráðstafanir, sem gerðar voru. Þar réðu engin flokkssjónarmið, heldur var hér um að ræða hreina og beina nauðvörn.
Að loknu verkfalli 1955 endurtók sig svo enn á ný sami leikurinn. Ríkisstj. gerði ekkert til þess að stöðva verðhækkanirnar, sem nú dundu yfir, en ekki voru í neinu samræmi við þá hækkun á kaupgjaldi og öðrum fríðindum, sem samið hafði verið um. Dýrtíðarskrúfan hélt áfram að vaxa hröðum skrefum, og braskarar og alls konar milliliðir döfnuðu sem fíflar í túni á vordegi. Þegar hér var komið málum, sáu verkalýðssamtökin, að við svo búið mátti ekki standa, og m. a. fyrir atbeina verkalýðssamtakanna og fyrir skilning og aðstoð bændasamtakanna í landinu er núverandi ríkisstj. til orðin.
Því hefur verið haldið fram af þingmönnum Sjálfstfl., að núverandi hæstv. ríkisstj. hafi ekki traust eða stuðning launastéttanna í landinu og ekki heldur stuðning bændastéttarinnar, m. a. vegna setningar brbl. um festingu verðlags og kaupgjalds um tiltekinn tíma. Ég held, að þetta sé alveg öfugt. Núverandi ríkisstj. nýtur trausts mikils meiri hluta launastéttanna og sveitafólksins, m. a. fyrir þær aðgerðir, sem þegar hafa verið gerðar í verðlags- og dýrtíðarmálunum í fullu samræmi og samráði við aðalstéttir þjóðfélagsins. Það er augljóst mál, að launastéttirnar græði ekki á vaxandi dýrtíð, enda hefur verkalýðshreyfingin ætíð verið reiðubúin til viðræðna og samninga um þessi mál. En fyrrverandi ríkisstjórnir hafa ekki verið til viðræðna við verkalýðshreyfinguna um málin. (Gripið fram í: Það er algerlega rangt.) Þetta er rétt. Hins vegar hlýtur öllum þeim, sem um þessi mál hugsa í alvöru, að vera það ljóst, að verkalýðshreyfingin varð að fá fullnægjandi tryggingu fyrir því, að allt verðlag í landinu skyldi haldast óbreytt, ef vísitalan ætti að standa í stað. Verkalýðshreyfingin gerði sér ekki að góðu, þótt nokkrar ákveðnar vörutegundir og þá þær, sem mest verka á vísitöluna til lækkunar, yrðu greiddar niður úr ríkissjóði, en allar aðrar vörur og þjónusta mætti hækka allt að því ótakmarkað. Slík hrossalækning á ástandinu er ekki það, sem launastéttirnar óska eftir, heldur hið gagnstæða. Setning laganna um festingu verðlags og kaupgjalds er aðeins bráðabirgðaráðstöfun, sem á að gilda frá 1. sept. til 31. des.
Verkalýðshreyfingin hefur engum rétti afsalað sér í sambandi við þetta mál og mun hér eftir sem hingað til standa vörð um hagsmuni meðlima sinna, og eitt er víst, að efnahagsvandamálið og dýrtíðarvandamálið verður aldrei leyst á raunhæfan hátt nema í fullu samstarfi við verkalýðssamtökin og önnur fjöldasamtök í landinu. Þetta ættu menn að vera farnir að skilja af því, sem á undan er gengið. Á þann eina hátt og með fullu samstarfi við hið vinnandi fólk til lands og sjávar er hægt að leysa yfirstandandi efnahagsörðugleika án þess að skerða lífskjör fólksins í landinu. Þessa leið hefur Sjálfstfl. aldrei viljað fara. Hins vegar er þessi stóri flokkur nú í stjórnarandstöðu. Þess vegna hefur þessi flokkur ekki traust alþýðustéttanna. Það traust öðlast Sjálfstfl, aldrei. Til þess hræða sporin of eftirminnilega.
Það þýðir ekkert, þótt Sjálfstæðisflokksþingmenn og Sjálfstfl. í heild hafi kastað yfir sig einhverri mislitri sauðargæru og þykist nú vera orðnir einhverjir verndarar verkalýðsins. Ja, heyr á endemi! Þá vernd þekkjum við mætavel, sem búnir erum að starfa í verkalýðshreyfingunni á milli 30 og 40 ár. Slík vernd hefur m. a. birzt í því, að á árunum áður fyrr var t. d. ekki háð sú vinnudeila hér í Rvík. a. m. k. ekki stærri vinnudeilur, eða annars staðar á landinu, að ekki væri kallað út lögreglulið til verndar vinnufúsum verkfallsbrjótum úr borgarastétt. Við munum mætavel eftir Dettifossslagnum á Siglufirði, þar sem tugir manna fengu hina hörðustu fangelsisdóma fyrir þá sök eina, að siglfirzkt verkafólk, karlar og konur, krafðist og barðist fyrir því að fá að koma til hjálpar eða kom til hjálpar litlu verkalýðsfélagi norður á Borðeyri, sem atvinnurekendur vildu ekki viðurkenna sem samningsaðila. Við minnumst Krossanesdeilunnar frægu, þar sem verkalýðurinn í Glerárþorpi og Akureyri þurfti að sækja sjálfsagðan rétt sinn í hendur erlendu auðfélagi, sem neitaði að greiða sömu kjör og annars staðar voru greidd við sams konar vinnu á Norðurlandi. Menn ættu að lesa blöðin frá þessum tíma, blöð Sjálfstfl., og sjá hvað þau hafa þá sagt um þessi mál. Við minnumst líka Nóvudeilunnar. Þá átti að lækka kaupið á Akureyri við tunnusmíði, sem bærinn hafði með að gera, en þar var þá eins og oft áður mjög alvarlegt atvinnuleysi. Og síðast, en ekki sízt, minnumst við virðingar íhaldsforkólfanna í Bolungavík og Keflavík fyrir mannhelgi og félagafrelsi, sem birtist í því að taka með valdi foringja verkalýðsins á Ísafirði og Bolungavík og Keflavík og flytja þá með valdi burt af stöðunum, þegar þeir voru að gegna skyldustörfum f. h. verkalýðsfélaga viðkomandi staða í vinnudeilum, sem stóðu yfir á þessum stöðum.
