11.12.1956
Efri deild: 27. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (369)
12. mál, festing verðlags og kaupgjalds
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil til að byrja með leyfa mér að svara hæstv. forsrh. Hann taldi mjög rangt með farið nú sem fyrr hjá okkur sjálfstæðismönnum, er við lýstum því yfir, að hæstv. ríkisstj. hefði ekki leitað álits heildarsamtaka bænda og raunar verkalýðsins um bráðabirgðalögin á s. l. sumri. Ég skal ekki fara að karpa við hæstv. forsrh. um þetta, en svo vel vill til, að í hv. Nd. á sæti einn maður úr stjórn Stéttarsambands bænda, sem gaf yfirlýsingu um þetta undir umræðunum u.m þetta mál þar. Enda þótt ég hafi fylgzt með þessum málum allsæmilega, þá er ég þess þó fullviss, að sá hv. þm., sem er Jón Sigurðsson á Reynistað, viti enn betur um þetta en ég. Ég vil þess vegna leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp hér í hv. þd. ummæli hv. 2. þm. Skagf., Jóns Sigurðssonar á Reynistað, um þá yfirlýsingu hæstv. forsrh., að leitað hefði verið til stéttarsamtaka bænda um álit á þessum bráðabirgðalögum, sem hér liggja fyrir. Hv. 2, þm. Skagf. komst að orði á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Hæstv. forsrh. lýsti því yfir hvað eftir annað, að framleiðsluráð landbúnaðarins hefði samþykkt setningu brbl. um verðlag og kaupgjald, sem hér eru til umr. Þessi staðhæfing hæstv. forsrh. kom mér mjög á óvart, jafnvel þó að ráðh. virtist allæstur, er hann flutti ræðu sína, og yfirvega lítt orð sín. Í framleiðsluráði eiga sæti 9 menn. Sem einn af þeim staðhæfi ég, að framleiðsluráð hefur alls ekki fjallað um þetta frv., hygg jafnvel, að ríkisstj. hafi aldrei snúið sér til framleiðsluráðs með þetta mál.“ „Hafi aldrei snúið sér til framleiðsluráðs með þetta mál,“ segir hv. 2. þm. Skagf. Og hann heldur áfram : „Aftur á móti er mér kunnugt um, að ríkisstj. leitaði fyrir sér um undirtektir hjá stjórn Stéttarsambands bænda undir þetta mál. Í stjórn Stéttarsambands bænda eiga sæti 5 menn, sem jafnframt eiga sæti í áðurgreindri 9 manna stjórn framleiðsluráðs. Þegar fsp. kom frá ríkisstj. um afstöðu stjórnar Stéttarsambandsins til þeirra ráðstafana, er frv. fjallar um, var fundur alveg nýafstaðinn og meiri hl. fundarmanna farinn heimleiðis. Þrátt fyrir það þá náðist í fjóra af fimm stjórnarnefndarmönnum í síma eða til einkaviðtals. Þessir fjórir, sem til náðist, munu allir hafa tjáð, að þeir væru a. m. k. ekki mótfallnir þessum ráðstöfunum, en tveir þeirra lýstu því jafnframt yfir, að hér væri um stjórnarráðstöfun að ræða, sem stjórnin yrði sjálf vitanlega að bera ábyrgð á.
