30.10.1956
Neðri deild: 8. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

12. mál, festing verðlags og kaupgjalds

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Fyrir tæpri viku mátti í aðalmálgagni hæstv. ríkisstj., Þjóðviljanum, sem er blað stærsta stjórnarflokksins, lesa svo hljóðandi ummæli, með leyfi hæstv. forseta:

„Kristinn E. Andrésson sagði mér á dögunum, að eitt sinn hefði hann verið að tala við mann á erlendri ráðstefnu og allt í einu hefði maðurinn sagt meðal annarra orða, eins og þegar við minnumst á veðrið í gær: Ég þagði í 25 ár. Kristinn sagðist hafa fyllzt djúpri lotningu fyrir manninum, og ég rengdi hann ekki. Ég er viss um, að virðing Alþingis ykist stórum, ef alþingismenn þegðu, þó ekki væri nema í eitt ár:“

Þetta er boðskapur aðalstjórnarblaðsins til Alþingis, þegar það er nýkomið saman. Hæstv. ríkisstj. og ráðherrar. eru ekki alveg eins hreinskilnir í sínum orðum og málgagn þeirra, en þó var það alveg greinilegt af ummælum þeirra í gær, að þeim fannst óþarft, að margir þm. úr stjórnarliðinu töluðu. Þeim fannst í þessu tilfelli alveg nóg, að ég einn talaði, og hitt allt vera mælt mjög að óþörfu.

Það kom og fram hjá þeim, að þeim virtist gæta ósamræmis í málflutningi mínum og hv. skoðana- og flokksbræðra minna. Ég er þó ærið hræddur um, að það ósamræmi hafi ekki komið af okkar ummælum, heldur vegna þess, að nokkuð hafi á skort um skilning þessara hæstv. ráðherra, bæði á ummælum þeim, sem höfð voru í frammi, og raunar á eðli þess máls, sem hér er til umr.

Hæstv. félmrh, komst einnig svo að orði, að ekki færi vel, þegar tveir hagfræðingar töluðu saman og hvorugur skildi hinn, eins og hæstv. menntmrh. og hv. 9. landsk. þm. (ÓB), og þá væri viðbúið, að leikmennirnir skildu harla lítið í því, sem þeir segðu.

Þetta er auðvitað sorglegt. En enn þá verra er þó, þegar ræðumenn tala og halda langar ræður og mæla af miklum móð og skilja auðsjáanlega alls ekki sjálfan sig, hvorugur, en þannig var bæði með hæstv. félmrh. og hæstv. menntmrh. Og er þá ekki furða, þegar ljóst er, að þeir skilja ekki sitt eigið mál, sínar eigin röksemdir eða sínar eigin tillögur né brbl., þó að þeim skjótist nokkuð um skilninginn á því, sem stjórnarandstæðingar halda fram, eða þeirra ummæli. En sannleikurinn var sá, að það var ekkert í því, sem aðrir þeir sjálfstæðismenn, sem hér töluðu í gær, sögðu, sem á nokkurn hátt bryti í bága við mín ummæli. Þar féll allt saman. Það stóð allt óhaggað, sem ég hafði sagt, og ég hafði raunar gert beinan fyrirvara um það, að þeir mundu koma með sínar aths., þó að ég vildi láta það liggja alveg ljóst fyrir sem skoðun Sjálfstfl. í heild, að þrátt fyrir það þó að ýmsar aths. megi gera við brbl. eins og þau eru og þá ekki síður við framkvæmd þeirra, þá erum við sammála þeirri meginhugsun, sem frv. hvílir á, að nauðsyn hafi verið að stöðva verðbólguna, eins og á stóð, og að það hefði ekki orðið gert með öðrum hagfelldari eða neinum öðrum framkvæmanlegum hætti en þeim, sem brbl. gera, að stöðva fyrst kauphækkunina, og það er sú framkvæmd brbl., sú löggjöf, sem er nýjungin í tillögum, ekki Framsfl., því að hann hefur oft verið inni á svipuðum till. áður, og raunar ekki Alþfl., því að hann hefur verið með svipaðar ráðstafanir, þegar hann hefur verið við ríkisstj. áður, en það er alger nýjung, að kommúnistar, nú kallandi sig Alþýðubandalagsmenn, fáist til þess að játa þetta.

Það verður að segja það hæstv. félmrh. til hróss, að þó að mjög gætti ósamræmis og gagnstæðra fullyrðinga í hans málflutningi, þá játaði hann þó þessa höfuðstaðreynd. Hann játaði það, að stöðvun kaupgjaldsins hefði verið forsenda fyrir stöðvun verðlagsins. Og hann sagði meira að segja: Það, sem gerði mér mögulegt, — og þá var nú ekki eins og hann hefði komið fram sem sá, sem valdið hefði, heldur sem sá blíði biðill, þegar hann var að tala við herrana í verzlunarráðinu, — það, sem gerði mér mögulegt að standa fast á því, að þeir stöðvuðu ekki skilyrðislaust verðhækkanir, heldur hefðu hóf á verðhækkunum, var þetta, að ég var áður búinn að stöðva kaupgjaldið. Þetta er ekki orðrétt, sem hæstv. ráðh. sagði, en þetta er óhaggað efni þess, sem hver hlutlaus hlustandi getur athugað og lesandi, ef hann les það, sem hér var ritað niður eftir ráðh. í gær. Hæstv. félmrh. margendurtók þetta, að fyrst hefði hann stöðvað kaupgjaldið fyrir verkamönnum og þá hækkun, sem þeir voru búnir að vinna sér fyrir, og með því móti hefði hann skapað sér aðstöðu til þess að standa á móti verðhækkunum á eftir.

