22.11.1956
Neðri deild: 19. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (467)
11. mál, skipakaup
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég get nú ekki stillt mig um að láta í ljós nokkra undrun yfir því og óánægju, að enginn hæstv. ráðh. skuli vera hér við þessa umr., og einkum það, að þeir ráðherrar, sem þetta mál varðar sérstaklega, hæstv. forsrh., sem flutti þetta mál hér af hálfu ríkisstj., og hæstv. sjútvmrh., skuli ekki sjá ástæðu til að vera hér viðstaddir, þegar jafnþýðingarmikið mál er rætt og gera mátti ráð fyrir, að til ríkisstj. kynni að verða beint ýmsum fsp. varðandi málið.
Hv. þm. N-Þ. (GíslG) flutti hér áðan mikla ræðu og var fyrri hluti hennar nánast sagt nokkurs konar prógramræða fyrir hæstv. ríkisstj., þar sem m. a. hann lagði áherzlu á það, hversu ríkisstj. hefði verið vel fagnað, þegar hún var mynduð, og hversu mikill stórhugur hefði sýnt sig í yfirlýsingum hennar, þannig að annað eins mundi ekki hafa áður heyrzt hér á landi frá annarri ríkisstj.
Ég vil nú leyfa mér að efast nokkuð um þessa almennu gleði við myndun hæstv. ríkisstj. Hún fór nú þannig af stað, eins og allir vita, að þeir flokkar, sem að henni standa, urðu að svíkja mjög ákveðnar yfirlýsingar, sem þeir höfðu gefið fyrir kosningar, og auk þess byggist hennar tilvera að nokkru leyti á því að hafa tryggt sér með rangindum þingfylgi, þannig að dýrðarkransinn, sem er yfir myndun þessarar hæstv. ríkisstj., er nú ekki eins mikill og hv. þm. N-Þ. vill vera láta, og ég efast meira að segja um, að hann sjálfur, a. m. k. nú í dag, sé sérstaklega hamingjusamur yfir þeim félagsskap, sem hann er í. Hitt er annað mál, að myndun ríkisstj. vakti mjög mikla ánægju hjá stærsta flokknum, sem að henni stendur, kommúnistum, annars vegar og hjá hæstv. núv. forsrh., form. Framsfl., hins vegar, og ég efast um, að hin almenna gleði hafi náð miklu lengra.
Varðandi svo hitt atriðið, að ríkisstj. hafi gefið yfirlýsingar miklar, sem miklar vonir séu við bundnar varðandi aðgerðir til eflingar jafnvægi í byggð landsins og aðrar framkvæmdir, þá er það alveg rétt. Þær yfirlýsingar voru vitanlega stórar, en ríkisstj. verður ekki dæmd eingöngu eftir yfirlýsingum sinum, heldur eftir þeim verkum, sem reynslan sýnir, að hún leysi af hendi.
Það eru ekki aðeins yfirlýsingar, sem gefnar hafa verið, heldur hafa af hálfu hæstv. ríkisstj. verið sendir út erindrekar víðs vegar um landið, sem hafa rætt við forustumenn sveitarfélaga um það, hvað þar þyrfti að gera, og hafa a. m. k. sumir þessara erindreka, að mér er kunnugt um, þar sem ég þekki til, tekið svo vel máli sveitarstjórnanna og talið svo sjálfsagðar óskir þeirra og kröfur, að það er alveg rétt, að ég hygg, að þær hafi aldrei fengið aðrar eins undirtektir undir sitt mál, því að sumar þeirra hafa verið þrotnar að óskum við þessa erindreka. Þetta er vitanlega allt gott og blessað og færi betur, að efndin yrði eins og til er stofnað með öllum þessum loforðum og fyrirheitum. Enginn skyldi vera glaðari maður en ég yfir því. Hitt er annað mál, að það er ákaflega vafasamur greiði að gefa fyrirheit um ótal framkvæmdir, fyrirheit, sem á þessu stigi málsins er a. m. k. vitað fullkomlega um, að ekki er nokkur möguleiki til þess að leysa, eftir þeim horfum á fé, sem til ráðstöfunar sé, bæði úr ríkissjóði og lánum, sem fáanleg séu uú, eftir því sem ríkisstj. bezt veit í dag og eftir þeim yfirlýsingum, sem hún hefur gefið hér að undanförnu; þannig að allar eru þessar yfirlýsingar næsta þokukenndar, og það er sannarlega ekki til mikils góðs, heldur miklu fremur til tjóns að vera að gefa ádrátt og raunar allt að því loforð, svo að ekki sé meira sagt, um óteljandi framkvæmdir, sem litlar eða engar líkur eru til að komist í framkvæmd. Ég held, að slík vinnubrögð sé ekki svo sérstaklega mikil ástæða til að lofa.