Þannig er saga þessa máls rétt sögð. Allar fullyrðingar hæstv. forsrh. um, að framleiðsluráð hafi samþykkt setningu brbl., eru því rangar, því að þau hafa aldrei verið undir það borin, og sömuleiðis sú staðhæfing ráðh., að þessi brbl. hafi verið sett fyrir atbeina framleiðsluráðs og Stéttarsambands bænda, eins og hann lét orð liggja að í útvarpsræðu sinni í sumar, er hann fylgdi brbl. úr hlaði.“
Þetta voru ummæli hv. 2. þm. Skagf., er hann lét falla í Nd. fyrir nokkrum vikum að gefnu tilefni frá hæstv. forsrh. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta, en ég vænti, að hæstv. forsrh. virði mér það til vorkunnar, þó að ég taki það ekki sem einhver óvefengjanleg sannindi, þegar hv. 8. landsk. þm. heldur því fram hér í hv. þd. við framsögu um þetta mál, að gerður hafi verið raunverulegur samningur milli stéttarsamtaka bænda og verkalýðssamtakanna, að þær ráðstafanir skyldu gerðar, sem í þessum brbl. felast.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta frekar. Staðreyndirnar tala sínu máli. Þarna hefur talað, í þessum umr., sem ég hef lesið hér upp, maður úr framleiðsluráði og maður úr stjórn Stéttarsambands bænda. Hann segir: Málið var aldrei borið undir framleiðsluráð. Það var leitað álits manna úr stjórn Stéttarsambands bænda í einkasamtölum og í síma, og það var nýafstaðinn fundur. Áhuginn var nú ekki meiri hjá hæstv. ríkisstj. fyrir því að bera þetta undir Stéttarsamband bænda, að það var ekki gáð að því, að það væru möguleikar á því að koma saman fundi, til þess að stéttarsambandsstjórnin gæti gefið álit sitt á málinu, heldur var leitað til mannanna eftir á í síma og í einkasamtölum.
Ég hef þess vegna ekki farið með neitt rangt í þessu máli og hafði heldur enga hneigð til þess. Ég álít, að þessi hæstv. ríkisstj. eins og aðrar hæstv. ríkisstj. eigi rétt á því, að rétt sé hermt um þeirra aðgerðir og þeirra stjórnarráðstafanir.
Ég skil það nú raunar vel, að hæstv. forsrh. treysti sér ekki til þess að fara að segja frá því í einstökum atriðum, hverjar ráðstafanir stjórnarinnar munu verða í efnahagsmálunum. En ég vil segja honum það, að því aðeins nefndi ég þetta, beindi þessari fsp. til hans í sambandi við þetta mál nú, að ég fæ ekki betur séð en að ástæða sé til nokkurs uggs eftir þeim skrifum, sem ég gat um í fyrri ræðu minni, að unnið sé að þessu máli. (Gripið fram í.) Ja, það liggur nú við, eftir að vera búinn að lýsa því yfir, að hæstv. ríkisstj. sé á réttri leið með því frv., sem hér liggur fyrir, og eftir að hæstv. stjórn er búin að lýsa því yfir, að hún sé að vinna dag og nótt að þessu á sömu leið, að það setji að manni skelfingu, eins og ástandið er í þjóðfélaginu og jafnstutt og er eftir af því tímabili, sem þessar ráðstafanir ná til, þessar algeru bráðabirgðaráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. veit sjálf að eru bráðabirgðaráðstafanir og ekkert nema bráðabirgðaráðstafanir, sem engan vanda leysa nema í nokkra mánuði. En því — hæstv. ráðh. greip fram í fyrir mér — en því var ég nú að hrella hann með þessari fsp., að það setti að mér nokkurn ugg við að sjá það, sem stendur í aðalmálgagni stærsta stuðningsflokks stjórnarinnar. Ég vildi leyfa mér að lesa það, með leyfi hæstv. forseta. Það er sagt á þessa leið í forustugrein Þjóðviljans í morgun:
„Það stoðar lítið að semja fagrar stefnuyfirlýsingar og birta loforðaskrá, ef allt annað birtist þjóðinni í verki, þegar á reynir. Það er góð regla að láta verkin tala, og framburður þeirra hefur ekki verið ánægjulegur síðustu vikurnar. Þetta er dagvaxandi áhyggjuefni vinstri manna um land allt, en þeir gera sér þá jafnframt vonir um, að öðruvísi verði tekið til hendi á næstunni, þegar úrræðin í efnahagsmálunum verða birt. Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur halda væntanlega betur tryggð við loforð sín í innanlandsmálum en fyrirheit sín um brottför hersins. Að öðrum kosti er ljóst, að forustumenn þessara flokka hafa einvörðungu litið á vinstri stjórn sem vörumerki til að fela hægristefnu.“ — Það er þá orðið hlutskipti hæstv. forsrh, að vera orðinn vörumerki til að „fela hægristefnu.“
Ég verð nú að segja það, að ég öfunda hæstv. forsrh. ekkert af þessum ummælum úr aðalstuðningsblaði stjórnarinnar. En það, sem þó er alvarlegast í þessu, og ég endurtek það, er, að fullt útlit er fyrir samkv. þessum ummælum, að aðalmálgagn stærsta flokks stjórnarinnar reikni ekki hálft í hvoru, heldur mjög sterklega með því, að Framsfl. og Alþfl. bregðist í dýrtíðarmálunum eða a. m. k. eigi ekki samleið með Alþýðubandalaginu blessuðu, sem þó átti þann ráðh., sem beitti sér fyrir þeirri löggjöf, sem hér liggur fyrir til umræðu.
