27.11.1956
Efri deild: 19. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (486)
11. mál, skipakaup
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Þetta fara nú að verða dálítið staglsamar umræður og dálítið endurtekningakenndar, en hjá því verður ekki komizt, og skal ég reyna að stytta mál mitt.
Það er nú í fyrsta lagi viðkomandi dreifingu togaranna, sem voru keyptir af nýsköpunarstjórninni. Það kom fram hjá hv. þm., að hann teldi ákaflega bágborin rök hjá mér að halda því fram, að fáum af þessum togurum hefði verið dreift út um land, eins og ég sagði. En svo kemst hann ekki hjá því, hv. þm., til þess að fá nokkuð sæmilega tölu á togurum, sem hafi verið dreift út um landið, að telja Keflavík, Vestmannaeyjar og Akranes með svæðunum úti um land, og kemst þannig í sæmilega tölu. En vitanlega er öllum það ljóst, að togaraútgerð frá þessum stöðum býr svo að segja við sömu aðstöðu og önnur togaraútgerð frá Reykjavík og Hafnarfirði og kemur þess vegna undir sömu „katagóríu“. Það er ekki hægt að telja, að þeim togurum hafi verið dreift út um land, en með öðru móti fær hann ekki þessa tölu, sem hann er að reyna að fá. Og ef það er hægt að kalla þetta bágborin rök hjá mér, að ég tel þetta ekki til þeirra togara, sem hafi verið dreift út um land, þá veit ég ekki, hvaða orð á að nota yfir svona röksemdafærslu, enda liggur það beint fyrir í þessu máli, að við erum að ræða um aukningu togaraútgerðar á Norður-, Vestur- og Austurlandi, og margtekið fram í grg. og í sjálfu frv. Við erum að ræða um það, hvað hafi verið gert fyrir þá togaraútgerð á þessum stöðum undanfarin ár, og þeim hefur ekki tekizt að raska þessum röksemdum mínum. Þó að það hafi verið dreift þessum fáu togurum út um land af nýsköpunartogurunum, komst fyrst skriður á þetta mál, þegar togararnir tíu voru keyptir. Það stendur fast, sem ég hef sagt um það atriði, og hefur ekki verið á neinn hátt hrakið.
Hann segir enn fremur, hv. þm., að það sé gleðilegt, að Framsfl. hafi snúið af villu síns vegar í togarakaupamálunum. Ég hef bent á það margsinnis og skirrist ekki við að endurtaka það, að vitanlega stendur allt öðruvísi á um það atriði, hvort ríkið á að skipta sér af togarakaupum og hafa þar forgöngu, þegar engir peningar eru til hjá einstaklingum, engir hjá félögum, engir hjá bæjarfélögum og engir möguleikar til þess að fá togarana, nema með því móti, að ríkisstj. takist að fá lán, sem henni hefur ekki tekizt undanfarin þrjú ár fyrir hönd ríkisstjórnar. Það stendur allt öðruvísi á því, hvort ríkið skerst þá í leikinn, þegar atvinnuleysi vofir yfir víðs vegar í landinu, og beitir sér þá fyrir togarakaupum, heldur en þegar allir eru með fullar hendur fjár og einstaklingarnir geta ráðizt í að gera það, sem ríkið er að gera undir þessum kringumstæðum. Þannig stóð á, þegar nýsköpunarstjórnin keypti togarana, að þá voru allir með fullar hendur fjár. Og það stendur þess vegna enn þá óhaggað, að það er mjög mikið vafamál, svo að ekki sé meira sagt, að togarakaupin hefðu ekki farið betur úr hendi hjá einstaklingum í það skipti, þegar möguleikarnir voru til þess, að þeir framkvæmdu það, heldur en eins og það var gert. Því er haldið fram, að það hafi ekki verið keyptir þá fullkomnustu togarar, sem fyrir hendi voru. Þeir voru keyptir um svipað leyti dieseltogararnir, og ég hef lýst því, að það var skoðun fjölda manna, að það væri sú tegund togara, sem hefði átt að kaupa. Og ég vil endurtaka það einu sinni enn, að sá maður, sem keypti togara utan þessara samtaka, keypti einmitt togara af þessari gerð, sem bezt hefur reynzt.
Það eru þess vegna engin skoðanaskipti hjá Framsfl. í þessu máli. Það er ekkert um annað að ræða en það, að ríkið skerst í leikinn núna, og hin leiðin er ekki fær. Það sjá vitanlega allir, sem til þekkja, og er nógu hæpið, jafnvel þó að ríkið sjálft beiti sér fyrir því, að ekki verði erfiðleikar á því að fá lán, þó að við vonum, að það takist betur en tekizt hefur undanfarin ár.
Viðkomandi árás hv. 1. þm. N-M. (PZ) vil ég nú segja það, að ég skil það náttúrlega, að hv. þm. er ákaflega viðkvæmur fyrir árásum á ríkisstj. og þykir það miður, að slíkt skuli koma fyrir, enda varð hann háværastur í sinni ræðu, þegar slíkri árás hafði verið beint gegn ríkisstj., að einn þm. úr stjórnarflokkunum segist vera í vafa um, hvort hann geti greitt atkv. með þessu frv., áður en búið sé að ráða bót á grundvellinum undir rekstrinum. Ég verð nú að segja það, að þetta var dálítið í ósamræmi við það mál, sem hv. þm. hafði uppi, því að hann var næstum því jafnhávær, þegar hann sagði: Hvers vegna kemur ríkisstj. ekki með tillögur um efnahagskerfið, áður en hún leggur þetta frv. fram? — og var þess vegna að taka í sama strenginn og hv. þm. En að vísu gætti hann sín aftur seinna í ræðunni, því að hann hafði sagt það, að hvað sem grundvellinum líður, verður maður að treysta því, að hann náist, og þess vegna verður að samþykkja þetta frv., alveg án tillits til þess, hvort grundvöllurinn hefur verið fundinn áður eða ekki, — svo að hann tók nú aftur í öðru orðinu þessa árás sína á ríkisstjórnina.
