13.11.1956
Neðri deild: 15. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (448)
11. mál, skipakaup
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu verða við þeim tilmælum, sem mér hafa borizt, bæði frá hæstv. forseta þessarar deildar og einnig frá hv. frsm, þessa máls, að taka þessa mína till. aftur til 3. umr., og geri ég það hér með. Ég álít það vinning fyrir það mál, sem ég hef vakið hér máls á, að nægur tími gefist til gaumgæfilegrar athugunar á því.
Samkvæmt þessu frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því í 2. gr., að ríkisstj. endurláni allt að 85% af andvirði hvers skips gegn 1. veðrétti í skipinu. Þetta eru þau almennu ákvæði, sem gilda um þetta, þegar um er að ræða sölu til einstakra manna og svo félaga, hvort sem það eru bæjarfélög eða félög einstakra manna, sem stofnað er til í þessu skyni.
Hins vegar eru gerðar hér undantekningar um nokkur aukin fríðindi, en þær eru aðeins bundnar við Vestur-, Norður- og Austurland, og ég geri ráð fyrir því, að sá skilningur liggi á bak við þessa skilgreiningu, að þar séu t. d. Vestmannaeyja- og Faxaflóahafnirnar undanteknar. Til þess eru refirnir skornir.
Í öðru lagi er samkvæmt 3. gr. gert ráð fyrir því, að heimilt sé, þegar um er að ræða kaup á togurum, sem skráðir verða á Vestur-, Norður- og Austurlandi, að ríkissjóður endurláni allt að 90%, og í þessu felast að sjálfsögðu nokkuð aukin fríðindi frá því, sem er samkvæmt ákvæðum 2. gr.
Í þriðja lagi er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. geti, að fengnum till. atvinnumálanefndar, sett á stofn sérstaka ríkisútgarð togara, en þetta er einnig bundið við Vestur-, Norður- og Austurland, og að þetta sé að sjálfsögðu gert þar á þessum svæðum, sem svo stendur á, að ekki séu fjárhagslegir möguleikar til þess að kaupa og reka togara, enda sé um atvinnuskort að ræða.
Með þeim skilningi á þessu frv., að Faxaflóahafnirnar og Suðurland að öðru leyti sé undanþegið þessum fríðindum, hef ég flutt mína brtt., sem felur það í sér, að í þessu efni um þessi tvö viðbótarfríðindaákvæði gildi eitt og hið sama um allt land. Grundvöllurinn fyrir þeim stuðningi, sem hér er um að ræða, verði sá, jafnt hvar sem er á landinu, að brýn þörf sé fyrir slíkar ráðstafanir. Og ég vil hér leiða nokkur rök að því, að því er Akranes snertir til dæmis að taka, að þar geti orðið brýn þörf fyrir slíkar ráðstafanir.
Á Akranesi hefur verið mjög gott atvinnuástand á undanförnum árum, sem að sjálfsögðu byggist fyrst og fremst á þeirri útgerð sem þar er, og vinnslu þess afla, sem lagður hefur, hefur verið þar á land að undanförnu. Og í skjóli þessa eða sem afleiðing af þessu hefur flutzt inn mjög stór hópur manna úr öðrum byggðarlögum landsins til Akraness og íbúatalan hækkað þar mjög á síðustu árum af þessum sökum. Þetta fólk, sem flutzt hefur til Akraness, eða meginhluti þess, hefur tekið sig upp frá þeim stöðum, þar sem atvinnuskortur hefur verið, og hefur tekizt að veita þessu fólki atvinnu á Akranesi að undanförnu, allt til þessa, með þeim hætti, að þar hefur verið mikið að gera í sambandi við vinnslu sjávarafurða. En þessi afli, sem lagður hefur verið upp til vinnslu á Akranesi, er ekki nema að nokkrum hluta af þeirri útgerð, sem hefur verið á Akranesi, heldur hafa skip úr öðrum verstöðvum lagt þar á land, sum árin mjög verulegan hluta þess aflamagns, sem þar hefur verið unnið, En það hefur verið sú fyrirsjá og fyrirhyggja um vinnslutæki eða tæki til þess að vinna úr afla, að þar er hægt að inna af hendi mjög mikið verk í þessu efni, auk þess sem þar eru viðurkennd að vera einhver beztu og fullkomnustu hraðfrystihús í þessu landi, auk þess sem þar er góð aðstaða til þess að verka saltfisk og einnig til þess að verka skreið. Þetta hefur allt saman haldizt í hendur á Akranesi, að þeir, sem að því standa að hafa aflað þessara tækja, útgerðarmenn þar, hafa verið langt á undan mönnum í öðrum verstöðvum á þessu sviði um sínar framkvæmdir. Hægt er þar að vinna úr miklu meira magni en aflast á heimaútgerðina á Akranesi. Það mun hafa verið á Akranesi, sem byrjað var hér á landi að frysta karfa til útflutnings.