Þannig væri hægt að halda áfram að telja upp fjölda dæma, sem sýna á ljóslifandi hátt, hvernig verkalýðsvinátta Sjálfstfl. og Íhaldsflokks var á þeim tímum.
Síðan þessir atburðir hafa skeð, hefur margt breytzt. Verkalýðshreyfingunni hefur vaxið fiskur um hrygg. Nú eru verkalýðssamtökin orðin voldugustu fjöldasamtök á Íslandi, og foringjar Sjálfstfl. hafa verið knúðir til þess að breyta um stefnu á yfirborðinu. Hér í þessum umr. koma þeir fram fullir af vandlætingu yfir því, hvað núv. hæstv. ríkisstj, hefur verið vond við verkalýðinn og beitt verkalýðsfélögin miklu gerræði með setningu brbl. um festingu verðlags og vísitölu í fjóra mánuði og þar með haft af launastéttunum, eins og einn hv. alþm. sagði hér í ræðu um daginn, af verkalýðnum, hvorki meira né minna en 6 vísitölustig. Við skulum athuga þetta svolítið nánar.
Ef haldið hefði verið áfram á sömu braut, lá alveg ljóst fyrir, að verð landbúnaðarafurða hefði hækkað a. m. k. um 11.4%. Fyrir lágu a. m. k. allmiklar líkur, ef ekki staðreynd, um 12% rafmagnshækkun hér í Reykjavík. Enginn þarf að láta sér detta það í hug, ef Reykjavik hefði gengið á undan með rafmagnshækkun, að aðrir staðir hefðu ekki komið á eftir. Það er alveg útilokað. Þá lágu enn fremur fyrir allmiklar hækkanir á verðlagi á öðrum vörum, svo sem olíu, benzíni og mörgu fleiru. Þetta hefur allt verið stöðvað. Og allar þessar hækkanir hefðu numið miklu meira en því, sem þessi sex vísitölustig gerðu. Miklar líkur eru því fyrir því, að ef ekkert hefði verið gert, hefði vísitalan verið komin um áramótin næstkomandi í 190 stig, en verðlagið á vörum og þjónustu hækkað allt að því tvöfalt miðað við vísitöluhækkunina. Sjá því flestir, hverjir — hefðu grætt á því að láta allt leika lausum hala. A. m. k. hefði gróðinn af slíku ráðslagi ekki lent hjá vinnustéttunum. En það má vel vera, að braskarar og aðrir slíkir herrar hefðu getað grætt drjúgan skilding, en launastéttirnar og kannske fyrst og fremst hlutarsjómennirnir hefðu tapað.
Það er því hin mesta fjarstæða, að launastéttirnar hafi verið hlunnfarnar í þessum málum af hæstv. ríkisstjórn, enda ráðstafanirnar gerðar í fullu samráði og samstarfi við verkalýðshreyfinguna, eins og margbúið er að taka fram og eins og ég tel mig hafa sýnt hér fram á með óyggjandi dæmum og rökum.
Hv. 1. þm. Rang., sem talaði hér í gær, endaði ræðu sína eitthvað á þessa leið, að núverandi stjórnarstefna mundi leiða yfir landsfólkið kreppu, atvinnuleysi og jafnvel sult. Ekki voru nú spádómarnir fagrir. En þessum hv. alþm. skal sagt það í fullri alvöru, að íslenzk alþýða mun ekki þola neinni ríkisstj. að innleiða hér atvinnuleysi, kreppu og sult, enda bendir stefna hæstv. ríkisstj. til hins gagnstæða. Hitt er vitað, að til eru voldug innlend öfl, sem munu gera allt, sem þau geta, til að torvelda framfarastefnu núverandi hæstv, ríkisstjórnar. Næstu vikur og mánuðir munu svo skera úr um það, hvort hæstv. ríkisstj. og stuðningsflokkum hennar tekst að gera þær ráðstafanir, sem gera þarf, til þess að slík óþurftaröfl verði skaðlaus, og hvort hægt verður að koma efnahagskerfi þjóðarinnar á heilbrigðan grundvöll, auka atvinnuna í landinu og auka útflutninginn með kaupum nýrra framleiðslutækja, bæta úr húsnæðisskortinum, halda áfram rafvæðingu landsins o. s. frv. Öll hróp andstæðinganna um yfirvofandi kreppu, atvinnuleysi og sult eru sem betur fer staðlaust þvaður, sem enginn tekur mark á. Hins vegar ættu slíkir spádómar að minna stjórnarforustuna og stjórnarflokkana á það, að hér er allmikill vandi á ferðum og að þeim ber að þjappa sér betur saman en hingað til og hraða þeim málum, sem nauðsynleg eru til aðgerðar til að koma fram stefnumálum núverandi hæstv. ríkisstjórnar. Hinar vinnandi stéttir til lands og sjávar hafa þegar sýnt, að það stendur ekki á þeim til samstarfs, þegar um er að ræða alþjóðarhag. Nú er hlutur annarra aðila eftir, þeirra sem rakað hafa saman stórkostlegum gróða undanfarin ár. Vilja þessir aðilar sýna sams konar þegnskap og verkafólk og bændur hafa nú þegar gert? Úr því sker reynslan, og því fyrr, því betra.