Þetta er mikilvæg játning. Það er líka mjög mikilvæg játning, sem hæstv. félmrh. gaf, þegar hann sagði: Sjálfstæðismenn gátu ekki farið svona að. Þeir höfðu ekki þau völd að geta komið fram þessari stöðvun kaupgjaldsins. — Hann á við það réttilega, að hann og þeir, sem hafa yfirráðin í verkalýðshreyfingunni, hafa nú í bili getað lagt það með sér, borgað hæstv. fjmrh., Eysteini Jónssyni. Til þess að ráða sig á hans, ja, miður skemmtilegu fleytu, eftir því sem þeir stundum segja, hafa þeir borgað þar með sér þennan aðgangseyri: Að stöðva kaupgjaldið í landinu. Venjulega er það nú svo, að sá, sem stýrir fleytunni, verður að borga þeim, sem eiga að sitja undir árunum og annast vinnuna þar, en hér hefur því verið snúið svo við, að þeir verða að borga fyrir að fá að fljóta með hæstv. fjmrh., og hefði það einhvern tíma eitt þótt ærin tíðindi. — En þetta liggur sem sagt fyrir nú, og ég skal ekki ræða það hér, það munu gefast til þess mörg tækifæri fyrr og síðar á þessu þingi og annars staðar að gera grein fyrir því, hver er sú raunverulega ástæða, sem varð þess valdandi, að þessir ráðamenn í verkalýðshreyfingunni fengust nú til þess að stöðva kaupgjaldið og borga þann inngangseyri í ríkisstjórnina. Skýringin á því er auðvitað ekki ástandið eða viðhorfið innanlands, heldur það, að fyrir það að stöðva kaupgjaldið á þennan veg hafa þeir um sinn orðið alls ráðandi í utanríkismálum landsins, bæði varðandi varnarmálin og verzlunarmálin. Ég skal ekki rekja þá sögu lengur, en það blasir við og er óhagganleg staðreynd.

Þessar játningar hæstv. félmrh. eru vissulega mjög mikilsverðar. Hitt var svo ærið utanveltu, þegar hann fór að skýra frá því, af hverju hann hefði ekki getað talað við verkalýðsfélögin áður og látið þau samþykkja þessa stöðvun í sínum félögum. Hann sagði: Það var vegna þess, að þetta hékk allt saman með því, að við ætluðum að stöðva verðlagið í landinu. — En hann bara gleymdi því, að í fyrsta lagi hefði hann getað gefið verðlagsstöðvun út með brbl. alveg sérstaka og tekið kaupgjaldið síðan á eftir, eftir að sú stöðvun var orðin á verðlaginu, sem hann segir nú að hafi verið forsenda fyrir öllu saman, þannig að það var ekkert, sem frá hans sjónarmiði þurfti að knýja stjórnina til þess að hafa þetta saman. En til viðbótar því kemur það svo, sem hv. 9. landsk. þm. (ÓB) vakti athygli á í gær, að ríkisstj. hafði í lögum fullnægjandi heimild til verðlagsráðstafana, alveg óháð þessum brbl. Hún gat notað þær lagaheimildir, sem fyrir hendi voru.

Það er skiljanlegt, að ríkisstj. út frá sinni sannfæringu, sinni skoðun, skammi okkur sjálfstæðismenn fyrir að hafa ekki viljað beita þeim heimildum, sem til voru í lögum. Við vitum, að það er eitt af hinum miklu ágreiningsefnum í íslenzkum stjórnmálum, hvort það sé til góðs að beita slíkum heimildum eða ekki. Við teljum, að það sé aðeins um sinn og þegar sérstaklega stendur á, sem það sé almenningi hagkvæmt, að þeim sé beitt. Okkar andstæðingar í Alþýðubandalaginu — eða hvað þeir kalla sig nú, þær marglittur, sem þar eru á ferðinni — halda því fram, að það sé þjóðinni til góðs að hafa þessar hömlur, hafa þetta eftirlit. En þeir höfðu lagaheimildina til og þurftu alls ekki að gefa hana út með þessum hætti sem gert var, svo að ráðh. hafði ærinn tíma, ef hann vildi, alveg án tillits til verðlagsstöðvunarinnar, að bera sig saman við verkalýðinn.