Ég skal nú gefa hér dálitlar upplýsingar um það, hvað lagt hefur verið upp af afla á Akranesi til vinnslu þar úr skipum, sem gerð eru út í öðrum byggðarlögum. Á árinu 1949 voru lögð þar í land 2400 tonn af skipum annars staðar að, 1950 3381 tonn, 1951 6000 tonn rúm, 1952 7600 tonn, 1953 4515 tonn, 1954 7552 tonn, 1955 1152 tonn og á þessu ári aðeins 458 tonn.
Þessi rýrnun í því að leggja upp afla á Akranesi af skipum annars staðar að stafar af því, að þeir, sem að þessari útgerð standa, eru á þessum árum búnir að búa svo í haginn fyrir sig á heimastöðunum, að þeir geta sjálfir verkað þennan afla þar. Þannig hefur Akranes misst nú gersamlega að heita má af aflamagni, sem numið hefur sum árin upp í hálft áttunda þúsund tonn, án þess að nokkuð hafi rætzt úr þessu með aukningu á heimaútgerðinni til að fylla í skarðið. Til dæmis á árinu 1954 voru lögð upp á Akranesi af skipum annars staðar að 7552 tonn. Síðan hefur bátum aðeins fjölgað þar um þrjá. Þeir eru 22 mína, sem gerðir verða út á þessari vertíð. En við það er þó að athuga, að þrír af þessum bátum eru mjög úr sér gengnir og vafasamt um útgerð þeirra meira að segja á þessari vertíð, hvað þá heldur þegar lengra liður.
Þannig standa þá þær sakir heima fyrir, að við það, að hætt er að leggja upp þetta aflamagn á Akranesi, rýrna náttúrlega atvinnumöguleikarnir þar. Þegar ekki er úr því bætt með aukinni bátaútgerð, sem ekki hefur verið unnt að gera, þá rýrna þeir að mjög verulegu leyti og svo mikið, að mjög óvænlega horfir um að geta veitt þeim fjölda fólks, sem flutt hefur til Akraness, framtíðaratvinnu í sambandi við útgerðina.
Úr þessu hefur nokkuð verið bætt í ár með þeirri miklu atvinnu, sem verið hefur á Akranesi í sambandi við hafnarframkvæmdir þar og einnig byggingu á sementsverksmiðju, sem hófst á þessu ári. Nú má gera ráð fyrir, að atvinna verði í sambandi við sementsverksmiðjuna næsta ár og e. t. v. eitthvað af fyrstu mánuðum ársins 1958, en þá á byggingu sementsverksmiðjunnar að vera að fullu lokið og einnig þeim hafnarframkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru, svo að hér þarf vissulega að gæta varhuga við, svo framarlega sem ekki á alveg að sækja í sama horfið á Akranesi og orðið hafa forlög í ýmsum öðrum kauptúnum landsins, þar sem atvinnan hefur brugðizt.
Ég hef þess vegna flutt mína brtt. hér með tilliti til þess, — svo fremi sem litið verður þannig á, að Faxaflóahafnirnar heyri ekki undir ákvæði þessa frv., eins og það er orðað nú, að sá staður verði ekki útilokaður frá þeim stuðningi, sem gert er ráð fyrir að geti leitt af þessu frv., annaðhvort það, að þeir, sem réðust í það heima að kaupa togara, nytu þeirra beztu hlunninda, sem í frv. felast, og að því leyti sem ekki væru efni eða ástæður til að efla útgerðina af eigin rammleik heima fyrir, þá væri ekki útilokað, að heimild væri til ríkisútgerðar á togurum þar til þess að bæta úr því atvinnuástandi, sem hætt er við að gæti skapazt á Akranesi, þegar þessum stóru framkvæmdum tveimur er lokið.
Ég vildi þess vegna með minni brtt. stuðla að því, að þessi möguleiki stæði einnig opinn að því er þennan kaupstað snerti, svo fremi sem þannig verður á litið, að Faxaflóahafnir heyri ekki undir ákvæði þessa frv., og þykir allur varinn góður í því efni.
Það er náttúrlega sjálfsagður hlutur, að þegar stofnað er til slíkra ráðstafana eins og þessara, sé höfð full hliðsjón af því, sem gerzt hefur að undanförnu, og ráðstafanirnar miðaðar við að bæta úr þeim erfiðleikum, sem sýnilegir eru og áþreifanlegir í ýmsum stöðum á landinu í þessu efni. En það má hins vegar heldur ekki loka alveg augunum fyrir því, sem fram undan er og við blasir, eins og ég þykist nú hafa gert hér grein fyrir að því er Akranes snertir, og taka þarf með slíkum ráðstöfunum fullkomið tillit til þess, og það vænti ég einnig að verði gert.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þessa till. mína. Ég hef lýst því yfir, að ég tek hana aftur til 3. umr., og vænti þess, að hv. n., sem hefur mál þetta til meðferðar, athugi málið í því ljósi, sem ég þykist nú hafa brugðið hér upp að því er til Akraness tekur, og getur þetta einnig snert fleiri útgerðarstaði hér við flóann.