22.11.1956
Neðri deild: 19. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (465)
11. mál, skipakaup
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Þrátt fyrir það að ég yrði að sjálfsögðu við þeim tilmælum, sem mér bárust við 2. umr. þessa máls, að taka till. mína aftur til 3. umr., svo að fjhn. gæfist tóm og tækifæri til þess að athuga hana, gerði ég samt við þá umr. grein fyrir því, á hverju till. væri reist. Ég fór þar ekkert út í að ræða um hin einstöku útgerðarform, sem gert er ráð fyrir skv. þessu frv. Um það hef ég að sjálfsögðu mínar ákveðnu skoðanir. Till. mín beindist eingöngu að því að leiðrétta það misrétti, sem mér virtist vera í þessu frv., að því leyti, að þar er ekki öllum gert jafnhátt undir höfði. Samkv. 3. og 4. gr. þessa frv. eru veitt nokkur frekari hlunnindi en gert er ráð fyrir í 2. gr. frv., bæði að því er snertir þann stuðning, sem veittur er til kaupa á skipum, og að því leyti sem ráð er fyrir gert, að ríkissjóður geti hlaupið undir bagga með því að gera út togara.
Till. mín miðast þess vegna eingöngu við það, að hvað þetta snertir sé ekki gert upp á milli manna eða byggðarlaga eftir því, í hvaða landsfjórðungi þeir eru með sinn atvinnurekstur, því að grundvöllurinn undir því, að þessi stuðningur verði í té látinn, er alveg markaður í frv. Viðbótarstuðningurinn skv. 3. gr. byggist á því, að það sé brýn þörf slíkra aðgerða, að fyrir hendi sé brýn þörf á því, að veittur sé nokkru frekari stuðningur til skipakaupanna en felst í þeim almennu ákvæðum um þetta efni skv. 2. gr. Það er það, sem ég fæ ekki skilið, hvernig á því getur staðið, ef þessi brýna þörf er fyrir hendi, að þá eigi að fara að gera upp á milli manna eftir því, í hvaða byggðarlagi eða í hvaða landsfjórðungi þeir eru búsettir í landinu, því að höfuðgrundvöllurinn undir þessu er vitanlega, að þessi þörf sé fyrir hendi. Við þetta miðast brtt., mín. Sama er að segja um ákvæði 4. gr. frv., að ef ástæða þykir til skv. þeim ákvæðum, sem um þetta eru sett í greininni, að gera þær ráðstafanir, sem þar er um að ræða, hver ástæða er þá til að vera að gera upp á milli manna eftir því, hvar þeir eru búsettir í landinu?
Að vísu má segja það, eins og hv. frsm. fjhn. komst að orði, að með þeirri brtt., sem n. flytur nú, sé gengið nokkuð á móts við mína brtt. Þetta er rétt að því leyti til, að eins og ákvæðin eru í frv. nú, þá er allsendis óheimilt að veita þennan stuðning til annarra landsfjórðunga en þeirra, sem þar eru tilgreindir. En skv. brtt. er þetta ekki útilokað, þó að hins vegar sé á það bent, að aðrir eigi þar að hafa forganginn. En það er það, sem ekki samrýmist mínum hugsunarhætti, að þar geti verið um neinn forgang að ræða, heldur ef það grundvallaratriði, sem hjálpin er byggð á, er fyrir hendi, þá eigi jafnt yfir alla að ganga, hvar sem þeir eru búsettir og hvar sem þeir reka sinn atvinnurekstur. Þess vegna er þeim tilgangi, sem í brtt. minni felst og ég tel vera fullkomlega á rökum reistan, ekki fullnægt með brtt. n., þó að þar sé nokkuð gengið í áttina til móts við mína skoðun. Ég hlýt þess vegna að halda fast við það, að mín brtt. verði samþykkt.