Jú, hann segir: Við bárum okkur saman við suma formennina, þá sem við náðum í. — Það kom þó í ljós, að hann hafði t. d. ekki náð neinu sambandi við ein stærstu launþegasamtökin, vegna þess að formaður þeirra var í burtu. Og hann sagði: Í Reykjavík var það meira að segja þannig, að við kölluðum saman fulltrúa eða menn úr stjórn allra verkalýðsfélaganna í Reykjavík, og það voru svo margir menn, að þeir fylltu allan salinn í Iðnó. Ég hef oft verið í Iðnó, og ég hef lesið frásagnir af fundum þaðan, að þar sé auðvelt að halda 500 manna fundi, þegar ástæða þykir til að láta salinn vera nokkurn veginn fullskipaðan, en samkv. talningu hæstv. félmrh. var Iðnó í þetta skipti fullskipað með eitthvað 115 mönnum. Eftir þeim tölum, sem hann gaf upp, og atkvæðum, sem hann gerði grein fyrir að þar hefðu bæði verið greidd með og á móti og setið hjá, þá er það eitthvað milli 115 og 130 manns, sem sagt tæplega þriðjungur þess, sem húsið tekur, ef það er sæmilega skipað, hvað þá ef í það er troðið, svo að eitthvað hefur nú vantað á, að þarna væri öllum stefnt saman, ef það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði og átti að skilja, að þarna hefðu verið svo margir boðaðir, að fundarsalurinn hefði orðið fylltur af þeim, sem heimild höfðu til að koma þangað.

Ég lagði enga áherzlu á það í mínu tali út af fyrir sig, hvort það hefði verið haft samráð við alla aðila eða ekki. Það er þeirra aðila, sem á sig telja hallað í þessu, verkalýðsfélaganna, að mótmæla, ef þau telja ástæðu til. Ýmis þeirra, eins og t. d. eitt stærsta, öflugasta og elzta félagið, Sjómannafélag Reykjavíkur, hefur mótmælt. Ýmis önnur félög hafa mótmælt. Það er sjálfsagt ágreiningur innan félaganna um það, hvort það hafi verið haft nægilegt samráð við þau eða ekki. En það var ekki aðeins hæstv. félmrh., sem hefur farið dálítið óvarlega með staðreyndir í þessu sambandi, heldur hygg ég, að það sé líka óhætt að fullyrða, að þegar hæstv. forsrh., landbrh., sagði landsmönnum ekki aðeins, að það hefði verið haft samráð við verkalýðinn, heldur líka við bændur, — og hann orðaði það ekki svo, að það hefði verið einungis samráð, heldur sagði hann, að þessar stéttir hefðu í raun og veru gert samning sín á milli og ríkisstj. hefði ekki gert annað en að staðfesta, lögfesta samning þessara aðila, — ég fullyrði það og segi það hér og skora á hæstv. forsrh. að mótmæla því, ef hann treystir sér til, að bændasamtökin telja ekki, að slíkt samráð hafi verið við sig haft eins og forsrh. gaf í skyn að gert hefði verið. Ég áfellist út af fyrir sig ekki forsrh., þó að það sé mál fyrir sig, það er svo langt umræðuefni, að ég skal ekki fara út í það hér, — ég áfellist forsrh. ekki fyrir það, þó að hann hafi ekki treyst sér til að hafa fullt samráð við bændasamtökin, en ég fullyrði það, að þegar hann orðaði þetta eins og hann gerði, þá sagði hann meira en hann er maður til þess að standa við. Ég veit hins vegar, að hann er ekki nógu mikill maður til þess að játa það hér, að hann hafi þarna talað af sér. Hann yrði maður að meiri, ef hann játaði það. En það eru allt of margir, sem vita það sanna í þessu, til þess að það verði hægt að koma sér undan því með illyrðum eða nokkrum undanfærslum.

Eins er það mjög villandi hjá hæstv. félmrh. (HV), þegar hann var að vitna í sína baráttu fyrir verðstöðvun 1952 og sagði, að verkföllin 1955 hefðu hafizt vegna þess, að komið hefði í ljós, að kjör almennings, verkamanna, hefðu versnað sem svaraði 20%. Ég tek það fram, að hæstv. félmrh. sagði ekki berum orðum, að þau hefðu versnað um 20% á þeim rúmum 2 árum, sem þarna höfðu liðið, en það var ómögulegt fyrir nokkurn, sem heyrði hans mál og ekki þekkti þetta sjálfur til hlítar, annað en að skilja hann svo.