Það frv., sem hér liggur fyrir um kaup 15 togara og 6 annarra skipa, er eitt af þessum fyrirheitum, fyrirheit, sem að vísu er það langt komið, að það er lagt í frumvarpsformi hér fyrir Alþ., en þó er jafnframt tekið fram, að engin vitneskja sé um það, hvort og hvenær fáanlegt sé lán til þessara framkvæmda. Og það er vitanlega eins með þetta mál og önnur, að frv. og löggjöf út af fyrir sig hefur næsta litla þýðingu, ef af framkvæmdum verður ekki. Hitt er annað mál, að við erum vafalaust öll á einu máli um að vona það, að hæstv. ríkisstj, takist að leysa þann vanda, sem hér er um að ræða, að tryggja nauðsynlegt fé til þessara skipakaupa, og á því byggist það, a. m. k. af hálfu okkar sjálfstæðismanna, að við höfum tekið þessu frv. vel, að það er í trausti þess, að þetta verði annað meira en orðið tómt.
Hv. þm. V-Ísf. (EirÞ) ræddi þetta mál nokkuð hér áðan og þá aðallega í þeim dúr, að mér skildist, að hann teldi veigamest í þessu máli, að komið væri á ríkisútgerð togara og það sem allra skjótast. Ég skal nú ekki fara út í það, þótt freistandi væri, að rekja útgerðarmál í Vestur-Ísafjarðarsýslu og afskipti þessa hv. þm. af þeim, en það er út af fyrir sig, þegar á það er horft, mjög skiljanlegt, að hann telji æskilegast og raunar einu lausnina að leggja allan vandann á ríkið í þessu efni. Að vísu veit ég ekki betur en að á einum þeirra staða, sem hann nefndi í hans héraði, séu gerðir út tveir togarar. Ég skal að vísu ekki segja, hvernig útgerð þeirra gengur, en það er þó a. m. k. svo, að þessir togarar hafa að undanförnu tryggt fulla atvinnu í því byggðarlagi, sem þeir eru gerðir út frá. Um það er vitanlega enginn ágreiningur okkar í milli, og það hef ég oft tekið fram, að fyrir mörg byggðarlög sé útgerð togara líklegust til þess að bæta úr erfiðu atvinnuástandi og tryggja varanlega atvinnu. En ég álít, að áður en horfið sé að því ráði að varpa öllum þessum vanda yfir á ríkið, beri að þrautkanna það og mönnum beri skylda til þess heima fyrir að leggja sig fram um af sinni hálfu, eftir því sem föng eru á, að taka að sér útgerð skipanna sjálfir, þannig að komi til ríkisútgerðar, verði það aðeins notað sem þrautalending, ef ekki er möguleiki til að koma þessum málum fyrir á annan veg. Og þá er ég kominn að því atriði, sem var eiginlega aðalástæðan til, að ég stóð hér upp, en því miður eru nú hvorki hér viðstaddur hæstv. forsrh. né heldur frsm. fjhn., þannig að það er sennilega erfitt um að fá svör við því, sem ég vildi spyrja að, en þar sem þetta er síðasta umr. málsins í þessari hv. d., þá verð ég nú samt að vekja máls á þessu, enda þótt báðir þessir menn séu fjarverandi. Mér sem sagt skildist ekki betur við 2. umr. þessa máls en að fram kæmi nokkur, ef ekki verulegur ágreiningur milli hæstv. forsrh. og hv. þm. Hafnf. (EmJ) um þessa ríkisútgerð, þ. e. a. s., hvað fyrirhugað væri af hálfu ríkisstj. í því efni. Ég gat ekki betur skilið ræðu hæstv. forsrh. en svo, að hans meining væri, að ríkisútgerð togara yrði því aðeins notuð eða þessi heimild yrði því aðeins notuð, að ekki væri möguleiki til að fá aðila á viðkomandi stöðum til þess að taka að sér útgerð skipanna. Hins vegar lýsti hv. þm. Hafnf. (EmJ) því hér yfir, — og mér fannst orðalag hans ótvírætt benda til þess, að hann hefði skilið hæstv. forsrh. á þann veg, sem ég hef skilið hann, — að hann hefði alltaf skilið þetta frv. svo, að það væri fyrir fram ákveðið að setja þessa ríkisútgerð á stofn, hvað sem öllum kaupum annarra aðila á skipunum liði, og hann lagði á þetta ríka áherzlu.