Ég skal ekki fjölyrða um þetta, en ég taldi rétt, að þetta kæmi fram.
Því miður getur hæstv. forsrh. ekki upplýst mig nánar um efni þeirra till., sem eru í deiglunni, en ég vona þrátt fyrir þetta, sem hér stendur, að þessar till. frá hæstv. ríkisstj. líti nú dagsins ljós og að staðið verði við það loforð, sem hún hefur gefið, að rekstur bátaflotans verði tryggður á næstu vertíð og að atvinnulífið og efnahagslífið í heild mæti þeim skilningi og þeim stuðningi, sem vissulega er nauðsynlegur nú af hálfu hæstv. ríkisstj.
Ég skal ekki fara að rökræða lengi við vin minn, hv. 8. landsk. þm. Hann mælti hér vel og snjallt, eins og hans var von og vísa, en ekki að sama skapi af sanngirni sem af áhuga fyrir því að túlka málstað síns flokks. Hann sagði, að Sjálfstfl. hefði aldrei barizt fyrir bættum kjörum almennings og hann hefði barizt gegn bættum framleiðslutækjum. Ja, hvernig stendur á því, að tímakaupið á Íslandi og lífskjör almennings eru nú margfalt betri og allur aðbúnaður á tímum togaraaldarinnar og mótorbátaaldarinnar og á öld iðnaðar og fjölbreyttra atvinnuhátta heldur en meðan við stunduðum einungis landbúnað og höfðum smá-árabáta eða litlar seglduggur til þess að róa á fram fyrir landsteinana? Hver er ástæðan fyrir þeirri gífurlegu breytingu lífskjaranna til hins betra, sem orðið hefur á þessu tímabili? Ætli ástæðan sé eingöngu sú, að það hafi verið til félög manna til þess að berjast fyrir hækkuðu kaupgjaldi? Ég held ekki. Ég held, að barátta fyrir hækkuðu kaupgjaldi sé einungis ein hlið á kjarabaráttu almennings, launþeganna, að vísu mjög þýðingarmikil hlið. En veigamesta atriðið í þessu máli er auðvitað það, að framleiðslutækin hafa breytzt, orðið stórvirkari og fullkomnari. Grundvöllurinn að bættum lífskjörum Íslendinga hefur fyrst og fremst verið lagður með þeim gífurlegu og hröðu framförum í atvinnumálum, sem orðið hafa, stækkun skipanna, aukinni tækni til lands og sjávar. Og ég spyr: Eiga ekki þeir menn, sem einna ríkastan þátt hafa átt í því, að Íslendingar hafa tekið tæknina í sína þjónustu, bætt framleiðslutæki sín til lands og sjávar, — eiga ekki þeir menn, sem hafa haft forustu um þetta, einna mestan þátt í því, að hægt er að borga hátt kaupgjald og njóta góðra lífskjara á Íslandi í dag? Hvernig getur svo hv. 8. landsk. þm., greindur og glöggur maður, haldið annarri eins vitleysu fram og þeirri, að Sjálfstfl. hafi aldrei barizt fyrir bættum kjörum almenningi til handa?