Sannleikurinn í því er sá, að samkv. öllum útreikningum, jafnvel þeim útreikningum, sem Alþýðusambandsstjórnin lét gera til undirbúnings verkföllunum, kom í ljós, að lífskjörin höfðu sáralítið breytzt eða versnað frá því, að samningurinn var gerður 1952, þangað til verkfallsaldan reið yfir 1955. Sú tala, sem hæstv. félmrh. þarna vitnaði til og er ærið hæpin og mjög umdeild, miðar við allt annað tímabil. Hún miðar við það tímabil, sem var á árunum 1947, þegar kommúnistar halda því fram, að raunveruleg laun hafi komizt hæst hér á landi. Ég skal ekki fara út í það að þessu sinni, hvort þessi samanburður er réttur eða ekki, en ég bara minni hæstv. félmrh. á það, að hann var sjálfur öflugur og eindreginn fylgismaður dýrtíðarlaga, sem stjórn Stefáns Jóhanns setti haustið 1947, vegna þess að verkföllin vorið 1947 hefðu knúið kaupgjaldið svo hátt upp, að ekki væri hægt undir að standa, þannig að hann var sjálfur einn í hópi þeirra, sem áttu mestan þátt í því að rýra lífskjörin, eftir því sem hann segir nú, frá því, sem þau komust hæst 1947, og hann ætti ekki að vera að skamma aðra fyrir þá rýrnun, vegna þess að ef rýrnun var, þá varð hún fyrst og fremst á tímabilinu og vegna þeirra ráðstafana, sem stjórn Stefáns Jóhanns beitti sér fyrir og ég tek mína fullu ábyrgð á. Ég átti sæti í þeirri stjórn. En ég veit líka, að hæstv. félmrh. var eindreginn fylgismaður þeirra ráðstafana og þær voru gerðar, ekki til þess að fjandskapast við verkalýðinn, heldur vegna þess, að þær voru óvefengjanleg nauðsyn til heilla verkalýðnum. Hæstv. félmrh. ætti að vera stoltur af því að hafa áður lagt gott til þess að stöðva verðbólguna, en vera ekki nýbyrjandi í því eins og félagsbróðir hans, hæstv. ráðh. Lúðvík Jósefsson, sem er alveg nýr í iðjunni að þessu leyti, en hæstv. félmrh. er gamalþekktur „verkalýðsböðull“, ef hann vill viðhafa það orð í þessu sambandi.

Nei, lífskjörin breyttust ekki að þessu leyti frá 1952 til 1955, og það eru margar sannanir, margar tilvitnanir í sjálfu aðalmálgagni núv. hæstv. ríkisstj., Þjóðviljanum, frá þessu tímabili um það, að það var tilgangurinn að beita pólitísku verkfalli, að beita ríkisvaldið pólitískri kúgun með verkfallinu, en ekki fjárhagsleg kjarabót.

Látum vera, að þeir segi sem svo: Það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að hafa ríkisstj., sem við eigum sæti í. — Þetta er skiljanlegt, þeir trúa á sinn málstað, já, aumingja mennirnir, segi ég og verð nú að vorkenna þeim, af því að þeir eru þá blindari en maður skyldi halda, ef trúin er ekki eitthvað farin að linast eftir síðustu heimsviðburði. En ég verð þó að ætla, að þeir trúi á sinn málstað, og þess vegna er ekkert við því að segja, þó að þeir berjist fyrir því, að hann sigri. En þeir eiga ekki að halda því fram, að verkfallið 1955 hafi verið af öðrum ástæðum en það var og í öðrum tilgangi en sannanlega, eftir þeirra eigin ummælum, liggur fyrir.

Svo margra mótsagna sem kenndi hjá hæstv. félmrh. (HV), var þó hátíð að hlusta á hann miðað við hæstv. menntmrh. (GÞG), ekki vegna þess, að hæstv. menntmrh. flytti ekki sitt mál á skikkanlegan og skörulegan hátt, — því fer fjarri, — en það var greinilegt, að hann skildi, sjálfur hagfræðingurinn, í raun og veru ekki grundvallaratriði þessa máls. Og ég verð að segja: Mér er það alveg stórfurðulegt, er hann kemur hér upp. Í fyrsta lagi er hann ósköp ánægður yfir því, að ég skuli vera með þessu frv., en svo fer hann að deila á það, sem var aðalatriðið í því, sem ég sagði, að ég væri með og þakklátur ríkisstj. fyrir, að hún hefði viðurkennt, gagnstætt því, sem veigamiklir aðilar innan ríkisstjórnarinnar hefðu áður haldið fram, að ráðið til þess að stöðva verðbólguna væri, eftir því sem hér til háttaði, stöðvun á kaupgjaldi. Hæstv. menntmrh. þykist vera ósköp ánægður með það, sem ég segi, en deilir þó hart á þá meginröksemd, sem ég færði fyrir mínu máli, og segir: Það er alls ekki rétt, að þetta sé kaupgjaldinu að kenna.

