24.10.1956
Neðri deild: 4. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (442)
11. mál, skipakaup
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það er vissulega rétt, sem hæstv. forsrh, sagði hér áðan, er hann gerði grein fyrir þessu frv. ríkisstj., að þar er um stórmál að ræða. Það er vitanlega mikið átak til eflingar sjávarútveginum í landinu og afkomu þjóðarinnar almennt, þegar um það er rætt að kaupa 15 togara og raunar einnig til viðbótar allt að sex minni fiskiskip.
Það hafa verið gerð tvö stór átök til eflingar togaraflota landsmanna. Það stærsta var gert í tíð nýsköpunarstjórnarinnar svokölluðu, þegar samþykkt var og framkvæmd smíði 33 nýrra togara, og síðan aftur nokkrum árum seinna, þegar smíðaðir voru 10 togarar til viðbótar. Þessi framkvæmd hefur verið hvað heillaríkust til þess að skapa þá miklu framleiðsluaukningu, sem verið hefur hér á landi, og þann bætta hag þjóðarinnar, sem við er að búa. Hefði sú leið ekki verið valin eftir stríðið að efla jafnstórkostlega togaraflotann með nýjum skipum og þá var gert, hefði sannarlega ekki vel horft, og reynslan hefur því sannað ótvírætt, að það var röng skoðun, sem hjá kom fram hjá ýmsum þeim, er töldu úr þessum framkvæmdum, og það hefði verið mjög óheillavænlegt, ef þeirra skoðanir hefðu orðið ofan á.
Þannig standa sakir í dag, að þjóðin á nú raunar ekki aðra togara en þá, sem byggðir voru í þessi tvö skipti. Hinir eldri togarar, sem til voru frá því fyrir stríð, hafa flestir reynzt gersamlega ófullnægjandi og ónothæfir miðað við þær kröfur, sem nú eru gerðar, og því ekki hægt að starfrækja þá.
Hér á undanförnum þingum hafa oft komið fram raddir um það og till. að efla nú enn meir togaraflotann, ekki hvað sízt með hliðsjón af því, að á þann hátt væri auðveldast að ráða bót á atvinnuleysi, sérstaklega árstíðabundnu atvinnuleysi, sem hefur gert vart við sig á ýmsum stöðum á landinu, og jafnframt væri með þessu móti einu hægt að tryggja fiskiðjuverunum, sem víða hafa risið upp eða verið er að reisa, nægilegt hráefni, þannig að þau gætu staðið undir sér og jafnframt skapað þá atvinnu, sem vonir standa til að þau veiti. En því miður hefur ekki til þessa náðst samkomulag um framkvæmdir í þessu efni. Hafa ýmsar hugmyndir um það komið fram hér í frumvörpum á Alþ., og ber því vissulega að gleðjast yfir því, þegar nú er lagt fram frv. um það að kaupa 15 nýja togara, og vil ég taka það fram, að af hálfu okkar sjálfstæðismanna er að sjálfsögðu fullur skilningur og fullur stuðningur við þá hugmynd, sem hér kemur fram, enda þótt menn kunni kannske nokkuð að greina á um einstök atriði þessa frv. að öðru leyti.
Ég hefði nú álitið, og ég hygg, að það sé skoðun fleiri manna, að æskilegast væri í sambandi við eflingu togaraflota okkar, að hægt væri, helzt á hverju ári, að kaupa nokkra nýja togara til eðlilegs viðhalds og endurnýjunar togaraflotans. Með þessu vinnst það í senn, að það verður viðráðanlegra fjárhagslega að leysa þetta vandamál, og einnig hitt, að með því að kaupa mikinn fjölda togara í einu, sem að vísu geta verið fullkomnir í það skipti, kemur það í veg fyrir, að hægt sé jafnóðum að hagnýta þær nýjungar, sem verða í togarasmíði, og eins og allir vita, þá er árlega sem fram koma ýmiss konar nýjungar í sambandi við smíði togara, og þær mundu nýtast betur, ef hægt væri árlega að framkvæma einhverja aukningu flotans.
Hæstv. sjútvmrh. gat um það hér áðan, að það mætti auðvitað gera ráð fyrir, að allmikill dráttur kynni að verða á því, að skipin kæmu, sem hér er gert ráð fyrir, þannig að hér væri í rauninni ef til vill ekki stigið nógu stórt skref til þess, að um eðlilegt viðhald þeirra togara, sem landsmenn nú eiga, gæti verið að ræða.
Ég hygg, að það væri skynsamlegt að reyna að stefna að því, að smíði þessara togara yrði dreift þannig, að reynt yrði að fá sem fyrst nokkur skipanna, og gerði þá minna til, þó að það jafnaðist á nokkur næstu ár að ljúka smíði þeirra allra. Og ég hygg, eins og ég áðan sagði, að það væri mjög æskileg stefna, ef hægt væri að koma því á, að það yrði fastur fjárfestingarliður árlega að kaupa, skulum við segja, 3 til 4 nýja togara.