Hér er vissulega um allmikinn mismun að ræða, ef þetta er rétt skilið hjá mér, og eðlismunur varðandi þetta mál, hvort ætlunin er sú að nota þetta úrræði með ríkisútgerðina aðeins í ýtrustu nauðsyn, þ. e. a. s., grípa ekki til hennar, nema ekki sé með neinu móti hægt að fá aðila á þeim stöðum, þar sem nauðsyn togaraútgerðar er talin vera fyrir hendi, til þess að kaupa skipin og taka að sér útgerð þeirra, eða hvort fyrir fram er ákveðið af ríkisstj., að hvað sem öllu þessu líður, skuli gerðir út svo og svo margir togarar á vegum ríkisins til þess að leggja upp afla, eftir því sem nánar verði ákveðið, annaðhvort með lögum, sem mér skilst þó, að sé alls ekki nein vissa fyrir að verði lögð hér fram, enda þótt gert sé ráð fyrir því í 4. gr. frv., eða þá eftir öðrum fyrirmælum ríkisstj. um þetta efni.
Þetta hefði ég talið mjög æskilegt og raunar nauðsynlegt, áður en málið væri afgr. héðan úr d., að fá upplýsingar um, því að ég vænti, að allir hv. þm. séu mér sammála um það, að á þessu er nokkur munur og sýnir nokkuð mismunandi viðhorf til ríkisrekstrarins í þessu sambandi, hvort hann er notaður sem þrautalending, ef aðrar leiðir bregðast, eða hvort hann fyrir fram er ákveðinn, hvað sem öllu liður, og þá væri jafnframt í því sambandi mjög æskilegt að fá vitneskju um það, hvað er fyrirhugað að gera þá út marga af þessum togurum á vegum væntanlegrar ríkisútgerðar. Við því hefur ekki heldur verið gefið neitt svar eða nein upplýsing um það í sambandi við þessar umr.
Ég lýsti þeirri skoðun minni hér við 2. umr, þessa máls, að ég mundi greiða atkv. með 4. gr. frv., þ. e. a. s. heimildinni til ríkisútgerðar togara, á grundvelli þess skilnings, að hér væri ekki um að ræða fyrir fram gerða ákvörðun um það að hefja almenna ríkisútgerð, heldur væri þessi heimild hugsuð, eins og hæstv. forsrh. tók fram, eða eftir því sem ég skildi hans orð, sem þrautaúrræði til þess að efla atvinnulíf á þeim stöðum, þar sem upplögn afla úr togurum væri talin heppilegust til atvinnuaukningar, en engir möguleikar eða geta fyrir hendi til þess að sveitarfélög eða einstakir aðilar tækju að sér útgerð skipanna.
