22.11.1956
Neðri deild: 19. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (462)
11. mál, skipakaup
Frsm. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls lagði hv. þm. Borgf. (PO) fram brtt., sem prentuð er á þskj. 51. Fjhn. lét þá í ljós ósk um, að frestað yrði afgreiðslu þessarar till., þangað til hún hefði fengið tækifæri til að athuga hana á fundi. Féllst flm. till. á það, og var þess vegna afgreiðslu þessarar brtt.frestað þangað til við þessa umr.
Aðalefni brtt. er, brtt, hv. þm. Borgf. (PO), að þau ákvæði 3. gr., sem kveða á um, að í sérstökum tilvikum megi ríkisstj. endurlána allt að 90% af andvirði skipanna, verði ekki stranglega bundin við Vestur-, Norður- og Austurland, heldur verði ríkisstj. heimilað að veita þessa fyrirgreiðslu á þeim stöðum, þar sem brýn þörf er að auka atvinnu á staðnum, og raunverulega er sama hugsunin sem felst í öðrum tölulið brtt., sem er við 4. gr. frv., að binda ekki þau ákvæði sérstaklega við Vestur-, Norður- og Austurlandið, heldur binda þau við þá staði, þar sem þessara ráðstafana er talin brýn þörf.
Fjhn. hefur haft þetta mál til athugunar og er sammála um að taka til greina að verulegu leyti þá aths., sem fram kemur í till. hv. þm. Borgf. (PO), en vill þó undirstrika, að þessari fyrirgreiðslu verði sérstaklega beitt á Vestur-, Norður- og Austurlandi, en að það sé einnig heimilt að gera það á öðrum stöðum, þó að það sé sérstaklega ætlazt til þess, að það sé gert í þessum þremur landsfjórðungum. M. ö. o., fjhn. tekur undir þá hugsun, sem felst í brtt. hv. þm. Borgf. (PO), en fer ekki eins langt og sú till. gerir, heldur opnar aðeins möguleika fyrir því, en gerir hins vegar ráð fyrir, að þessum ákvæðum verði aðallega beitt í hinum tilteknu þremur landsfjórðungum.
Ég vil þess vegna leyfa mér fyrir hönd fjhn. að leggja til, að till. hennar um þessi efni verði samþ., og vænti, að hv. þm. Borgf. (PO) geti á það fallizt, því að það opnar möguleikana fyrir því, sem hann er að gera tillögur um.
Um till. hv. 2. þm, Reykv. (BÓ) á þskj. 58 skal ég ekki fjölyrða. Ég fyrir mitt leyti er andvígur henni og geri ráð fyrir því, að meiri hl. fjhn. sé það einnig, og þar sem það mál hefur verið rætt við fyrri umr., sé ég ekki ástæðu til þess að fara út í það frekar hér við þessa umræðu.