Varðandi rekstur þessara væntanlegu skipa ætla ég ekki að ræða mikið á þessu stigi málsins. Það er alveg rétt, að þar er um nýjung að ræða, þar sem gert er ráð fyrir í þessu frv., að tekin verði upp ríkisútgerð togara með það í huga, að aflinn nýtist betur fyrir þá staði, sem ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til þess að eiga togara sjálfir. Þetta getur út af fyrir sig verið ágætt, svo langt sem það nær, en á þessu eru líka miklir annmarkar, sem er nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir. Í fyrsta lagi er nú það, að í grundvallaratriðum er það auðvitað mjög vafasamt, hvað ríkið á að vera að fara út í útgerð sjálft, en í annan stað er við að eiga erfiðleika í sambandi við þessa hugmynd, sem stafa af því, að ég hygg, að mjög erfitt verði að fá menn til þess að vinna á slíkum skipum. Ég veit, að það hefur oft komið fyrir, að áhafnir togara hafa beinlínis neitað að sigla til annarrar hafnar, þó að ekki sé nema um eina ferð að ræða, og hafa heimtað að fara til sinnar heimahafnar. Þetta er út af fyrir sig skiljanlegt. Þessir menn eru langdvölum fjarri sínum heimkynnum og vilja því gjarnan geta komið heim, þegar skipin loks koma að landi. Ég er því ákaflega hræddur um, að á þessu séu í framkvæmdinni miklu meiri vandkvæði en menn kannske í fljótu bragði virðast álíta. Ég þekki dæmi um einn togara, sem gerður er út af fleiri stöðum. Það eru að vísu fleiri dæmi til hérlendis um það, en ég á hér við togara, sem gerður er út af þremur kaupstöðum norðanlands, og ég held, að það fyrirkomulag sé mjög hæpið, vægast sagt, og það gefi ekki sértaklega góðar vonir um, að sú skipan mála væri heppileg.
Að öðru leyti skal ég ekkert vera að fordæma þessa hugmynd á þessu stigi. Það er sjálfsagt að taka hana til íhugunar, eins og hvað annað, sem gæti orðið til þess að greiða fyrir afkomu og hag þeirra sjávarplássa, sem ekki hafa aðstöðu til að eiga svo stórvirk tæki, en ég teldi þó mjög nauðsynlegt, að n., sem fær þetta til athugunar, íhugaði mjög vel þessa hlið málsins.
Það er ef til vill ekki sanngjarnt að krefjast þess af hæstv. ríkisstj., að hún hafi nú á þessu stigi fullnaðarupplýsingar um það, hvort hún yfirleitt getur komið þessu í framkvæmd. En óneitanlega er það þó það atriði málsins, sem er þýðingarmest fyrir þjóðina og fyrir þá, sem munu gera sér vonir um að njóta hlunninda af þessum væntanlegu skipakaupum. Í báðum þeim tilfellum, sem ég minntist á áðan, þegar togarakaupin þá fóru fram, mun nokkurn veginn hafa verið öruggt um, að hægt væri að framkvæma þau kaup, sem þá var um að ræða. Það er vissulega vonandi, að það verði einnig í þetta sinn, en ég er þó í nokkrum vafa um, hversu heppilegt það er að leggja fram frv. um tilteknar framkvæmdir, án þess að einhverjar sennilegar horfur séu a. m. k. fyrir því, að hægt sé að framkvæma það, sem þar um ræðir. Það hefur komið fram í upplýsingum þeirra hæstv. ráðh., sem hér hafa talað, að hvorki hafa að sjálfsögðu verið gerðar neinar ráðstafanir til að semja um smíði þessara skipa, sem ekki er að vænta, né heldur hefur ríkisstj. nokkra vissu fyrir því, eða ég hygg ekki einu sinni nokkra sérstaka von um það, að hún geti leyst það mikla fjárhagslega vandamál, sem er í sambandi við þessi kaup, þar sem um er að ræða nauðsyn þess að fá hátt á annað hundrað millj. kr. að láni. Og ég verð nú sannast sagt að segja það, með hliðsjón af þeirri ræðu, sem hæstv. fjmrh. (EystJ) flutti hér við 1. umr. fjárlaga, að þá var nú ekki tónninn í ræðu hans þannig, að það gæfi hlustendum neinar sérstaklega bjartar vonir um, að hægt yrði að leysa öll þau stórkostlegu fjárhagsvandamál, sem þar var um að ræða, og þær miklu fjárútveganir, sem hann taldi nauðsynlegar á öðrum sviðum en í sambandi við þessi togarakaup. Og þegar hér bætist nú við þessi geysiháa upphæð, sem um er að ræða í þessu frv., held ég, að manni leyfist nú að hafa nokkrar grunsemdir um það, að hæstv, ríkisstj. kannske sigli djarfar en sem svarar þeirri undirstöðu, sem hún hefur undir fótum.
Þess er vissulega að vænta, að úr þessu leysist, því að eins og ég áðan sagði, verður það að teljast vægast sagt hæpið og raunar fráleitt að vera að leggja fram frv. um stórfelldar framkvæmdir af hálfu hæstv. ríkisstj., nema því aðeins að a. m. k. sterkar líkur séu til, að þetta komist í framkvæmd, því að þegar ríkisstj. á hverjum tíma leggur fram slíkt mál, er yfirleitt gert ráð fyrir því af almenningi, að þarna sé um framkvæmdir að ræða, sem muni verða að raunveruleika, fyrr sé ekki málið lagt fram en einhverjar horfur séu á lausn þess. Ég vil þó vona, að úr þessu rætist og að þetta geti komið til framkvæmda hið skjótasta, þannig að fáist nauðsynleg aukning og efling togaraflota landsmanna. Ég get fullyrt það, að Sjálfstfl. hefur fullan skilning á því mikilvæga máli, sem hér er um að ræða, og vill ljá sitt lið til þess, að skynsamleg lausn geti á því fengizt, en endurtek, eins og ég áðan sagði, aðvörun um það, varðandi þetta og aðrar framkvæmdir, sem hæstv. ríkisstj. kann að hafa í huga, að fólki verði ekki gefnar meiri vonir en efni standa til um framkvæmdirnar, því að þá er betur heima setið en af stað farið.