27.11.1956
Efri deild: 19. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (479)

11. mál, skipakaup

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þessu máli fylgdi mjög ýtarleg grg., þar sem gerð er grein fyrir efni frv. og tilgangi, enn fremur skýrð ákvæði hinna einstöku greina. Ég hafði allýtarlega framsögu um þetta mál í hv. Nd. og tel, að ég geti, a. m. k. að svo komnu máli, verið fremur fáorður um þetta mál, nema að svo miklu leyti sem umræðurnar kunna þá að gefa tilefni til.

Eins og frv. ber með sér og fyrirsögnin gefur til kynna, er frv. þetta heimild til ríkisstj, um kaup á 15 togurum og heimild til lántöku til þess að framkvæma þau kaup.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þetta mál hefur verið á döfinni á undanförnum þingum í ýmsum formum, og það er vitað mál, að fyrir þessu er áhugi og hann eðlilegur víðs vegar um landið að auka togaraflotann og ekki sízt á þeim stöðum, þar sem brugðizt hefur afli á fiskibáta, og af því stafar og hefur stafað langvarandi atvinnuleysi víðs vegar á Vestur-, Norður- og Austurlandi. Hugmyndin með þessu frv. er þetta tvennt, almenn aukning togaraflotans, og þó, eins og oft hefur verið tekið fram í þessum umræðum og kom fram í grg., fyrst og fremst til þess að koma á jafnvægi í byggð landsins, sem ríkisstj, fær ekki séð að verði gert með öðru hagkvæmara móti en því, sem hér er gert ráð fyrir.

Í samræmi við þennan tilgang er ríkisstj. heimilað samkv, 1. gr. þessa frv. að festa kaup á 15 togurum, og samkv. 2. gr. er ríkisstj. heimilað að taka allt að 150 millj. kr. lán til þess að standa straum af þessum kaupum, og jafnframt er í sömu gr. heimilað að endurlána allt að 85 af hundraði af andvirði hvers skips gegn 1. veðrétti í skipinu. Þó er jafnframt ákveðið í 3. gr., að frá þessu má víkja, að lána 85 af hundraði, og hækka lánsupphæðina í 90 af hundraði, ef brýn þörf fyrir aukna atvinnu er á stöðum, þar sem útgerðar er þörf, og ekki líklegt, að það sé hægt með öðru móti en að hækka þá upphæð, sem lánuð verður.

Í 4. gr. er svo gert ráð fyrir því, að í þeim bæjum og kauptúnum, einkum á Vestur-, Norður- og Austurlandi og einnig þar, sem ekki eru fjárhagsmöguleikar fyrir hendi til að kaupa og reka togara og skortur er á atvinnu, sé ríkisstj. heimilt að stofna ríkisútgerð togara. Eins og þetta ákvæði ber með sér, er þessi heimild bundin við þau skilyrði, sem ég nefndi. Það er gert ráð fyrir því, eins og ég sagði í upphafi máls míns, að þörfin sé mest á Vestur-, Norður- og Austurlandi, en jafnframt hefur hv. Nd. breytt þessu í það horf, að ríkisútgerð má einnig á öðrum stöðum reka, þar sem ekki eru fyrir hendi fjárhagslegir möguleikar til þess að kaupa og reka togara, Þessi heimild er því allþröng, eins og ákvæðið ber með sér, þar sem hún nær ekki lengra en svo, að undir öðrum kringumstæðum er ætlazt til þess, að einstaklingar, bæjarfélög og félög einstaklinga sjái fyrir þessum rekstri. Til þessa ríkisrekstrar má ekki grípa nema undir þeim kringumstæðum, sem ég hef nú rakið.

Enn fremur eru í þessu frv., í 5. gr., ákvæði um það, að ríkisstj. sé heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að gera samninga um kaup á sex skipum, sem gert er ráð fyrir að verði 150–250 tonn, og þessi skip eru ætluð til útgerðar eiginlega fyrst og fremst á þeim stöðum, þar sem hentugra kann að vera að gera. út slík skip, vegna hafnarskilyrða og af öðrum ástæðum, en að gera út togara, — og e. t. v. ekki hægt að gera út togara á sumum þeim stöðum, þar sem hægt væri að gera út slíka báta. Í frv. stendur, að um fiskiskip samkv. þessari gr. gildi ákvæði þessara laga, eftir því sem við á, enda þar tekið fram í þeirri sömu gr., að þar er heimilt að endurlána allt að 85 af hundraði af andvirði þessara skipa til þeirra, sem þau kunna að kaupa, og jafnframt felst í ákvæðinu, að um fiskiskip þessi samkv. þessari gr. gildi ákvæði þessara laga, eftir því sem við á, að lagaákvæðin í heild, þar með talin 4. gr., mundu sennilega ná til þessara skipa með sömu takmörkunum og ég taldi í 4. gr. En um ríkisútgerðina að öðru leyti er gert ráð fyrir að verði samið sérstakt frv., sem verður lagt fyrir hv. Alþingi á næstunni.

Ég sé svo ekki ástæðu til, eins og ég sagði í upphafi að hafa þetta langt mál, en geri það að till. minni, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. Þar mun málið hafa verið í hv. neðri deild.