Sannleikurinn er sá, að þegar við erum að ræða um ríkisrekstur og ríkisafskipti og einstaklingsrekstur og einstaklingsafskipti, bæjarrekstur eða annað, sýnir það sig af margendurtekinni reynslu, að þegar atvinnutæki bera sig ekki, eins og hv. þm. N-M. benti hér á, endar það alltaf með því, að ríkið verður að skerast í leikinn, þegar það er orðinn taprekstur.
Við munum ákaflega vel eftir því, hvernig togaraútgerðin á Ísafirði, bátaútgerð á Ísafirði og togaraútgerð Hafnarfjarðar varð til. Þá var það þannig, að einstaklingurinn græddi ekki og hætti. Og þá var það, sem hv. þm. V-Ísf. sagði þá eftirminnilegu setningu, þegar verið var að berjast fyrir því að koma á togaraútgerð í Hafnarfirði, — eftirminnilegu setningu, þegar hann var að mótmæla rökum Sjálfstfl. um það, að ekki mætti koma á togaraútgerð í Hafnarfirði, setningu, sem sjálfsagt ýmsir muna og ég sé ekki ástæðu til að endurtaka. Tilfellið er það, — það er alveg rétt hjá hv. þm., að Sjálfstfl. hefur verið á móti bæjarútgerð, hann hefur verið á móti ríkisútgerð, þangað til þessi atvinnurekstur hefur hætt að bera sig. Þá var hann með bæjarútgerð og ríkisrekstri. Þetta eru staðreyndir, sem allir þekkja. Við þekkjum það, sem sátum í bæjarstjórn Reykjavíkur, að hann beitti sér á móti bæjarútgerð í Reykjavík með hnúum og hnefum, og beitti sér svo fyrir henni og lét fyrsta togarann heita Jón Þorláksson, í höfuðið á manni, sem var meira á móti bæjarrekstri og ríkisrekstri en flestir menn í þessu landi.
Viðkomandi því, hver hafi haft mestan áhuga fyrir að byggja upp atvinnulíf úti um land, ætla ég ekki að þræta í þessum umræðum. Ég ætla ekki að fara svo langt. En ég ætla aðeins að staðhæfa það, sem er alveg staðreynd, að nýsköpunarstjórnin gleymdi bókstaflega talað öllu, sem snerti það atriði að byggja upp atvinnulífið úti um landið til þess að skapa jafnvægi í byggð landsins, og þar á meðal gleymdist ekki sízt í þessu tilfelli, sem er eitt stærsta atriðið, það gleymdist algerlega á þeim tíma landbúnaðurinn, eins og hefur verið margrakið með tölum, sem sanna það, hvernig var séð fyrir lánsþörf þess atvinnuvegar og uppbyggingu hans. Það var fullkomin kyrrstaða, enda haldið fram í einu stjórnarblaðinu þá, — fyrst verið er að vitna í fyrri tíma, — að það væri raunverulega réttast að leggja landbúnaðinn niður og flytja landbúnaðarafurðirnar inn. Þannig var hugurinn til dreifbýlisins og hugurinn til jafnvægis í byggð landsins.
Seinasta atriðið er það eina, sem ég þarf að taka aftur af því, sem ég hef sagt hér, Ég lagði það þannig út, að það væru endurtekningarnar um skröksöguna með spýtuna, sem hefðu orkað þannig á hv. þm. N-Ísf., að hann segði hér ósatt, án þess að vita það. Hann játaði að vísu, að allir væru breyskir í þessu tilfelli, og vísaði í söguna um abbadísina, sem hafði þó ekki mikið að segja, því að hann var ekki alveg inni á hennar leiðum, að játa syndir sínar, — það var síður en svo. Það kom nefnilega í ljós, að það var ekkert skylt með honum og abbadísinni, sem hann var að segja söguna af. Hún var hreinlega að játa syndir sínar, en hann var sá forstokkaði syndari, sem endurtók skröksöguna aftur, eftir að ég er búinn að leiðrétta hana og eftir að ég er búinn að upplýsa, að það liggja fyrir sannanir um það, að þessi grein Skúla Guðmundssonar var ekki í neinu sambandi við togarakaupin. Og ég sagði honum, að honum væri óhætt að trúa því, og ég get sýnt honum það hvenær sem er. Nei, hann var það forstokkaður, að hann endurtók söguna, og ég verð þess vegna að taka aftur það, sem ég sagði áðan, að þetta sé af vangá gert. Það hlýtur að vera af einhverjum öðrum hvötum. Það er ekki hægt að komast hjá því að álykta þannig, og það eina, sem ég hef missagt í þessum umræðum, það er það, að ég hef álitið hv. þm. betri í þessu efni en hann reyndist við prófið.