Þetta er hlutur, sem er svo margræddur, að það er óþarfi að vera að þreyta hv. þd. á umr. um það. (BJ: Getur þm. bent á eitt dæmi þess, að hann hafi staðið með verkalýðsfélagi, þegar það hefur átt í kaupdeilu?) Að sjálfsögðu skal ég benda hv. 8. landsk. þm. á það, að Sjálfstfl. hefur ekki staðið með einu verkalýðsfélagi, heldur öllum verkalýðsfélögum landsins og öllum verkalýð landsins í baráttu hans fyrir bættum lífskjörum, og þá fyrst og fremst með því að fá fólkinu úti í sjávarþorpunum, í hinum stærri kaupstöðum, hér í Rvík og úti um allt land, bætt tæki til þess að bjarga sér með, auka afraksturinn af starfi sínu og fá hærra kaup, því að það þýðir ekki neitt að berja í borðið og krefjast hækkaðs kaupgjalds, ef við höfum engin tæki til þess að skapa arð með. Það er barnaskapur og fávizka ein að halda, að hægt sé að halda uppi góðum lífskjörum og bæta lífskjör sín með því einu að berja í borðið og krefjast hækkaðs kaupgjalds, ef þjóðin stendur í verklegum efnum í stað eða jafnvel fer aftur. Þetta er svo almenn staðreynd, að það ætti ekki að þurfa að ræða það á hv. Alþingi. Ég segi þess vegna: Sjálfstfl. hefur átt allra flokka mestan þátt í því að stuðla að því, að fólk á Íslandi nýtur nú betri lífskjara og jafnari en í flestum nálægum löndum og ef til vill betri og jafnari en í nokkru öðru landi. Og ég segi: Þetta er gleðileg staðreynd. Ég vanmet alls ekki þýðingu kaupgjaldsbaráttunnar. En kaupgjaldsbaráttan einangruð, án þess að taka tillit til þess, hvaða tæki þjóðin hefur til þess að bjarga sér með, og án þess að taka tillit til þess, hvernig þau tæki verði rekin, er út í bláinn. Það er sú höfuðsynd, sem kommúnistarnir hafa gert sig seka um, að þeir hafa aldrei viljað hlusta á aðvörunarraddir manna, sem vel hafa viljað, gegn því að hleypa framleiðslutækjunum út í fen hallarekstrar og skapa þar með hættu á atvinnuleysi. Þetta hafa kommúnistarnir aldrei viljað og meira að segja margir hverjir vitandi vits, vegna þess að þeir hafa ekki viljað láta það kapítalistíska þjóðfélag halda áfram að þroskast og þróast. Þeir hafa viljað láta það sökkva í eymd og volæði til þess að geta svo sjálfir reist sitt nýja einræðisskipulag á rústum þess. Þetta er kjarni málsins.
Ég vil líka benda hv. þm. á það, þó að það komi ekki beinlínis þessu máli við, og ég verð að biðja hæstv. forseta hreinlega afsökunar á því, hversu langt er gengið hér frá efni málsins, að hann sagði, að kaupmáttur launa hefði lækkað um 20% á árunum 1947–55 og að á þessum tíma hefði Sjálfstfl. einn öllu ráðið. Ég vil nú benda hv. þm. á það, að á þessu tímabili er Alþfl. í stjórnarforustu á árunum 1947–49, Framsfl. í stjórnarforustu á árunum 1950–53, Sjálfstfl. aðeins í stjórnarforustu 1953–55, miðað við þann útreikning, sem víð vorum að ræða um. En við skulum svo athuga útreikninginn nánar. Við skulum segja, að þetta sé rétt hjá honum um 20% rýrnun kaupmáttarins á þessum átta árum frá 1947–55. En hvað gerist á tveim síðustu árunum, frá því í desemberverkföllunum 1952 til 1955, þegar sjálfstæðismenn eru í stjórnarforustu? Hvað gerist þá? Þá gerist það samkv, áliti hagfræðinga Alþýðusambandsins, sem reiknuðu þetta út árið 1955, á s. l. ári, og hagfræðinga ríkisstjórnarinnar einnig, að kaupmáttur launanna breytist svo að segja ekki neitt, — nákvæmlega á því tímabili, sem sjálfstæðismenn voru í stjórnarforustu. Hefur hv. 8. landsk. þm. athugað þetta, að nákvæmlega á því tímabili, sem sjálfstæðismenn voru í stjórnarforustu, minnkar kaupmáttur launanna ekki, en hann hraðminnkar á hinu tímabilinu, þegar Alþýðuflokksmenn og framsóknarmenn eru í stjórnarforustu? Nú er ég ekki að segja þetta til þess að ásaka þá hv. flokka eða þeirra leiðtoga. Það er lengra mál en að það taki því að fara að rifja það upp hér, hverjar ástæður þess eru. En ég bara bendi hv. 8. landsk. þm. á það, hvaða vitleysu og fleipur hann er að fara með, þegar hann er að segja, að Sjálfstfl. beri fyrst og fremst ábyrgð á þessu. Nú situr hann sjálfur í ríkisstj. og hans flokkur með þessum hv. flokkum, sem létu þessa kaupmáttarrýrnun launanna eiga sér stað á árunum 1947–52.