Á þessum grundvelli tel ég stætt og ekki óeðlilegt að veita ríkisstj. þessa heimild, því að eins og ég hef áður tekið fram, má að sjálfsögðu ekki láta neinar kennisetningar um tilhögun atvinnurekstrar standa í vegi fyrir því, að atvinna verði tryggð hvarvetna í landinu, því að það er vitanlega höfuðatriði málsins og það, sem að er stefnt, með bæði þessum atvinnurekstri og öðru, að full atvinna geti verið og að lífskjörin geti orðið sem jöfnust, hvar sem er á landinu. En eins og bent var á af hv. þm. N-Þ. hér áðan, er auðvitað ekki endilega víst, að á öllum þessum stöðum, þar sem nú er ófullnægjandi atvinna, sé útgerð togara heppilegasta úrræðið. Það eru svo mörg önnur atriði, sem þar koma til greina, og nauðsynlegar forsendur, til þess að um útgerð togara geti verið að ræða. Og það ber jafnframt að sjálfsögðu við útgerð togara að gera sér grein fyrir því að reyna að tryggja það, eins og þessi sami hv. þm. tók réttilega fram, að ekki væri gengið á hlut bátaútvegsins eða dregið úr skynsamlegri og eðlilegri útgerð báta frá viðkomandi stöðum. Þetta veldur því, að að sjálfsögðu verður að gera sér grein fyrir, þegar um það er að ræða, hvar togarar verði staðsettir, — og ekki hvað sízt er það í sambandi við þá miklu fyrirgreiðslu, sem hér er hugsuð með ríkisútgerð togara, — þá er nauðsynlegt í hverju tilfelli að íhuga það, hvort þessi aðferð sé líklegust til þess að tryggja atvinnu og efnahagslega afkomu íbúanna.
Af þessum sökum vildi ég leyfa mér hér við þessa umr. að bera fram skriflega brtt. eða viðaukatill. við brtt. hv. fjhn. á þskj. 72 þess efnis, að aftan við 3. lið brtt, bætist viðbótarsetning eða setningarhluti, sem þannig hljóði: og ekki verði úr bætt á hagkvæmari hátt með öðrum úrræðum. — Setningin hljóðar öll þannig frá n.:
„Ríkisstjórninni er, að fengnum tillögum atvinnutækjanefndar, heimilt að setja á stofn ríkisútgerð togara í því skyni, að þeir leggi afla sinn á land í þeim bæjum og kauptúnum, einkum á Vestur-, Norður- og Austurlandi, þar sem ekki eru fyrir hendi fjárhagslegir möguleikar til þess að kaupa og reka togara, enda sé talið, að skortur á atvinnu á þeim stöðum hamli eðlilegum vexti þeirra, og ekki verði úr bætt á hagkvæmari hátt með öðrum úrræðum.“
Þetta breytir í engu þeirri ákvörðun, sem hér er um heimildina til ríkisútgerðar togara, heldur er hér aðeins tekið fram, að það verði vitanlega að meta, áður en til þeirra úrræða sé gripið í hverju einstöku tilfelli, hvort þessi aðstoð við viðkomandi byggðarlög til atvinnuöryggis sé hin líklegasta eða hvort þar kæmi annað til greina. Þetta tel ég eðlilegt og raunar nauðsynlegt, að komi fram í þessari málsgr., og vildi ég leyfa mér að óska eftir því við hæstv. forseta, að hann leitaði afbrigða fyrir þessari brtt., þar sem hún er skrifleg og of seint fram komin, þannig að hún mætti koma til afgreiðslu, þar sem þetta er síðasta umr. málsins.
Ég held svo ekki á þessu stigi málsins, að það sé ástæða til þess að fara um það fleiri orðum. Ég gerði við fyrri umr. þess grein fyrir skoðun minni um það, hversu útgerð togara væri víða á landinu langlíklegasta og raunar kannske eina úrræðið til þess að koma í veg fyrir árstíðabundið atvinnuleysi. En hins vegar verður að sjálfsögðu að taka hér allt með í reikninginn og íhuga það vandlega, og að því miðar mín litla brtt., að hverju sinni séu valin þau úrræðin, sem komi fólki á viðkomandi stöðum að sem beztu haldi, til þess að ná þeim tilgangi, sem við öll hljótum að stefna að, að fólkið geti, hvar sem það býr á landinu, búið við sem sambærilegust lífsskilyrði og haft viðunandi atvinnu og lífsafkomu.