18.12.1956
Efri deild: 33. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (609)

90. mál, skemmtanaskattsviðauki

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti.

Efni þessa frv. er það, að á árinu 1957 skuli innheimta skemmtanaskatt eftir sömu reglum og gilt hafa undanfarin ár. Fjárþörf þeirra fyrirtækja, sem njóta góðs af skemmtanaskattinum, mun á árinu 1957 sízt verða minni en hún hefur verið undanfarin ár, og er því eðlilegt og nauðsynlegt, að framlengd verði lagaákvæði varðandi skemmtanaskattinn. Mæli ég því með því eindregið, að frv. þetta nái fram að ganga og að því verði að lokinni umr. vísað til hv. fjhn.