En hvað segir hann svo sjálfur, sá góði mann? Hann staðfestir í einu og öllu það, sem ég segi, að það sé kaupgjaldið, sem hér eigi hlut að máli, þó að hann geri sér þá skoðun sína ekki ljósa. Það, sem átti við og hann hefði eftir sínum hugsanagangi átt að segja, er: Það er ekki verkalýðsfélögunum að kenna, að kaupgjaldið hækkaði, — því að það, sem hann fór að tala um, var, að það væru verkalýðsfélögunum óviðkomandi ástæður, sem hefðu leitt til þess, að kaupgjaldið var hækkað meira en efnahagslífið gat undir staðið. Þetta kom berlega fram í ræðunni, eins og hann flutti hana í gær, og er staðfest í þeirri frásögn, sem blað hans, Alþýðublaðið, birtir í dag. Með leyfi hæstv. forseta, segir blaðið:

„Gylfi hrakti sérstaklega þá venjulegu blekkingu sjálfstæðismanna, að dýrtíðin hefði verið kauphækkununum að kenna. Taldi Gylfi, að höfuðorsakir dýrtíðarinnar hefðu verið lánsfjárþensla bankanna, greiðsluhalli ríkissjóðs, meðan hann var, og svo áhrif frá Keflavíkurflugvelli.“

Þetta getur hann ekki fært sem úrslitaákvörðunarástæðu í þessu sambandi fyrir öðru en fyrir sjálfri kauphækkuninni, enda segir hann: Þið skuluð ekki alltaf vera að skamma verkalýðsfélögin. Þið skuluð líta á það, að atriði, sem stjórnvöldin réðu við sjálf, lánsfjárþenslan, greiðsluhalli á fjárlögum, áhrif flugvallarvinnu, — allt þetta leiddi til þess, að eftirspurnin eftir vinnunni varð svo mikil, að verkalýðsfélögin fengu í raun og veru ekki við neitt ráðið og urðu nauðug og viljug að dansa með. — Þetta er skynsamleg röksemdafærsla, ef hæstv. ráðh. (GÞG) hefði haldið þessu fram, en það var bara alls ekki þetta, sem hann sagði. Hann sagði, að kaupgjaldið hefði ekki haft og hefði ekki þýðingu í þessu sambandi.

Hæstv. ráðh. er mjög ánægður á svipinn og brosir, og ég efast ekki um það, að hann af sínum lærdómi komi með einhverja útúrkróka, sem eigi að hagga því, sem ég hef sagt. En sannleikurinn er sá, að heilbrigð skynsemi er oft haldbetri en allt of mikill lærdómur.

Þessi atriði, sem hæstv. menntmrh. talaði svo mikið um og taldi ein skipta öllu máli í þessu sambandi, voru einmitt atriði, sem hv. 2. þm. Reykv. (BÓ) hafði ýmis tekið rækilega fram og bent á að hefðu að nokkru leyti leitt til þess ástands, sem hér er um að ræða. Við skulum játa það fúslega, við hér á Íslandi, sem erum um margt áratugi, svo að vægilega sé til orða tekið, á eftir öðrum þjóðum um framkvæmdir, en þó með betri lífskjör almennings en allar eða flestar aðrar þjóðir, að það er mjög skiljanlegt, að við viljum á skönunum tíma fá þær ytri framkvæmdir, þær grundvallarframkvæmdir, sem gera lífið léttara en ella og með meiri menningarblæ, koma okkar þjóðfélagi í sams konar horf og er annars staðar, og þetta verður til þess, að hvaða ríkisstj. sem er, sem vill beita sér fyrir framförum, verður auðvitað alltaf í miklum vanda um að halda þarna því rétta jafnvægi. En hlutdrægnin, hlutdrægnin, og ég endurtek: hlutdrægnin í grg. hæstv. menntmrh. kemur fram í því, þegar hann vill nú í þessu sambandi leggja áherzluna á, að þarna sé aðallega að kenna lánsfjárþenslu bankanna, en segir: Ja, síðustu fimm ár er þarna alls ekki að kenna greiðsluhalla fjárlaga. — Það er sennilega þau fimm ár, sem Eysteinn Jónsson er búinn að undirbúa Hræðslubandalagið með þessum hv. þm., og þar af leiðandi er fjármálastjórn hans góð þau ár, þótt hún hafi ekki verið jafngóð áður. En sé það nú svo, að bankarnir hafi lánað of mikið, var þá ekki fyrir fjmrh., sem hefur jafnmikil áhrif á allt fjárlagskerfið, nauðsynlegt að leggja þeim mun meira fyrir af ríkisfé til þess að standa á móti of mikilli útþenslu? Það er auðvitað óhagganlegt, að fjmrh. (EystJ) er einn af þeim, sem langsamlega mestu geta ráðið um það, hvort fjárhagsjafnvægi helzt í landinu eða ekki. Ég tel, að fjmrh. hafi um margt í því gert vel, og ég tel, að það, sem mistekizt hefur, sé ekki svo mikið honum að kenna sem þeim þjóðaranda, sem hér ríkir. En talið um það stundum í fjármálatíðindum Landsbankans, sem hefur verið prentað upp í Tímanum æ ofan í æ, að það hafi verið staðið á móti útþenslunni með hinum mikla greiðsluafgangi ríkissjóðs, verður allt blekking, þegar haft er í huga, að öllum þessum peningum er jafnað út í árslokin, þannig að það er rétt hjá stjórnarandstöðunni fyrrverandi, sem hún hefur haldið fram sem gagnrýni á þá fjármálastefnu, sem fylgt hefur verið, að fjmrh. hefur í raun og veru ekki tekið nema tiltölulega lítinn hluta af ríkisútgjöldunum inn á fjárlög hverju sinni, — hann hefur auðvitað tekið meginhluta þeirra, en hann hefur látið vera eftir annars vegar mikinn afgang, sem hann hlaut að sjá fyrir að mundi myndast, og hins vegar ýmsar þarfir, sem varð að sjá fyrir, en þingið var ekki látið taka ákvörðun um fyrr en á eftir, vegna þess að með því móti gat sá, sem hafði megináhrifin á afgreiðslu fjárlaganna, hæstv. fjmrh., ráðið meiru um það, hvernig stundum allt upp undir 1/5 af tekjum ríkissjóðs var varið, heldur en hefði verið, ef fjárlögin hefðu verið sæmilega hóflega áætluð og Alþingi í raun og veru fyrir fram verið látið taka ákvörðun um það, til hvers ríkistekjurnar áttu að ganga. Þetta er mál fyrir sig. En niðurstaðan hefur orðið sú, að greiðsluafgangurinn, þessi sem alltaf er verið að tala um að rétti við fjármálakerfið í landinu, hefur í raun og veru aldrei verið til. En ef bankarnir gerðu sig seka um það að lána of mikið og fjmrh. sá hættuna, þá hlaut auðvitað skylda hans að vera sú að halda þessum greiðsluafgangi eftir, en ekki verja honum til þeirra mjög þörfu hluta, sem ég og aðrir höfum gert kröfu til að honum væri varið til.