Hv. 8. landsk. þm, sagði, að ég hefði farið með rangt mál, þegar ég talaði um, að gerðar hefðu verið kröfur um 74% launahækkun í verkföllunum eða aðdraganda þeirra í janúar 1955. Í þessu sambandi vil ég segja það, að ég átti auðvitað ekki við, að meðaltalskröfurnar hefðu verið þessar. Ég átti við, að það hefðu verið gerðar kröfur allt að þessu, að 74%, og ég hygg, að réttara hafi þó verið 79% hjá einstökum félögum hér í Reykjavík. En það fer auðvitað víðs fjarri, að meðaltalskröfurnar hafi verið svo háar. Ég vil aðeins taka þetta fram, þannig að það fari ekkert á milli mála, víð hvað ég átti í þessu sambandi.
Að lokum vil ég segja það út af því, sem hv. 1. þm. N-M. sagði, að enda þótt stjórn Stéttarsambands bænda eða hæstv. ríkisstj. hafi ekki verið átalin af mörgum fyrir ráðstafanir þær, sem felast í þessu frv., og sérstaklega málsmeðferðina gagnvart bændasamtökunum, þá stendur það óhaggað, að á Stéttarsambandsfundinum á Blönduósi komu fram eindregnar ávítur á stjórn Stéttarsambandsins og á ríkisstj. fyrir málsmeðferðina. Hins vegar kom ekki fram frá neinum öðrum þakklæti til stjórnar Stéttarsambandsins eða hæstv. ríkisstjórnar fyrir þessa málsmeðferð. Það stóðu óhögguð andmæli fulltrúans úr Kjósarsýslu, Ólafs Bjarnasonar í Brautarholti. Það veit ég að hv. 1. þm. N-M. viðurkennir. (Forsrh.: Hverjir tóku undir það á fundinum nema hann?) Ég hef ekki haldið því fram, að aðrir hafi tekið undir það. En ég hef haldið því fram, að það hafi engir orðið til þess að andmæla hv. fulltrúa úr Kjósarsýslu. Hann átaldi stjórn Stéttarsambandsins fyrir þessi vinnubrögð og ríkisstjórnina einnig, og því var ómótmælt á Stéttarsambandsfundinum. Og mér er kunnugt um það, að meðal bænda úr öllum flokkum ríkti engin ánægja með ákvarðanir hæstv. ríkisstj. í þessum efnum. Bændur eru hins vegar allra manna reiðubúnastir til þess að sýna alltaf þegnhollustu og skilning, þegar um er að ræða baráttu við dýrtíð og verðbólgu í landinu, þannig að það var ekki gerð heldur nein hríð að hæstv. ríkisstj. á fundinum. Það gegnir alveg nákvæmlega sama máli meðal verkalýðsfélaganna, að það hefur ekki verið gerð nein hörð hríð að hæstv. ríkisstj., enda þótt það sé sannað mál, að hún hafi aðeins leitað álits nokkurra forustumanna og þá fyrst og fremst hér í Reykjavík, svo að segja eingöngu hér í Reykjavík, ef til vill á Akureyri haft samráð við félag hv. 8. landsk. þm., sem talaði hér áðan. Það ríkti óánægja út af þessu, sem bezt kom í ljós í þeirri samþykkt og mótmælum, sem samþykkt var samhljóða á fjölmennum fundi í Sjómannafélagi Reykjavíkur.