Þess vegna er það auðvitað allt of barnalegt til þess, að jafnskýr maður og hæstv. menntmrh. geti borið það hér fram, að ætla að taka fjmrh., þann sem hefur fjármálastjórnina að meginhluta í sinni hendi, úr ábyrgð á því, ef hér hefur verið misgert, og ég segi: ef hér hefur verið misgert. Alveg eins er það auðvitað alger firra, þegar hæstv. félmrh. er að tala um og gera lítið úr þeim þrýstingi, sem í þessu efni hafi skapazt frá flugvallarvinnunni. Það er vitað mál og var hvað eftir annað deilumál innan fyrrv. ríkisstj., að hæstv. þáv. utanrrh., sem hafði í þessu fullkomið vald, gætti þess alls ekki eins og skyldi að láta ekki of marga Íslendinga vinna á Keflavíkurflugvelli. Þar mátti ekki einn einasti Íslendingur vinna nema með samþykki utanrrh., og utanrrh. hafði það í sinni hendi að hafa á þessu fullan hemil, þannig að þetta gæti orðið efnahagslífinu sem eins konar varasjóður, sem hægt væri að láta menn vinna við, ef þeir hefðu ekki vinnu annars staðar, en ekki verða til þess að soga vinnuaflið frá öðru. Þetta er auðvitað áreiðanlega ekki persónuleg ávirðing hæstv. fyrrv. utanrrh. Það var stefna Framsfl., sem þessu réð, vegna þess að þeir vildu láta sem allra fæsta erlenda verkamenn vera hér og treina varnarliðsframkvæmdina sem mest handa Íslendingum.

Þetta eru rök fyrir sig, en þetta varð til þess, að sú þensla, sem hæstv. menntmrh. var nú að reyna að kenna öðrum en núv. stjórnarflokkum, skapaðist m. a. frá Keflavíkurflugvelli. Ef menn vilja segja, að þessi atriði hafi valdið nokkru um kauphækkunina, þá verður auðvitað að taka þau öll til, og ef við viljum komast til botns í þessu vandamáli, þá verðum við ærlega og heiðarlega að gera okkur grein fyrir, hversu mikið hvert um sig hefur þarna að segja.

En við vitum líka, að út af fyrir sig er verðbólga og örðugleikar af verðbólgu ekkert sérstakt íslenzkt fyrirbæri. Það má segja, að það sé allsherjar fyrirbæri um allan hinn vestræna heim, þar sem er verið með örar framkvæmdir og þar sem menn, án þess að beita heraflinu og kúguninni, sem kommúnistar gera, telja stolt sitt að forðast atvinnuleysið, sem var tíðkanlegt í þessum löndum fyrir 1939. Nú eftir á eru hagfræðingarnir búnir að finna út, að sá, sem hafi átt mesta ábyrgð á atvinnuleysinu á árunum 1927–39, hafi verið aðalbankastjóri Englandsbanka, vegna þess að hann hafi haldið of mikið í lánveitingar. Það er sama stefnan og hæstv. menntmrh. segir nú, að það eigi umfram allt að halda jafnvægi og bankarnir verði að fara svo varlega í sínum útlánum, að þetta jafnvægi haldist, að yfirboð sé ekki gert í vinnuna.

Ég hef sagt áður, og ég segi það enn: Ég vil miklu heldur, að það sé gert yfirboð í vinnuna og verkamaðurinn þurfi að láta ganga á eftir sér, heldur en að verkamaðurinn þurfi að ganga á eftir öðrum um það að fá vinnu, eins og var hér á árunum frá 1934–39. Og einmitt, þrátt fyrir alla galla undanfarinna ára, hefur tekizt þetta allt í senn, að halda fullri vinnu, jafnvel þannig, að stundum hefur kannske þurft að ganga helzt til mikið á eftir verkamanninum, a. m. k. að dómi hæstv. menntmrh. En það hefur líka fram á þennan dag, með þeim fjármálaráðstöfunum, sem fyrrv. ríkisstjórnir hafa gert, tekizt að forða því hruni, sem hæstv. forsrh, hefur alltaf sagt frá 1942, að hann hætti að vera forsrh. þá, að væri á næsta leiti. Það hefur tekizt að forða þessu. Og ég segi: Ég á enga betri ósk til hæstv. núv. ríkisstj. heldur en að henni takist að forða hruninu, en að hún fari ekki of mikið eftir þeim kenningum, sem hæstv. menntmrh, hélt hér fram í gær og færðar yfir í mennskra manna mál eru þær, að hann vill fá hæfilegt atvinnuleysi, til þess að kaupgjaldið hækki ekki um of. Ég segi: Það er miklu betra að halda fullri vinnu, jafnvel fara dálítið óvarlega í lánveitingum, í fjárveitingum, í Keflavíkurvinnu, hvað við viljum segja, halda fullri vinnu, halda fullum framkvæmdum, og gera svo ráðstafanir aðrar á eftir, til þess að ekki keyri sig allt um koll, heldur en að halda jafnvæginu með sultarólinni á fólkinu, en það var sá boðskapur, sem hæstv. menntmrh. gerði sig að talsmanni fyrir hér í gær. Og hann skal ekki komast upp með að segja, að það sé rangfært, vegna þess að ég skora eingöngu á alla þá, sem efast um réttan skilning minn á hans orðum, að lesa hans ræðu og hugleiða þann boðskap, sem hann flutti. Ég tel okkur ekki hafa neinn ávinning af því hér að vera að leggja annað inn í ummæli andstæðinganna en í þeim felst, það kemur í ljós, ef ummælin eru rangfærð, en menn verða þá líka að hafa kjark til þess að hugsa hverja hugsun til enda og gera grein fyrir því, hvað fyrir þeim í raun og veru vakir.

Ég efast sem sagt ekki um það, að út frá stranghagfræðilegu sjónarmiði og með þetta fullkomna jafnvægi í huga sé hægt að benda á ýmsar veilur, sem hér hafa verið að undanförnu. En ég segi: Okkur Íslendingum hefðu ekki orðið þær veilur hættulegri en öðrum vestrænum þjóðum, ef hér hefði ekki komið annað alveg sérstakt fyrirbæri til, sem engin önnur vestræn þjóð á við að búa í sama mæli, og það er, að verkalýðsfélögin eru að verulegu leyti og á þeim stöðum, sem úrslitaþýðingu hafa, undir stjórn manna, sem, eins og ég segi aftur, ég er sannfærður um að vakir allt það bezta fyrir í raun og veru, — alveg eins og ég er sannfærður um það, að hæstv. forsrh. efast ekki um það, að hann sé sjálfkjörinn frelsari íslenzku þjóðarinnar, alveg á sama hátt efast ég ekki um það, að hæstv. forseti þessarar deildar og hans flokksbræður eru sannfærðir um það, að þeirra málstaður sé réttur. En þeir bara segja: Til þess að ná okkar mikla takmarki verðum við að horfa langt yfir skammt, þá verður að beita verkalýðshreyfingunni meðan íhaldsöflin hafa völdin, ekki út frá því smáborgaralega sjónarmiði, hvort maður hafi betra ofan í sig í dag eða á morgun, heldur við það að ná því stóra marki, og það er að grafa undan auðvaldsfyrirkomulaginu, það er að koma á sams konar sæluríki og nú er í Póllandi og Ungverjalandi. Þessir menn auðvitað vildu ekki koma slíkum hörmungum á, en það bara leiðir af þeirra stjórnarstefnu, að þannig endar sá leikur. Það er þetta, að þeir hafa sett sín pólitísku yfirráð, sína pólitísku valdabaráttu hærra en hagsmunabaráttu verkalýðsins hverju sinni, sem gerir það, að verkalýðshreyfingunni hefur undanfarin ár verið beitt í annarlegum tilgangi, með annað í huga en þá hagsmunabaráttu, sem miðast eingöngu við bætt launakjör, enda munum við ósköp vel eftir því t. d. frá árinu 1942, þegar kommúnistar voru, — hvað eigum við að segja, hreinskilnari í tali en þeir eru orðnir síðan, þegar jafnágæt kona eins og þingmaðurinn, sem síðar varð, Katrín Thoroddsen, gerði gabb að Óla Skans dansi Alþýðuflokksins, sem hún taldi vera þetta, að vera að leitast við að bæta kjör fólksins með umbótum í stað þess að fylgja hinni kommúnistísku stefnu, sem telur, að umbæturnar út af fyrir sig séu oft og tíðum til hins verra, en ekki til hins betra, þær séu til þess að blinda fólkið fyrir því nauðsynlega, en ekki til þess að vera því sú hvatning, sem þarf til að veita því illa, sem þeir telja núverandi þjóðskipulag vera.

Það, sem við komumst aldrei hjá, er það, að úrslitum hefur ráðið varðandi verðbólguna, varðandi fjárhagsástandið, að þeir menn, sem þessa kommúnistísku skoðun hafa, þessa sannfæringu hafa, trúa þessu eflaust af heilum hug. Þeir hafa notað völdin í samræmi við þessa kenningu, og það hefur gert það að verkum, að allar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, gerðardómslögin, sem hæstv. núverandi forsrh. beitti sér fyrir, dýrtíðarlögin, sem ég var með Stefáni Jóh. Stefánssyni og hæstv. núverandi félmrh. í forustu um, gengislækkunarlögin, sem hæstv. forsrh., hæstv. fjmrh. og ég og ýmsir fleiri góðir menn voru með, — að allt þetta hefur dugað skamma hríð, þetta hefur allt verið gert af valdhöfunum í beztu sannfæringu, vegna þess að það væri nauðsynlegt. Það sannar út af fyrir sig ekki, að það hafi verið heppilegt. Það er t. d. enginn vafi á því, eftir á séð, að gerðardómslögin, sem ég á sínum tíma var með, voru mjög misráðin. En þetta hefur allt verið gert í heiðarlegri og einlægri viðleitni til að forðast vanda, sem ella mundi skapast í þjóðfélaginu, ekki eins og hæstv. forsrh. segir, að allt fjármálalífið sé helsjúkt og allt sé hér á heljarþröm. Auðvitað lifir þjóðin þetta allt af sér og hristir af sér á nokkru árabili, ef menn hafa kjark og þor til þess að horfast í augu við staðreyndirnar og skera á meinsemdina, þar sem hún er, ekki með valdi eða ofbeldi, heldur með einlægri og þrotlausri vinnu, útskýringu hins sanna samhengis efnahagslífsins fyrir þjóðinni.

Hingað til hafa kommúnistar ætíð haldið þessu fram: Það eru allir aðrir en launþegarnir, sem hér bera sökina. Kaupið lækkar af sjálfu sér, ef verðlagið lækkar. — Nú fá kommúnistarnir færi á því að komast til valda. Þeir hafa mikið hlutverk að vinna fyrir sinn alheimsflokk. Þeim er sagt að kaupa sig inn í ríkisstj. íslenzku til þess að ráða utanríkismálunum, þó að þeir þurfi að borga hátt verð fyrir, og verðið, sem þeir borga, er að setja, að vísu aðeins til bráðabirgða, en þó til bráðabirgða, löggjöf, sem kollsteypir öllum þeirra fyrri kenningum um orsakir verðbólgunnar, löggjöf, sem eins og hæstv. félmrh. sagði byggist á því, að fyrst er kaupið stöðvað, til þess að hæstv. ráðh. geti svo farið til annarra og eiginlega bónarveg að þeim, að þeir verði ekki allt of ósanngjarnir í sínum kröfum.

Ég segi : Ég vonast til þess, að þessi löggjöf beri sinn tilætlaða árangur og að ráðstafanir, sem gerðar verði síðar, verði haldgóðar, ég hef ekki hugmynd um það, enda ber ég auðvitað takmarkað traust til þessarar stjórnar, en ég vona, að þær ráðstafanir verði haldgóðar, því þó að þjóðfélagið muni ekki farast, þó að þær fari út um þúfur, þá væri það auðvitað þægilegra, að þessir menn, sem bölinu hafa komið af stað, lækni það sjálfir. En hvað sem um það verður, þá mega þessir menn vera sannfærðir um það, að þetta fordæmi, sem þeir nú hafa gefið með lögbindingu, er sú játning á öllum þeirra fyrri yfirsjónum, sem þeim mun seint úr minni falla og þeir verða áreiðanlega oft minntir á. Og ég óska þess, að það þurfi ekki framar að beita valdi eða lögbindingu, heldur sannfærist allur almenningur, svo sem hann mun gera áður en yfir lýkur, ekki sízt af þeirri algeru stefnubreytingu, sem hér hefur átt sér stað, um, að honum er sjálfum fyrir beztu að taka aldrei hærra kaup eða heimta til sín meiri hlut af þjóðartekjunum en efnahagslífið í raun og veru stendur undir, vegna þess að ef meira er krafizt, þá er það sjálfsblekking, sem engum verður til góðs, heldur öllum til ills. Það er þessi játning, sem kommúnistar hafa aldrei fengizt til þess að gefa fyrr en nú, sem þeir gáfu með setningu þessara laga, og hafi þeir þökk fyrir.